04.12.1952
Efri deild: 34. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í C-deild Alþingistíðinda. (2976)

33. mál, áfengislög

Frsm. meiri hl. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Eins og kemur fram af skjölum þeim, sem hér liggja fyrir, og nál., þá hefur allshn. ekki getað orðið sammála um afgreiðslu máls þessa, sem hér liggur fyrir, sem er frv. til áfengislaga. Meiri hl., sem við erum í hv. 6. landsk. (GÍG) og hv. 4. landsk. (StgrA) og ég, leggur til, að frv. verði vísað frá með rökstuddri dagskrá, sem liggur hér fyrir á þskj. 343, en aðrir nm. leggja til, að það verði samþykkt með breytingum, þar af annar nm. með mjög víðtækum breytingum, en hinn vill á því nokkru minni breytingar.

N. hefur rætt frv. á mörgum fundum. Hún hefur lesið það yfir og athugað margar greinar þess og þá náttúrlega alveg sérstaklega þau nýmæli sem í frv. felast. Hún sendi málið til umsagnar til ýmissa aðila, og bárust svörin greiðlega, en það kom fram í n., að það gat ekki orðið samstaða um afgreiðslu málsins. Einnig kom það fram af þeim svörum, sem n. bárust, að utan þingsins, a. m. k. hjá þeim aðilum, sem n. hafði leitað til, var ekki fyrir hendi samstaða um frv. Vil ég geta hér t. d. umsagnar Stórstúku Íslands, sem segir, að hún hafi ekki óskað eftir endurskoðun núgildandi áfengislöggjafar, nema því aðeins að slík endurskoðun miðaði að því að draga úr nautn áfengra drykkja í landinu, og telur, að þetta frv. muni ekki stefna að því, og Stórstúkan telur einnig, að hún hafi ekki átt neinn þátt í setningu þeirrar nefndar, sem hafi samið frv., og hefur ýmislegt við það að athuga eins og það er. Sama er að segja um þau bréf, sem hafa borizt frá samtökum kvenna, sem frv. hefur verið sent, en konur hafa, svo sem kunnugt er, látið sig áfengismálin mjög miklu skipta og margar konur og mörg félagssamtök kvenna unnið ágætt starf í þágu baráttunnar gegn ofnautn áfengis. Einkum kemur það fram í bréfum kvenna, að þeim þykir hafa verið fram hjá konum gengið, þegar þetta frv. var samið, sem hér liggur fyrir, og telja þær, að sökum starfa sinna og sökum þess, hvað áfengisbölið snertir heimilin mikið, hafi þær eins góð skilyrði eða betri en aðrir til þess að setja sig inn í það, sem hér er um að ræða og verður að vaka fyrir þeim, sem við þessi mál fást, hvernig eigi að vinna gegn ofnautn áfengis í landinu og því böll. sem af henni leiðir.

Að öllu þessu athuguðu lagði meiri hl. n. til, að þetta mál yrði afgreitt með rökstuddri dagskrá, þar sem þess er getið, að til þessa máls hafi ekki verið kvaddir þeir aðilar, sem m. a. eru styrktir af almannafé til þess að vinna gegn ofnautn áfengis í landinu og að sumu leyti vinna sem algerir sjálfboðaliðar án nokkurra launa að þessu starfi. Þeir hafa ekki verið kvaddir til, og telur meiri hl. n., að sjálfsagt væri, ef haldið er áfram að leita að viðunandi leið í þessum málum, sem sjálfsagt hlýtur að verða, þá ættu fulltrúar frá þessum aðilum að hafa þar hönd í bagga með. Er í rökstuddu dagskránni nefnd Stórstúka Íslands og einnig talað um, að konur þyrftu að eiga þarna hlut að máli og vera með í ráðum.

Ég tel ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð frá meiri hl. n. Í rökstuddu dagskránni segir:

„Deildin lítur svo á, að nauðsynlegt hefði verið að hafa samráð við þau félagssamtök í landinu, er vinna gegn ofnautn áfengra drykkja, um endurskoðun áfengislaganna og hvaða skipan á áfengismálunum væri líklegust til að draga úr ofnautn áfengis. Einkum telur deildin, að fulltrúi Stórstúku Íslands og a. m. k. tvær konur hefðu átt að vera með í ráðum, er áfengislögin voru endurskoðuð. Í trausti þess, að fulltrúar þeirra samtaka, er mesta áherzlu hafa lagt á baráttuna gegn ofnautn áfengis, verði kvaddir til ráða um, hvaða aðgerðir og skipan áfengismálanna sé líklegust til að draga úr og helzt að koma í veg fyrir misnotkun áfengis, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“

Þetta er sú rökstudda dagskrá, sem við leggjum fram um málið.