05.12.1952
Efri deild: 35. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í C-deild Alþingistíðinda. (2986)

33. mál, áfengislög

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég fór ekkert inn á það í minni frumræðu hér áðan að ræða meðferð málsins í hv. allshn. eða hinar einstöku till., sem fram hafa komið, en skal nú ræða það mál nokkru nánar og þó einkum og sér í lagi að gefnu tilefni frá hv. 4. landsk. þm., sem dró algerlega ranga ályktun áðan í ræðu sinni af mínum till., vegna þess að hann gaf sér ekki tíma til að hlusta á mína ræðu og þau rök, sem ég færði fram þá fyrir mínu máli. Það er eitt af hinu sorglega tákni um andvaraleysi hv. meiri hl. n. í þessu máli, að hvorki hv. 4. landsk. þm.hv. form. n. hefur sýnt þessu máli svo mikla virðingu, ef svo mætti segja, eða sýnt svo mikinn áhuga fyrir því, að þau hafi einu sinni fengizt til þess að vera hér við umræðurnar, og ekki heldur gefið sér tíma til þess að minnast nokkurn skapaðan hlut á málið í heild. Ég skal út af því leyfa mér að tilkynna hv. 4. landsk., að þegar þessi fundur var settur hér, hafði ég sem form. fjvn. verið búinn að ákveða fjvn.- fund með hvorki meira né minna en fjórum gestum, sem þurfti að ræða við, en ég taldi það þingskyldu mína að fresta þeim fundi og mæta hér við umræðu í einu mesta alvörumáli þjóðarinnar, á meðan hv. form. n. og allur meiri hl. sýnir þessu máli svo mikla lítilsvirðingu, að þeir hlaupa hér eins og kindur út og inn af stekk. Þetta er alvaran, sem þessir hv. þm. hafa sýnt í þessu máli.

Skal ég ræða hér nokkru nánar þessa hlið málsins. Ég vil hér m. a. benda á, að í nál. á þskj. 343 eru aðeins örfáar línur um þetta mál. Það er ekki einu sinni hugsað um það að láta fylgja nál. bréf eða skjöl, sem n. höfðu borizt. Því er haldið alveg leyndu fyrir hv. þm., svo að þeir fá ekki einu sinni að sjá, hvað í þeim skjölum er. Auk þess hefur hv. frsm. n. alveg gleymt því að lesa nokkuð upp af þessum gögnum hér. Það er eins og hann hafi verið haldinn fyrirskipun, annaðhvort frá hæstv. fjmrh. eða frá félagssamtökunum, um það, að hann mætti ekkert um þessi mál ræða hér, hann mætti sem minnst skipta sér af því og helzt ekki vera við, þegar málið væri rætt. Þannig er frammistaða hv. frsm. meiri hl. í málinu. Hann sagði hér áðan setningu, sem mig stórfurðaði á og verður að skoðast sem stórpólitísk yfirlýsing hér í hv. Alþingi. Hv. frsm. meiri hl. og hv. form. n. sagði, að hann væri hér fulltrúi kvensambandanna á Alþingi. (Gripið fram í.) Ég hef skrifað það orðrétt eftir hv. form. n., og ég skora á hv. form. n. að láta taka það upp af segulbandinu aftur, ef hann vill mótmæla því. Hann upplýsti hér áðan, að hann væri fulltrúi kvensambandanna á Alþingi. Hann afneitar m. ö. o., að hann sé hér fulltrúi ákveðins stjórnmálaflokks. Þetta er alveg nýtt fyrir mér, og það er einmitt þess vegna, eins og hann sagði, sem honum bæri skylda til að fara svona með þetta mál. Síðar á umræðunum kom það fram, að hann var fulltrúi hæstv. fjmrh., eins og ég skal koma síðar að. Um það að hreyfa ekki neinum staf í núgildandi lögum, svo að ekki verði hægt að minnka ágóðann af Áfengisverzluninni og minnka söluna í landinu, vil ég aðeins segja, að það rekst nú kannske nokkuð á að vera fulltrúi kvensambandanna, sem ekki vilja hafa neina vínnautn í landinu, og að vera fulltrúi hæstv. fjmrh., sem ekki vill, að stoppuð sé salan, og óskar eftir, að ágóðinn verði sem mestur af vínsölunni í landinu. Hér stendur vitanlega hv. form. n. á milli tveggja elda — á hér tveimur herrum að þjóna, og það er þess vegna, sem hann hefur ekki manndóm í sér til þess að taka reglulega afstöðu til málsins og ekki heldur manndóm í sér til þess að sitja hér og hlusta á umræður í svo þýðingarmiklu máli.

Ég vil í sambandi við rökstuddu dagskrána leyfa mér að benda á, að eftir því sem upplýst er í grg., sem ég efa mjög að hv. allshn. hafi nokkurn tíma lesíð, sendi mþn. frv. mörgum aðilum til umsagnar. Verður ekki séð, að n. sé þetta kunnugt, enda mun hún ekki hafa lagt svo mikla vinnu í þetta mál, að hún hafi einu sinni kynnt sér grg. Það hefur að minnsta kosti ekki komið fram, hvorki í umr. hér né heldur í nál., að hún viti nokkuð um málið sjálft eins og það liggur fyrir í þinginu. En ég vil benda hv. form. n. á það, að hér stendur á bls. 16, með leyfi hæstv. forseta:

„Hún tók saman fáeinar spurningar (þ. e. a. s. mþn.) varðandi nokkur atriði í sambandi við áfengismálin. Spurningar þessar sendi n. 94 aðilum, — opinberum starfsmönnum og fyrirsvarsmönnum félagssamtaka — sem líklegt þótti að rækilega hefðu hugleitt þetta mál eða hefðu vegna starfa síns eða af öðrum ástæðum sérstaklega náin kynni af vandamálum í sambandi við meðferð áfengra drykkja. Því miður svöruðu aðeins 54 aðilar fyrirspurnum n. og sumir þeirra vikust raunar að mestu undan að svara spurningunum beint.“

Veit hv. form. allshn. um þessi ummæli hér í grg.? Og ef hann veit um þessi ummæli í grg., þá er það hreint og beint manndómsleysi að leggja til að vísa þessu máli frá á þeim rökum, sem hann dregur fram á þskj. 343. Hér hefur mþn. einmitt, eins og ég tók fram í mínni ræðu, aflað ákaflega merkra upplýsinga, innt ákaflega merkilegt starf af höndum í sambandi við undirbúninginn á þessu frv., þó að ég sé henni ekki sammála um niðurstöðurnar. Þessar spurningar eru hér allar til staðar. Svörin eru hér einnig, og hv. allshn. hafði nægilegt efni til að vinna úr til þess að skapa sér einhverja sjálfstæða skoðun í þessu máli. Og ég er alveg viss um það, þó að málið verði sent til nýrrar mþn., sem skipuð er á þann hátt, sem ætlazt er til í rökstuddu dagskránni, að þá koma hér fram á Alþ. fjöldamargar brtt. við það frv., sem þannig kynni að verða lagt fram. Þær kunna að verða 70, og þær kunna að verða tvisvar sinnum 70, svo að sú ástæða er alveg markleysa eln, að víkja frá sér ábyrgð fyrir það, að ekki sé búið að undirbúa málið nægilega vel af þeim, sem til þess voru kjörnir.

Þá sagði hv. 8. þm. Reykv. einnig, að „vegna ýmissa atvika, sem ég tel vera til tjóns, þykir mér betra að láta málið bíða“. Ætlar hv. form. allshn. virkilega að telja okkur trú um það hér í Ed., að þegar málið kemur á ný frá þeim mönnum, sem hér er rætt um að eigi að hafa það til meðferðar og undirbúnings næst, þá verði ekki þar einhver atriði, sem betra væri að láta bíða heldur en að, skapa sér þá ábyrgð að taka afstöðu til þeirra? Ég held, að þetta sé eitt skýrasta tákn um manndómsleysi í stóru máli. Og ef alltaf á að vísa máli frá af því, að það séu einhver atriði, sem að dómi viðkomandi aðila eru til tjóns, þá á maður að kasta frá sér þingmannsábyrgðinni um það og búa til rökstudda dagskrá og vilja ekki sinna málinu. Ég hefði búizt við allt öðru af þingfulltrúa kvensambandanna, sem hefur það á dagskrá sinni að vilja vinna á móti áfengisbölinu í landinu. Meiri manndómur var í því að segja: Ég greiði atkv. á móti þessum atriðum, sem málinu eru til tjóns, og ég tala á móti þeim og berst á móti þeim með hnúum og hnefum, og ég birti öll þau skjöl, sem komu til n. sem mótmæli gegn þessum ákveðnu atriðum. — Í þessu var einhver manndómur. Sannleikurinn er sá, að hv. form. n. og allur meiri hl. hv. allshn. hefur tekið það aumasta hlutverk hér, sem hægt var að taka. Það er að vísa frá máli, sem ekki þolir bið að bætt sé. Og hvers vegna er það gert? Annaðhvort af því, að þessir hv. menn eru bundnir í flokksfjötra og hafa ekki lengur heilbrigða, sjálfstæða skoðun í málinu, eða þeir óttast það, að meiri hl. Alþ. gangi á móti þeim í málinu. Annað getur ekki verið. En fyrir fram er það alls ekki vitað, síður en svo, og alls ekki á þessu stigi málsins er það vitað, að meiri hl. hv. alþm. gangi á móti málinu þann veg að vilja ekki bæta úr því böll, sem vitað er að er í áfengismálunum. Það væri þá fyrst á siðara stigi málsins, er vitað væri, að búið væri að skemma frv. eða færa það í það horf, að menn, sem vildu þessu máli vel, gætu ekki samþ. það, að þeir hefðu getað borið fram rökstudda dagskrá og sagt, að vegna þess að málið sé ekki komið í það horf, sem við viljum, þá berum við dagskrána fram. En það er ekki þannig farið að. Ég verð að segja það, að ég hef aldrei þekkt jafnauma afstöðu í jafnstóru máli eins og hér er á ferðinni: að vera búin að halda þessu máli í n. síðan þing byrjaði, vera búin að fá viðtöl við fjölmarga menn, vera búin að fá fullt af skjölum, birta ekkert af þessu, segja ekkert frá þessu í ræðum né ritum hér, vera ekki við, þegar málið er til umr. og koma svo með fáar línur og segja: Við óskum eftir, að málið sé drepið, svo að ófremdarástandið í málunum geti haldið áfram hjá þjóðinni að minnsta kosti heilt ár enn. — Svo leyfir hv. form. sér að segja, að hann sé fulltrúi kvensamtaka Íslands. Ég mótmæli því alveg. Ég vildi heldur, að hann vildi viðurkenna hér, að hann sé fulltrúi síns flokks, sem hefur sent hann á þing og merkt sér hann hér.

Þá segir hv. frsm., að það hafi komið mótmæli frá öllum um fleiri útsölur. Hvers vegna er alþm. leynt þetta hér? Hvers vegna mega þeir ekki sjá þessi mótmæli, og hvers vegna mega alþm. ekki vita, hvað þau hafa inni að halda, á hverju þau eru byggð, hvort þau eru samstæð sókn gegn ölinu, eða hvort þau eru samstæð sókn gegn einhverju öðru? Hvaða leyndardómur hvílir yfir þessu starfi nefndarinnar? Svo segist hann líka hafa fengið bréf frá sambandi veitingamanna. Hvers vegna má Alþ. ekki fá að sjá þessi bréf? Hvers vegna voru þau ekki birt líka? Þau hefðu þá a. m. k. legið fyrir sem þskj. Ef rökstudda dagskráin er samþ., þá hefðu þó a. m. k. hinir nýju aðilar, sem áttu að vinna að þessu máli eftir uppástungu hv. meiri hl., haft öll þessi gögn í einu skjali til þess að sækja í sína vitneskju og hafa sem leiðarljós við undirbúning löggjafarinnar fyrir næsta þing, en það má ekki heldur vera þannig. Og svo segir hv. frsm., þegar koma mótmæli frá samböndunum, að ekki sé hægt að gera annað en að vísa því frá. Ja, er það nú nokkur manndómur hjá þm., ef mótmæli koma frá einhverjum samböndum eða einhverjum mönnum, að þá eigi menn að leggja niður sína eigin sjálfstæðu skoðun, leggja niður rófuna og segja: Ég vil ekki taka þátt í afgreiðslu þessa máls? — Ég held, að slíkir þm. ættu ekki að bjóða sig fram oftar, því að það er þó fyrst og fremst á valdi þm. að síðustu að segja eitthvað til um mál, sem afgerast á, á Alþ. Þeir áttu að hafa nægilegan manndóm og vizku til þess að geta greint illgresið frá kjarnanum í öllum þeim ummælum og öllum þeim mótmælum, sem komu fram, og segja: Þetta er kjarni málsins. Þessu fylgi ég, hinu hafna ég. En það er ekki það, sem verið er að gera hér, síður en svo.

Ég verð að segja það, að ég vildi ekki óska þess, að hv. meiri hl. þessarar n. yrði valinn af neinum samböndum kvenna eða karla til þess að undirbúa málið í mþn., — þessi meiri hl., sem ekki er fær um að mynda sér neina sjálfstæða skoðun í slíku máli sem hér er á ferðinni, en vill aðeins nota málið sem auglýsingastarfsemi til þess að láta fólkið trúa því, að það sé fylgjandi því, sem það er ekki fylgjandi í raun og veru. Það er alveg sýnilegt, að einmitt þessir menn vilja viðhalda um langt skeið enn þá því ófremdarástandi, sem nú er ríkjandi í þessum málum.

Ef þessi till. verður samþ., þá er það alveg raunveruleiki, að það verður ekki breytt um í þessum málum fyrr en næsta Alþ. hefur fengið tækifæri til þess að segja álit sitt um málið á ný, ef það þá liggur fyrir. Og ef það þá liggur ekki fyrir í meira samhengi en það liggur fyrir nú, þá komast þessir hv. þm., ef þeir eiga að fjalla um það, í nákvæmlega sama vanda, því að ég get alveg fullvíssað þessa hv. þm. um það, að það koma eins mörg mótmæli gegn hvaða niðurstöðu sem menn fá í þessu máli, svo stórt mál er það og svo flókið mál er það.

Þá segir hv. 8. þm. Reykv., og þar kom nefnilega fálkinn að hjartanu: Hvar eiga að koma á móti tekjurnar á þessu fjárhagsári, ef frv. er samþ.? — Það hefur mjög mikinn kostnað í för með sér að samþ. frv., eins og ég einmitt minntist á í ræðu mínni. Það má gera ráð fyrir, að eftirlitið eitt kosti ef til vill 1 millj. kr. Og þá segir hv. þm.: Hvar á að taka tekjur á móti þessu til að standast þennan kostnað? — En ég vil þá spyrja, hvar eigi að koma tekjur á móti, þegar búið er að útiloka sölu áfengis í landinu, eins og kvenfélagasambandið óskar eftir að verði gert. Hvar á þá að taka tekjur á móti? Þar er þó um að ræða hvorki meira né minna en yfir 50 millj. Hér er ekki um að ræða nema innan við 1 millj. eða kannske mínna en það til þess að forða verulegu tjóni hjá þjóðinni, bæði siðferðislega, andlega og líkamlega. Og því sér hv. 8. þm. Reykv. ofsjónum yfir, og það er gott, að kvenfélagasamböndin í landinu viti það; það er gott, að þau viti það, að hv. 8. þm. Reykv. þorir ekki að standa frammi fyrir sínum hæstv. fjmrh., af því að hann er flokksmaður hans, til þess að vera með því, að 1 millj. kr. eða minna en það sé lagt úr ríkissjóði. til þess að þetta mál nái fram að ganga til úrbóta á ástandinu í landinu eins og það er nú. En þarna kom að því, að hann varð tveim herrum að þjóna. Hann var annars vegar að þjóna kjósendunum úti í bænum, heldur, að hann sé að gera þeim gott með því að sýna ekki þennan manndóm, sem ég hef lýst hér, passar sjálfan sig með því að vísa málinu þannig frá, en er svo að þjóna í fullri einlægni sinum ágæta flokki og hæstv. fjmrh. um það að hjálpa til að minnka ekki söluna á áfengi í landinu og minnka ekki eymdina, sem því fylgir, og það er miklu þyngri dómur.

Veit hv. þm., hvernig Framsfl. hefur farið með þessi mál á undanförnum þingum? Ég vil benda honum á það, ef hann ekki þekkir söguna um það, hvernig hann svipti mestu vesalinga landsins, drykkjumennina, þeirra heimili til þess að geta gefið það einum sínum ágæta flokksbróður. Ég vil minna hv. 8. þm. Reykv. á það, hvernig hann síðan vann að því að reyna að koma upp öðru heimili á Úlfarsá, sem aldrei hefur orðið að heimili, af því að bak við það lá engin löngun til þess að gera þar heimill. Ég vil enn fremur leyfa mér að benda honum á, hvernig Framsfl. stöðvaði á síðasta þingi það mál, sem gekk hér í gegnum þessa hv. d., að byggja að nýju heimili yfir drykkjumenn, og að það voru fulltrúar Framsfl. í Nd., sem stöðvuðu málið. Ég vil enn fremur benda honum á, hvernig hann hefur sífellt látið einn af sinum bindindispostulum, Halldór sálmaskáld, halda uppi áróðri gegn þessum málum, hvernig hann er sífellt látinn gera kröfu á Reykjavíkurbæ um að setja upp drykkjumannahæli á Korpúlfsstöðum, bara til þess að slá ryki í augun á fólkinu, en stendur svo algerlega á móti því, að notuð yrðu hundruð þúsunda, sem liggja í sérstökum sjóði hjá ríkissjóði, sem ákveðið hefur verið með lögum að ætti að inna þetta verk af hendi. Ég vil benda honum á þessa raunasögu Framsfl. í þessu máll. og á bak við rökstuddu dagskrána liggur einmitt þessi stefna Framsfl., þessi raunalega stefna Framsfl. í áfengismálunum, bein fyrirskipun til hv. form. n. um að fara þannig með málið. Öðruvísi verður þetta ekki skilið. En þá skal hv. 8. þm. Reykv. ekki vera að flagga með því, að þetta mál sé neitt hugsjónamál fyrir hann, því að það er það ekki lengur.

Hv. form. n. lýsti því yfir áðan, að hann væri sammála mörgum af mínum till. Hvers vegna tekur þá ekki hv. þm. upp hér baráttuna fyrir þeim till., sem hann er raunverulega sammála um, 1 staðinn fyrir að vísa málinu frá? Og hvers vegna tekur ekki hv. 4. landsk. upp það af mínum till., sem er til bóta fyrir málið sjálft? Látum vera, að hann felldi í burtu þær till., sem hann telur vera til bölvunar, en hann á þá að minnsta kosti að taka upp þær till., sem eru til bóta, til þess að sjá, hvort ekki sé hægt að fá þær inn í frv. Og það er fyrst á síðara stigi málsins, að menn, sem einhverja ábyrgð hafa, geta leyft sér að koma fram með rökstudda dagskrá, af því að þá sé málið ekki komið í það form, sem þeir óska eftir, þá sé málíð í lakara formi heldur en gildandi löggjöf. En sannarlega ber öllum hv. þm. skylda til að reyna að bræða hér saman, ef mögulegt er, þær tillögur, sem gera málið þannig úr garði, að það fari út úr þinginu sem betra mál heldur en löggjöfin er í dag, þótt ekki náist allt, sem menn helzt óska. Ég er hér fullkomlega til viðtals um það að fylgja þessu máli, þó að ég fái ekki allar till. mínar samþ. Það er svo, þegar á að ræða um stór mál og mörg sjónarmið koma fram, að menn geta ekki búizt við að fá allt, sem þeir vilja, en ég trúi því ekki fyrr en ég tek á, að það sé ekki hægt að bræða hér saman vilja hv. þm. um það að laga það ófremdarástand, sem nú er í áfengismálunum á Íslandi, þó að ekki sé hægt að stíga þar fullt skref á einu þingi.

Ég ætla þá að segja hér nokkur orð í sambandi við ræðu hv. 4. landsk. og skal nú ekki tefja lengi hæstv. forseta. Hann segir, að það séu meginatriði í frv. að auka vínnautnina í landinu, t. d. ölið. Það er nú alveg sýnilegt, að maður, sem fullyrðir þetta, hefur annaðhvort ekki lesið frv. eða ekki kunnað að draga réttar ályktanir. Það er ekki einn einasti stafur um það í frv., að það skuli veitt öl innanlands til sölu fyrr, en það sé búið að greiða um það atkv. meðal þjóðarinnar, og þá er það þjóðin, sem segir til um það. Og á þá þjóðin ekki að fá að ráða eins miklu í þessu máli og meiri hl. allshn.?

Þá segir hann, að það eigi að neyta áfengis á fleiri stöðum, en nú er og að þetta sé rýmkun frá núgildandi löggjöf. Það er alveg rétt. Við höfum mismunandi skoðanir á því, bæði ég og hæstv. dómsmrh. og margir aðrir, að það sé ekki til tjóns, en ef hv. 4. landsk. telur, að það sé tjón að þessum till., hvers vegna berst hann þá ekki fyrir því og sér, hvað hann fær marga menn með sér, að hrinda þessum ákvæðum úr frv., svo að hann síðar geti séð, hvernig frv. er, þegar það kemur til 3. umr., þá síðast beitt sínu atkvæðavaldi til þess að fella frv., ef það er ekki komið í það horf, sem æskilegt er, áður en það fer hér úr þessari hv. d. Í því væri miklu meiri manndómur.

Svo segir hann, að það sé rétt, að bindindismenn komi þar sínum sjónarmiðum á framfæri. Ég hef nú lýst því hér áður, hvernig bindindismenn og þeirra fulltrúar höfðu öll tækifæri til að koma fram sínum sjónarmiðum við mþn., ekki einasta vegna þess, að þeir áttu þar einn fulltrúa, sem er einn af þekktustu bindindisfrömuðum landsins, heldur einnig vegna þess, að til þeirra eru sendar spurningar, sem þeir eiga svo að svara, auk þess sem þeir gátu svo að sjálfsögðu gert alls konar herferð á sjálfa n., bæði með bréfum, erindum og samtökum, og það er þá fyrir megnasta áhugaleysi þessara manna, ef þeir hafa ekki komið þar fram áhugamálum sínum eða sjónarmiðum.

Ég þarf ekki að endurtaka það, sem ég sagði hér áðan um brtt., 70 að tölu. Þær munu verða 70 eða miklu fleiri, frá hvaða mönnum sem frv. kemur um þetta mál. Hann hélt, að það yrði allmikið handahófsverk, þegar menn ættu að fara að greiða atkv. um hinar einstöku till. Ég vil í sambandi við þetta leyfa mér að benda á, að það er aðeins handahófsverk þeirra þm., sem ekki treysta sér til þess að greiða atkv. eftir sannfæringu sinni, því að þeir gætu ruglazt í fyrirskipunum frá sínum flokkum. Ef það skyldi fara svo, að inn færu einhverjar till., sem ætlazt væri til að væru felldar, eða felldar aðrar, sem ættu að komast inn, þá rugluðust þeir í ríminu og gætu þá ekki fylgt lengur þeirri línu, sem þeim væri fyrirskipað. Það er eins og á meðan kennt var í skólunum utan að og menn gátu lesið heilar greinar, ef þeir voru ekki truflaðir, en ef þeir voru truflaðir í lestrinum, þá fór allt út um þúfur, og þeir urðu að byrja framan frá. Og mér virðist einmitt, að hv. meiri hl. n. sé haldinn slíkum sjúkleika í sambandi við þetta mál, að hann hafi enga sjálfstæða skoðun og fari eftir fyrirframgerðum skipunum sinna flokksmanna.

Þá sagði hv. þm., að hér hefði talað meira form. fjvn. en bindindismaðurinn Gísli Jónsson. Ég vil nú benda honum á í sambandi við þau rök, sem hann færði fram fyrir því, — og hann vísaði til 7. gr., — að sá kafli, sem hann vísar í, er í l. í dag. Það er í l. í dag og hefur verið samþ. hér í þ., að það megi brugga öl fyrir setuliðið. Og það er ekkert sagt hér annað í minni till. Það er hins vegar alveg skýrt tekið fram, að þetta öl megi ekki selja innanlands fyrr en farið hefur fram þjóðaratkv. um það mál. Ég held bara, að það komi hér ekkert fram sjónarmið form. fjvn. Það er nákvæmlega sama sjónarmið eins og ég hef alltaf haft hér áður í þessu máll. Þessi grein var samþ. hér með mínu atkv. Ég man nú ekki, hvort hún var samþ. með atkv. hv. 4. landsk., en það er ekkert nýtt í því máli. Og dagskráin raskar þessu ekkert, þó að hún verði samþ. Þessi ákvæði standa enn. Þau eru alls ekkert frá mér. Þau eru bara tekin upp hér til þess að sýna þetta í einni heild. Það eru því ekkert annað en falsrök, sem hv. 4. landsk. segir um það, að ég sé hér að boða einhverja sérstaka aukna víndrykkju í landinu. Auk þess vil ég segja hv. þm. það, að ég hef ekki verið sannfærður um það enn, að það sé ekki einmitt hægt, eins og ég tók fram í minni ræðu, að draga úr bölinu með því að leyfa öldrykkju í landinu. Ég er alls ekki sannfærður um það, að það sé ekki hægt. Hins vegar legg ég til í minni till., að þetta sé látið á vald þjóðarinnar sjálfrar. Er hægt að sýna meira frjálslyndi í máli heldur en það? Þessi hv. þm. er að reyna að telja hv. meðbræðrum sinum hér í þinginu og systrum, eins og hæstv. forseti sagði áðan, trú um það, að það sé sama og að leyfa ölbruggun í landinu og ölsölu að vera með því, að málið gangi undir þjóðaratkv. Það eru tvö alveg óskyld atriði. — Sömuleiðis segir hann, að 7. brtt. mín bendi til þess, þar sem ég vilji leyfa víðar útsölur heldur en nú er, og vísar þar til minnar brtt. í sambandi við héraðabönnin. Hann hefur bara ekki hlustað á mín rök þá, og ég nenni nú sannarlega ekki að vera að endurtaka þau, og sérstaklega ekki þegar komið er fram yfir fundartímann. En ef hv. þm. hefði hlustað á mín rök, þá vissi hann það, að hér var um hreint réttlætismál að ræða til styrktar bindindisstarfseminni í landinu, en ekki til óþurftar fyrir hana.

Hann sagði að síðustu, að till. mínar sýndu það, að ég hefði haft of nauman tíma til að hugsa um þær. Það getur vel verið, að ég hafi haft of nauman tíma til að hugsa um till. Ég hef samt sem áður haft meiri tíma til þess að hugsa um þetta mál, þó að mér bæri ekki skylda til þess sem nm., heldur en hv. allshn. hefur haft til þess að hugsa um það, því að hún hefur bókstaflega ekki sinnt málinu. Hún hefur að vísu sent út fyrirspurnir. Hún hefur leyft sér að bíða aðgerðalaus eftir svörunum. Og þegar svörin koma, þá velur hún þann kostinn að gefa út nokkrar línur í nál., sem hvorki segir eitt né annað um málið. Það er ekki minnzt á allar þær brtt., sem ég gerði á þskj. 111. Það er ekki minnzt á það í nál., og þó bar n. skylda til þess að athuga þær brtt. allar, sjá, hvernig þær féllu inn í frv. sjálft, og gera sér grein fyrir því, hvernig frv. þá liti út, ef þær hefðu allar verið samþ., eða leggja til að taka það af þeim, sem gott og gilt var frá hennar sjónarmiði, en ekkert af þessu hefur n. gert — ekki eitt einasta atriði. Það er ekki minnzt á þetta. Ég skal ekkert segja um, hvort till. hafi verið lesnar í n., en af þeim skjölum, sem fyrir liggja, eða þeim upplýsingum, sem komið hafa fram, er ekki sýnilegt, að það hafi verið lögð nein vinna í að athuga þessi mál. Sannleikurinn er, að ég hef lagt mjög mikla vinnu í þetta mál, og það er vegna þess, að ég tel, að þetta sé eitt af allra stærstu málum, sem fyrir þessu þingi liggja, og ég tel, eins og ég sagði áðan, að það sé alveg óverjandi að ljúka svo þessu þingi, að ekki verði efnislega greidd atkv. um þetta mál, og jafnvel þótt það nái ekki fram að ganga, þá er það höfuðnauðsyn fyrir þá menn, sem samkv. dagskránni ættu að taka málið til meðferðar á ný, að vita um afstöðu manna hér í þinginu til málsins. Þess vegna má ekki undir neinum kringumstæðum fella frv. nú við þessa umr. eða vísa því frá með því að samþ. dagskrána. Það, sem er réttast, er því að samþ. frv. hér, láta það ganga til Nd. og láta hv. Nd. fara um það höndum í n. og sjá síðan, þegar svo langt er komið, hvort þá sé ekki búið að betrumbæta frv. svo, að það sé orðið betra, en núgildandi lög. En þeir menn, sem ekki vilja það, taka þá ábyrgð á sig, að ófremdarástandið haldi áfram, og þeir skulu sannarlega verða sóttir til þeirrar ábyrgðar á næstu tímum.