16.10.1952
Neðri deild: 9. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í C-deild Alþingistíðinda. (2996)

71. mál, iðnaðarlög

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er árangur af starfi nefndar, sem skipuð var 10. febr. 1950 til þess að endurskoða gildandi lög um iðju og iðnað. Var þetta gert fyrir ákveðin tilmæli samtaka iðnaðarmanna og iðnrekenda. Gildandi lög um iðju og iðnað eru nærri aldarfjórðungs gömul, og þótt þeim hafi verið breytt allverulega árið 1936 og einnig 1940, hefur nú þótt nauðsynlegt að lagfæra þau að nokkru. Í frv. er lagt til, að fyrirkomulaginu á útgáfu iðnleyfa og meistarabréfa verði breytt þannig, að þau verði framvegis öll gefin á einum stað, hjá ráðh., en ekki hjá lögreglustjórum í hverju umdæmi. Er einnig lagt til, að leyfi til verksmiðjurekstrar, sem nú eru staðbundin, gildi framvegis jafnt hvar sem er á landinu. Einnig mundi handhafi iðnaðarleyfis ekki þurfa nýtt leyfi til að hefja rekstur í annarri grein verksmiðjuiðnaðar. Hins vegar er lagt til, að sams konar leyfi og til verksmiðjuiðnaðar þurfi einnig til að reka handiðnaðarfyrirtæki aðrir en meistarar í hverri grein.

Nokkur nýmæli eru í frv., t. d. í 8. gr. þess, um einkarétt iðnaðarmanna til þess að kenna sig í starfsheiti sínu við iðngreinar, sem löggiltar eru samkv. iðnfræðslulögunum, og enn fremur 13. gr., um heimild fyrir ráðh. til að setja reglur um lágmarksgæði iðnaðarframleiðslu.

Í 7. gr. frv. er nokkur breyting. Í gildandi l., 14. gr., er svipað ákvæði og í 7. gr. frv., en nefndin hafði sleppt því, sem aukið er við þá grein í l. nr. 105 frá 1936, um að menn mættu vinna iðnaðarvinnu fyrir sjálfa sig og dyraverðir fyrir hús þau, er þeir gæta í opinberri þjónustu. Nefndin mun hafa sleppt þessu með hliðsjón af því, að í 1. gr. frv. er því slegið föstu, að lögin taki aðeins til iðnaðar í atvinnuskyni, og ef það ákvæði væri skýrt þröngt, mundi vinna manna fyrir sjálfa sig ekki falla þar undir. Þó er hreinna að taka þetta í lögin, eins og gert var í lögunum frá 1936, þar sem opinberum stofnunum er heimilað að láta dyraverði sína og aðstoðarmenn vinna að endurbótum og viðhaldi húseigna eða eigna stofnananna. Með þessu er komið í veg fyrir ýmis vafatilfelli, og má vel segja, að t. d. dyravörður dytti að húsi í atvinnuskyni, og ef sá skilningur væri lagður í málið, væri honum það óheimilt. Gildandi lög hafa verið túlkuð mjög þröngt um vinnu til viðhalds á eignum einstakra manna, og mun þeim talið óheimilt að láta starfsmenn sína vinna slíka vinnu, eins og t. d. að annast málningu eða viðgerð á húseignum. Þetta hefur verið tekið sem heimild upp í þetta frv. og þykir eðlilegt. 7. gr. frv. rýmkar einnig heimildina til þess að ráða ófaglærða aðstoðarmenn svo sem nauðsynlegt er í ýmsum iðngreinum, en samkv. 15. gr. gildandi laga er slíkt aðeins heimilt, ef sérstaklega stendur á, með samþykki stéttarfélags í stuttan tíma.

Loks má benda á, að frv. felur í sér breytingu í lögfestingu gildandi laga á orðinu „iðja“ sem heiti á verksmiðjuiðnaði og „iðnaður“ sem heiti á handiðnaði. Samkv. frv. er ætlazt til, að orðið „iðnaður“ verði löggilt fyrir hvort tveggja.

Að lokinni þessari umr. vil ég leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og iðnn.