15.01.1953
Neðri deild: 50. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í C-deild Alþingistíðinda. (3020)
192. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti.
Frv. þetta er flutt af meiri hl. sjútvn., og er efni þess að nema úr gildi l. nr. 38 frá 1948. En í þessum l. frá 1948, sem afnumin yrðu samkv. frv., er svo fyrir mælt, að saltfiskur skuli vera undanþeginn þeim hluta útflutningsgjalds af sjávarafurðum, sem rennur í Fiskveiðasjóð Íslands samkv. l. um útflutningsgjald, nr. 81 frá 1947. Efni frv. er því að samræma útflutningsgjaldið og auka jafnframt tekjur fiskveiðasjóðs. Til þess er frv. flutt að auka tekjur sjóðsins og þar með möguleika hans til þess að veita stofnlán til vélbátaflotans og fiskiðjuvera, sem reist eru til hagnýtingar sjávarafla í verstöðvum landsins.
Álagning útflutningsgjalds á íslenzkar sjávarafurðir sem og fleiri útflutningsvörur á sér langa sögu. Það var sem kunnugt er upphaflega lagt á sem gjald til ríkisins og var á árunum 1920–40 einn af stærstu tekjustofnum ríkissjóðs. Þessu gjaldi var öðru hverju breytt, en samkv. l. frá 1925 var það 1½% af sjávarafurðum, öðrum en síld, síldarvörum og beinum, en á þann útflutning var gjaldið lagt eftir magni samkv. sérstökum lögum. Þegar fiskveiðasjóður var endurreistur árið 1930, var lagt á viðbótargjald, er renna skyldi til sjóðsins. En um 1940 var svo notkun gjaldsins gerbreytt, því að þá var ákveðið, að gjaldið, sem áður hafði runnið í ríkissjóð, skyldi renna í fiskveiðasjóð, og hefur svo verið síðan.
Nú eru í gildi almenn l. um útflutningsgjald frá 1947. útflutningsgjaldið samkvæmt þeim l. rennur að miklu leyti til fiskveiðasjóðs, en hluti af því rennur þó til annarra aðila: til Landssambands íslenzkra útvegsmanna og til byggingar rannsóknarstofnunar í þágu sjávarútvegsins. Auk þess eru í gildi l. um fiskimálasjóð. Samkvæmt þeim er innheimt af sjávarafurðum ½%, sem rennur í þann sjóð. Einnig má nefna lögin um hlutatryggingasjóð bátaútvegsins, en iðgjöld til þess sjóðs eru greidd af útflutningsvörum bátaflotans, saltfiski eins og öðrum útflutningsvörum.
Það er athyglisvert, að l. frá 1948, sem hér er lagt til að verði afnumin, um undanþágu saltfisks frá gjaldinu, mæla aðeins fyrir um þann hluta útflutningsgjalds af saltfiski, sem fiskveiðasjóður fær. Aðrir aðilar, sem útflutningsgjalds njóta, þ. e. fiskimálasjóður, Landssamband ísl. útvegsmanna og rannsóknarstofnunin, svo og hlutatryggingasjóður, fá útflutningsgjald af saltfiski eins og öðrum sjávarafurðum. Gefur þetta ótvírætt til kynna, að undanþágan sé ekki á fullum rökum byggð, enda er það svo. Þó má segja, að hún hafi áður haft nokkuð til síns máls, því að saltfiskur var um skeið lítt seljanleg vara. En sé athuguð t. d. afurðasalan á árinu sem leið, er ekki hægt að sjá neina skynsamlega ástæðu til þess að undanþiggja saltfisk þessu gjaldi, eða ekki meiri ástæðu heldur en t. d. freðfisk, þar sem sala saltfisksins virðist yfirleitt hafa gengið betur, en sala freðfisksins.
Í grg. á þskj. 499 er nokkuð rakin saga Fiskveiðasjóðs Íslands og starfsemi, og skal ég ekki hafa mörg orð um það efni. En ég held, að flestir, sem hafa einhver afskipti af málefnum vélbátaútgerðarinnar, geti verið sammála um, að nauðsyn beri til þess að efla þessa lánsstofnun, eftir því sem föng eru á. Um það verður ekki deilt, að þörf vélbátaútvegsins og fiskiðjuveranna til stofnlána er mjög brýn. Um það bera gleggst vitni umsóknir þær, er fyrir liggja í fiskveiðasjóði um slík lán. Úr þessari þörf verður að bæta, eftir því sem föng eru á, og virðist einsætt að gera það fyrst og fremst með því að efla hina gömlu lánsstofnun bátaútvegsins, fiskveiðasjóðinn, enda hafa störf hans þótt gefast vel, og á hans vegum hefur um langan tíma verið aflað mikillar reynslu um framkvæmd þessara mála. Ég skal geta þess, að árið 1950 fór stjórn fiskveiðasjóðs þess á leit, að sjútvn. þessarar deildar beitti sér fyrir því, að umrædd l. frá 1948 yrðu afnumin, og færði fyrir því rök. Það varð ekki af því þá, að n. flytti þetta mál. Það var samt flutt á þinginu, en náði ekki samþykki.
Skoðanir geta verið skiptar um það, hvort rétt hafi verið að fara þá leið að afla fiskveiðasjóði starfsfjár með útflutningsgjaldi á sjávarafurðir. Þess er þó að geta, að mikill hluti þessa fjár rann áður í ríkissjóð til annarra þarfa, eins og ég hef sagt, en hefur nú verið fengið sjávarútveginum aftur, þó að það sé notað í hans þágu með sérstökum hætti. Gagnsemi fjárins, eins og það er notað nú, er almennt viðurkennd. Og á það má benda, að fáir eða engir virðast þess fýsandi að rýra lánsmöguleika fiskveiðasjóðs með því að svipta hann þeim tekjum, sem hann nú hefur af útflutningsgjaldinu. En þegar það er svo, að viðurkennt er, að rétt sé að afla honum starfsfjár með slíkum tekjum, þá fáum við, sem að þessu frv. stöndum, ekki séð annað en að rétt sé að samþ. þetta frv., sem hér liggur fyrir.
Ég skal geta þess, áður en ég lýk máli mínu, að núna í byrjun nóvembermánaðar s. l. lágu fyrir í fiskveiðasjóði beiðnir um lán, sem þarf að afgreiða nú á næstu mánuðum, að upphæð samtals rúmlega 6,7 millj. kr. Það er vissulega fróðlegt til athugunar, hvernig þessar umsóknir skiptast eftir tegundum lána. Af þessum 6,7 millj. voru 765 þús. til skipa, til nýrra véla í skip 2 millj., til hraðfrystihúsa 1,8 millj., til fiskimjölsverksmiðja 1,3 millj., til fiskþurrkunarhúsa tæp 700 þús. og til dráttarbrauta 160 þús. Þetta voru allt umsóknir, sem lágu fyrir í fiskveiðasjóði hinn 1. nóv. s. l., og eru samtals að upphæð rúml. 6,7 millj. kr. En af þessum tölum má nokkuð ráða um lánaþörfina og þar með þörf sjóðsins fyrir starfsfé.
Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð. Ég legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. Það er, eins og ég sagði áðan, flutt af meiri hl. nefndar.