19.01.1953
Neðri deild: 52. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (3023)
192. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Frv. þetta felur það í sér, að hækkað verði útflutningsgjald af saltfiski. Gert er ráð fyrir því að taka nú að nýju upp útflutningsgjald af saltfiski til fiskveiðasjóðs. En nú um 5 ára bil eða svo hefur útflutningsgjald af saltfiski til fiskveiðasjóðs ekki verið í lögum. Það þótti full ástæða til þess á árunum 1947 og svo aftur 1948 að afnema þetta gjald af saltfiskinum, þar sem hagur saltfisksframleiðenda þótti vera þannig, að það væri ekki hægt að leggja þetta gjald á. Síðan hafa nokkrum sinnum komið fram raddir um það að taka þetta gjald upp aftur, en það hefur nú ekki fengizt samþ. hér á Alþ. Og nú er að nýju komið fram frv. frá þremur þm. úr sjútvn. þessarar d., en tveir af nm., ég og þm. Borgf., við erum frv. andvígir og höfum ekki viljað standa að flutningi þess.
Það er skoðun mín, að það hafi ekki gerzt þær breytingar hjá saltfisksframleiðendum, að það sé hægt að fara að taka upp þetta gjald. Ég viðurkenni að vísu, að fiskveiðasjóður, sem starfar í þágu útvegsins og veitir lán til ýmissa framkvæmda í þágu sjávarútvegsmálefna, þarf gjarnan að auka tekjur sínar, og ég vildi gjarnan ljá því lið að finna einhver tiltækileg ráð til þess, að hægt væri að auka tekjur Fiskveiðasjóðs, því að hann þarf í rauninni að standa undir allmiklu meiri verkefnum, en hann getur staðið undir nú. Um það er í rauninni ekki ágreiningur meðal okkar í sjútvn. En það er aðeins þetta: Við erum ekki sammála um það, að rétt sé, og það nú á þessum tíma, að auka tekjur sjóðsins á þennan hátt.
Það er vitað mál, að mjög margir fulltrúar sjávarútvegsins eru andvígir því, að þetta gjald verði tekið upp aftur. Sérstaklega hefur nú borið á því, eins og skiljanlegt er, frá hálfu togaraeigenda. Þeir mæla mjög hart á móti þessu, þar sem þeir eru nú þannig settir, að þeir hafa mjög tæpan rekstur og eiga í vök að verjast, eins og alþjóð er kunnugt, og greiða allmikið af framleiðslu sinni einmitt í skatt í þennan sjóð, fiskveiðasjóð. En hins vegar er fiskveiðasjóði þannig háttað, að hann getur yfirleitt ekki veitt togaraeigendum nein lán. Í l. sjóðsins er gert ráð fyrir, að forgangslán úr sjóðnum skuli renna til fiskibáta, sem eru undir 150 smálestir að stærð, og þar sem verkefni sjóðsins er í þeim greinum ærið nóg, þó að hann að vísu gefi sig að ýmsum öðrum smærri þáttum, þá útilokar þetta í rauninni með öllu togaraeigendur frá að geta fengið nokkuð úr þessum sjóði, svo að það er ofur skiljanlegt, þegar tekið er tillit til fjárhagsástæðna þeirra og svo þess, að þeir greiða þegar allmikið gjald til þessa sjóðs, að þá færist þeir undan, að það verði enn bætt við álögum á þá, sem ættu að renna til þessa sjóðs.
Nokkuð svipað er að segja um fulltrúa bátaútvegsins. Þeim þykir, að þeir greiði ærið nóg af framleiðslu sinni í beinu útflutningsgjaldi til þessa sjóðs og að það sé ekki á það bætandi eins og nú standa sakir.
Þau rök hafa komið fram frá þeim, sem standa að þessu frv., að vegna þess að gjald hafi verið lagt á hraðfrystan fisk og ísvarinn fisk og ýmsar aðrar útflutningsvörur báta og togara til þessa sjóðs, þá sé í rauninni ekki nema sanngjarnt eða eðlilegt, að einnig verði lagt gjald á saltfisk. Vitanlega þarf það ekki svo að vera, þó að þessir aðilar, sem vinna að framleiðslu þessara vara, greiði nú þegar allmikið fé í sjóðinn af sumum greinum af sinni framleiðslu, að þá sé nauðsynlegt að skattleggja allar greinar þeirrar framleiðslu til sjóðsins. Það er vitanlega engin nauðsyn að gera það, og miklu væri æskilegra að finna fiskveiðasjóði einhverja aðra heppilegri tekjustofna heldur en að fara sí og æ inn á þá braut, ef á að efla lánasjóði útvegsins, að leggja þá gjöld á útveginn sjálfan, því að það kemur vitanlega sjávarútveginum ekki nema að mjög takmörkuðu gagni.
Eins og ég hef gert hér áður, þá vil ég lýsa því yfir, að ég er eindregið á móti þessu frv., tel, eins og útlitið er núna í saltfiskssölumálum okkar, að það sé sízt ástæða til þess nú. En nú horfir þar á ýmsan hátt þunglegar, heldur en gert hefur um langan tíma að undanförnu, eins og hér hefur verið margsinnis upplýst af mörgum mönnum hér á Alþ.
Við, sem erum í minni hl. í þessu tilfelli í sjútvn., erum eindregið á móti því, að þetta frv. nál hér fram að ganga, eins og við höfum verið hér áður, þegar það hefur verið sýnt hér á Alþ.