03.02.1953
Efri deild: 65. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (3046)
194. mál, sparisjóðir
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Það er einungis vegna þess, að því hefur verið haldið fram, að það væri sérstakur fjandskapur við Landsbankann, ef menn vildu ekki láta hann taka þetta eftirlit, og eins, að það hlyti að búa eitthvað annað undir, ef menn væru ekki því sammála. Ég vil algerlega mótmæla þessu tvennu varðandi mig, út af þeim orðum, sem ég mælti.
Það er öllum bæjarbúum kunnugt, sem fylgdust með á sínum tíma þegar Sparisjóður Reykjavíkur var stofnaður, að þá var það gert í nokkrum blóra við Landsbankann, og á fyrstu árum þeirra tveggja stofnana var mikill rígur á milli þeirra með þeim hætti, að sþarisjóðurinn hefði þá áreiðanlega talið það fullkomin fjörráð við sig, ef Landsbankinn hefði verið settur yfir hann á þann veg, sem þetta frv. segir til um. Nú hafa atvik að vísu mjög breytzt í þessu, þannig að sá andi er sem betur fer alls ekki á milli þessara stofnana, sem eitt sinn var. En hinu er ekki að leyna, að það er samkeppni á milli þessara sparisjóða, sem þarna er um að ræða, og það er engan veginn heppilegt og ekki líklegt til þess að efla þann samstarfsvilja, sem þarf að vera, ef önnur stofnunin á með þessu móti að eiga kost á því að fylgjast með hinni í einu og öllu. Þetta vil ég benda á. Þetta eru eingöngu málefnalegar ástæður, koma ekkert við þeim manni, sem gegnir starfanum núna, og koma ekkert við því, hvort hægt sé að finna aðra skipan til þess að leysa þetta mál.