11.11.1952
Neðri deild: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í C-deild Alþingistíðinda. (3077)

135. mál, lánsfé til íbúðabygginga

Flm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt nokkrum flokksbræðrum mínum að flytja hér á þskj. 192 frv. til l. um heimild handa ríkisstj. til öflunar lánsfjár til íbúðabygginga og í því sambandi till. um eflingu Veðdeildar Landsbanka Íslands. Ég vildi leyfa mér að fylgja þessu frv. úr hlaði með nokkrum orðum fram yfir það, sem grg. gerir grein fyrir tilgangi þess.

Á síðasta Alþ. var samþ. till. til þál. frá okkur hv. 7. þm. Reykv. um lánveitingar til íbúðabygginga, og var efni þeirrar till. að fela ríkisstj. að láta safna ýtarlegum skýrslum um lánveitingar til íbúðabygginga og leggja svo fyrir Alþ., á grundvelli þeirrar rannsóknar, till. til úrbóta, sem við það miðuðust, að hægt sé að fullnægja eðlilegri lánsfjárþörf til þess að útrýma heilsuspillandi íbúðum og bæta úr húsnæðisskortinum. Þessi till. var samþ. á síðasta þingi. Þá voru, eins og hv. þm. rekur minni til, einnig fluttar og á döfinni ýmsar aðrar till. og frumvörp í sambandi við húsnæðismálin, og ég hygg, að þær umr., sem um þessi mál urðu þá, hafi m. a. þegar borið nokkurn árangur á síðasta þingi. Á ég þar við till. frá ríkisstj., sem fram komu í lok þingsins um það að verja 12 millj. kr. af tekjuafgangi ríkissjóðs árið 1951 til íbúðabygginga, sem skipt var þannig, að 4 millj. voru ætlaðar til lána til smáíbúðabygginga, 4 millj. átti að lána byggingarsjóði verkamanna og 4 millj. bæjarfélögum, sem stæðu í því að byggja sjálf og með það fyrir augum að útrýma heilsuspillandi íbúðum. Á hinn bóginn er mér ekki kunnugt um og held, að fyrir þm. yfirleitt liggi engar grg. um það, að sú rannsókn hafi verið látin fara fram eða sé lokið, sem þáltill. í fyrra gerði ráð fyrir og lagði fyrir hæstv. ríkisstj. Hins er aftur að minnast, og er það vel, að í upphafi þessa þings lagði hæstv. ríkisstj. fyrir frv., þar sem hún fer fram á, að ríkisstj. sé veitt lánsheimild allt að 16 millj. kr., sem ætlunin er að lána aftur lánadeild smáíbúða. Það komu hins vegar fram á þinginu í fyrra mismunandi skoðanir um það, hvar ætti að bera niður í þessum efnum, hverjum tökum ætti að taka þessi mál í heild, og það er svo enn á þessu þingi, að það fara nokkuð á dreif till. þm. um það, hvernig ráða beri bót á þeim vanda, sem lánsfjárskorturinn í þessu efni hefur í för með sér. Ég er þess vegna sömu skoðunar eins og í fyrra, að það sé mjög mikils virði, að framkvæmd sé og lokið þeirri rannsókn, sem þáltill. gerði ráð fyrir, sem ég hef minnzt á, frá okkur hv. 7. þm. Reykv. Sannleikurinn er sá, að einstakir þm. eiga síður en svo greiðan aðgang að því að gera sér grein fyrir eða að fá upplýsingar um lánveitingar úr hinum einstöku sjóðum og stofnunum og með hvaða kjörum lánin hafa verið veitt. Og þó að það hafi komið fram hér, sem mig rekur nú minni til, undir meðferð þessara mála í fyrra, að það þyrfti ekki að fela ríkisstj. slíka rannsókn, en þingnefndir gætu annazt hana, þá er það sannast að segja svo, að n. hér í þinginu, sem fá mál til meðferðar, hafa mjög takmarkaða aðstöðu og takmarkaðan tíma til þess að fá ýtarlegar upplýsingar og framkvæma ýtarlegar rannsóknir, og hv. þm. vita það allir, að það er mjög undir hælinn lagt, hver svör þn. fá, þegar þær senda frv. og mál til umsagnar, og oft eru þær miklu lengur að berast heldur, en óskað er eftir. Ég hygg til dæmis, að smáíbúðabyggingarnar séu með þeim hætti, að það væri einkar fróðlegt fyrir hv. þm. að fá um það skýrslugerð, hvaða aðstöðu þeir menn, sem í þessar byggingar lögðu, höfðu til þess að afla sér lánsfjár í þessu skyni. Þeim var gert það að senda inn ásamt lánbeiðni sinni ýmsar upplýsingar um möguleika sína til lánsfjáröflunar annars staðar frá heldur, en úr smáíbúðadeildinni. Við vitum, að þær 4 millj., sem sú deild hafði yfir að ráða, hrukku skammt, og eru náttúrlega hæg heimatökin að fá greinargerðir um það, að hve litlu leyti það lánsfé nægði. En það hljóta einnig í fórum lánadeildarinnar að liggja fyrir allýtarlegar upplýsingar um möguleika manna til lánsfjáröflunar að öðru leyti.

Þessu hef ég viljað vekja athygli á til þess að árétta það, hversu hægara væri um vik, bæði fyrir einstaka þm. og þn., að starfa að þessum málum, ef fyrir lægi nú sú rannsókn, sem ég hef vikið að.

En um þetta frv., sem hér liggur nú fyrir til umræðu, er það að segja, að í aðalatriðum er tilgangur þess að efla þá stofnun, sem ætti að vera aðalfasteignalánastofnun landsmanna, sem er veðdeild Landsbanka Íslands, er stofnuð var með löggjöf árið 1900 og hefur átt á þessari öld að sinna því hlutverki að lána landsmönnum út á byggingar þeirra. Ég hygg, að mönnum blandist ekki hugur um það, að það sé mjög mikil nauðsyn að efla einmitt þessa lánastarfsemi, sem hér er um að ræða, vegna þess, í hversu ríkum mæli hún hefur raunverulega — raunverulega, segi ég — lagzt niður hin síðari árin. Það er gert ráð fyrir því eftir l. um veðdeild Landsbankans, að veðdeildin láni eftir vissum reglum út á 1. veðrétt. En þannig hefur það verið hin síðari ár, að slík lán hafa engin verið veitt í reiðu fé, eða a. m. k. að mjög litlu leyti, en nærri því eingöngu með því að láta mönnum í té verðbréf, sem menn síðan hafa átt mjög erfitt með að gera sér mat úr, þannig að þeir hafa þurft að selja þau með gífurlega miklum afföllum.

Eins og fram kemur í grg. fyrir þessu frv., þá hefur einu sinni áður verið tekið með mjög svipuðum hætti á vandamálum veðdeildarinnar og útlánastarfseminnar til íbúðabygginga. En það var fyrir 25 árum. Þá þótti það vera eðlilegt hlutverk ríkisstjórnar Íslands að beita sér fyrir því að gera veðdeildinni kleift að sinna sínu hlutverki sem aðalfasteignalánastofnun landsmanna. Það er þess vegna í þessu frv. gert ráð fyrir í aðalatriðum sömu aðferð og var viðhöfð hér á Alþingi 1926 og 1927, að í fyrsta lagi beiti ríkisstj. sér fyrir því að afla allt að 30 millj. kr., sem varið sé til þess að kaupa bankavaxtabréf af veðdeildinni. Veðdeildinni er svo ætlað að lána út andvirði þeirra, en að vísu með nokkuð sérstökum hætti, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. og nokkuð er frábrugðinn þeim reglum, sem veðdeildin hefur lánað út eftir fram að þessu. En þessar sérreglur, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, eru hins vegar miðaðar við þær aðstæður, sem eru í þjóðfélaginu í dag. Í fyrsta lagi er hækkað verulega það hámark, sem veðdeildin mætti lána til byggingar út á 1. veðrétt, og auk þess er tekið upp það nýmæli að veita heimild til þess að lána gegn 2. og 3. veðrétti til þess að ljúka byggingum eða greiða eftirstöðvar byggingarkostnaðar. Þetta nýmæli byggist af hálfu okkar flm. á því, að þess verður mjög vart í dag, að það er fjöldi manna, sem berst í bökkum með að ljúka byggingum og þarf í raun og veru mjög lítið fé, hefur í fyrsta lagi kannske fengið takmarkað eða naumast nokkurt lánsfé, þurft þó að binda 1. veðrétt í afar litlum lánum og mundi að verulegu leyti bjargast, þótt ekki væri hægt að veita nema óveruleg lán út á hvort heldur sem væri 2. eða 3. veðrétt. Og það er kannske varla nokkuð, sem speglar vandræðin og öfugstreymið í þessum málum nú meira, heldur en það, að það skuli vera svo, að menn, sem hafa komið upp ágætis íbúðum, sem naumast hvíla á nokkrar skuldir, skuli berjast í bökkum við að fá lánaða nokkra tugi þúsunda króna út á slíkar byggingar.

Samkvæmt lögunum um lánadeild smáíbúðanna, sem samþ. voru á þinginu í fyrra, er gert ráð fyrir því, að lánadeild smáíbúðanna geti lánað 30 þús. kr. að hámarki gegn 2. veðrétti. En samkvæmt þeim lögum var einnig gert ráð fyrir, að þá mætti ekki hvíla á viðkomandi eign meira en 60 þús. kr. á 1. veðrétti, og skyldi maður þá ætla, að í því hafi í raun og veru falizt sú skoðun löggjafans og stjórnarvaldanna á þeim tíma, að viðkomandi menn ættu að eiga þess nokkurn kost að útvega sér þessi 1. veðréttar lán, allt að 60 þús. kr. En það mun vera mjög fjarri því, að menn hafi átt þess kost. Eins og fram kom í umræðunum í fyrra, þá mun það aðallega vera í sambandi við sérstaka aðstöðu manna. Opinberir embættismenn og starfsmenn ríkisins hafa haft allgreiðan aðgang að lánum úr lífeyrissjóði, sumir hafa einhvers konar aðgang að lánum úr eftirlaunasjóðum hjá stofnunum, sem þeir hafa unnið við, byggingarsjóður verkamanna hefur haft yfir nokkru fé að ráða o. s. frv. En almennt má segja, að mönnum hafi verið lokaðar dyr til þess að fá lán út á fasteignir sínar eða þau hús, sem þeir hafa átt í smíðum. Ef nokkur veruleg átök eiga því nú að gerast í þessum málum, að gera mönnum kleift að fá eðlileg lán út á fasteignir sínar, þá hygg ég, að menn gætu orðið nokkuð sammála um, að fátt sé eðlilegra en að efla veðdeild Landsbanka Íslands í þessu augnamiði, og hafa enda komið fram raddir um það æ ofan í æ hér á þinginu á undanförnum árum, þó að ekki hafi orðið úr.

1. gr. þessa frv. felur ríkisstj. það hlutverk eða veitir henni þá heimild að taka að láni allt að 30 millj. kr., sem síðan yrðu veittar til íbúðabygginga. Eins og fram kemur í grg., þá getum við flm. þessa frv. ekki um það sagt á þessu stigi málsins, hvernig hæstv. ríkisstj. muni bregðast við þessari lánsheimild eða hvaða möguleika hún muni hafa til þess að hagnýta sér hana. En eins og það hefur komið fram hér á þinginu, að ýmis önnur mál eru við það miðuð að afla erlends lánsfjár til þeirra framkvæmda, sem fyrirhugaðar eru, þá höfum við bent á, að það komi vissulega til greina nú að útvega erlent lánsfé til íbúðabygginganna, og engu síður ætti það að vera kleift fyrir okkur þjóðhagslega en það var á árunum 1926 og 1927. Sú lánsheimild, sem hér er farið fram á, er vissulega minni í raun og veru heldur en sú lánsheimild, sem Alþ. veitti ríkisstj. á árunum 1926–1927, miðað við þær verðbreytingar, sem orðið hafa á þessum tíma. en hámark þeirrar lántökuheimildar var 4¾ millj. kr.

Þá er einnig vikið að því í grg. frv., að það hefur nokkuð verið látið hilla undir það hér á þinginu í fjárlagaræðu hæstv. fjmrh., að á döfinni væri að koma á laggirnar hér framkvæmdabanka eða fjárfestingarbanka í sambandi við ráðstöfun mótvirðissjóðsins. Í því sambandi teljum við eðlilegt, að það komi til athugunar undir meðferð þessa máls hér í þinginu, að hve miklu leyti kynnu að opnast einhverjir nýir möguleikar í sambandi við það mál fyrir úrlausn þess frv., sem hér liggur fyrir.

Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta mál að svo komnu, en vildi mega vænta góðs stuðnings hv. þm. og vil leyfa mér að leggja til, að frv. fari til hv. fjhn. og 2. umr. að lokinni þessari umræðu.