28.10.1952
Neðri deild: 16. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í C-deild Alþingistíðinda. (3111)
102. mál, Háskóli Íslands
Magnús Jónsson:
Hv. 3. landsk. þm. fór hér nokkuð geyst af stað og taldi, að við hv. 2. þm. Reykv. hefðum ekki vitað hið minnsta, um hvað við vorum að ræða eða hvað það væri sem fælist í þessu frv. Þetta náttúrlega út af fyrir sig væri mjög leiðinlegt, ef satt væri, en því miður benti nú ýmislegt til þess, að jafnvel hv. 3. þm. Reykv., sem eftir því sem hann sjálfur sagði á sæti í háskólaráði, virðist ekki heldur til hlítar hafa gert sér grein fyrir, hvað í þessu frv. stendur, og a. m. k. var þannig útlagt sumt af því, að mér þykir það einkennilegt, ef þar hefur verið sá skilningur að baki, sem æskilegur hefði verið hjá þeim, sem á frumkvæði að málinu. En ég ætla nú að leyfa mér að víkja að síðasta atriðinu, sem hann ræddi í sínu máli og hæstv. ráðh. líka kom inn á, enda þótt það sé nú að vísu ekki neitt höfuðatriði málsins, en það er í sambandi við íþróttaskylduna. Hann upplýsti það, að hann persónulega væri og hefði verið algerlega andvígur íþróttaskyldu í háskóla og teldi hana óeðlilega. Hins vegar hélt hann því fram, að ég hefði gefið í skyn, að ég teldi íþróttaskyldu eðlilega, í minni ræðu. Ég skil ekki, hvar hv. þm. hefur fundið það út úr minni ræðu, að ég teldi íþróttaskyldu eðlilega. Hitt er allt annað mál, að ég sagði það eitt, sem ég stend við, að mér fyndist eðlilegt, að það væru íþróttir kenndar við háskólann, og það væri ekkert óeðlilegt við það, þó að það væri gert ráð fyrir því, enda þótt það snerti ekki námið í einstökum deildum, að stúdentar stunduðu íþróttir. Það er við alla háskóla gert. Ég efast satt að segja um það, að það sé við aðra háskóla, — ég skal að vísu játa, að ég hef ekki fulla þekkingu á því, — en mér finnst það harla einkennilegt, ef það er í lögum skóla, að menn fái alls ekki að ganga undir próf, nema þeir hafi lokið tilskilinni tímasókn í leikfimi.
Hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði algerlega misskilið þetta mál. þar sem ég hefði haldið því fram, að það væri sett að skilyrði að taka eitthvert próf í íþróttum. Það var ekki heldur rétt, að ég hefði sagt, að það væri gert ráð fyrir að taka próf. Mér er vel kunnugt um það, að í gildi er ákvæði um það, og er það framkvæmt á þann hátt, að menn verða að sækja tilskilinn kennslustundafjölda til þess að fá að ganga undir próf í sinni námsgrein. Hitt sagði ég, sem ég vil endurtaka, að mér finnst íþróttir út af fyrir sig vera ákaflega óskyldar þeim fræðigreinum, sem verið er að kenna við háskólann, og að það eigi að vera að setja manni stólinn fyrir dyrnar um, að hann fái próf í sinni námsgrein, ef hann ekki hefur sótt leikfimi 60 eða 80 tíma, — eða ég man nú ekki, hvað það er mikið, — það finnst mér ákaflega hæpið og ekkert líklegt til að auka neitt andlegan þroska stúdentanna eða hæfni þeirra til þess að sinna sínum verkefnum í lífinu.
Hv. 3. landsk. lagði á það mikla áherzlu að hafa uppi lögfræðilega túlkun á 3. málsgr., með það í huga sýnilega að draga athyglina frá síðustu setningunni varðandi kennsluna í íþróttum, og sagði, að vitanlega ætti síðasta málsgr. um, að það ætti að gera strangari kröfur til nemenda við próf, við alla þessa málsgr., en ekki síðustu setninguna. Vitanlega á það við alla málsgr., en það á einnig við síðustu setninguna, og það liggur í hlutarins eðli eftir orðalagi 3. málsgr., að ef stúdent hefur lokið öllum námskeiðum öðrum en leikfimi og ef hann ekki hefur lokið því, þá er ekki aðeins heimilt, eins og hann sagði, að sumir prófessorar hefðu nú tíðkað til þessa og vildi nú ekki halda fram að væri í alla staði æskilegt, — þá er það ekki aðeins heimilt, heldur skylt að beita stúdentinn þyngri prófkröfum heldur en ella hefði verið. Þetta álít ég, — og getur það einnig verið svar við orðum hæstv. menntmrh., — þetta álít ég og staðhæfi, að sé nýtt, íþróttaskylda er ekkert nýtt, ég veit það vel, en það er nýtt að slá því föstu, að það skuli, ef nemandi hefur ekki innt þetta af hendi, gera þyngri kröfur til hans um próf í sinni aðalnámsgrein heldur en ella hefði verið. Ég geri ráð fyrir, eins og orðalag greinarinnar er nú í lögunum, að þá mundi vera heimilt að neita manni algerlega um að ganga undir próf, og ég álít, að það væri nú miklu hreinna, ef á annað borð á að hafa slík þvingunarákvæði, heldur en að slá því föstu, að það eigi sem sagt að gera meiri kröfur til hans og spyrja hann þyngra út úr í læknisfræði eða lögfræði fyrir það, að hann hafi ekki stundað leikfimi.
Það má auðvitað ræða þetta mál fram og til baka, en mér finnst, að hv. 3. landsk. hafi einmitt í sinni ræðu hér slegið því allt of föstu, að í háskólanum ættu að gilda svipuð sjónarmið eins og í menntaskólum. Ég man eftir því, að fyrir æði löngu voru innleiddar í háskólanum, að því er mér skildist eftir till. þessa hv. þm., svo kallaðar námsferilsbækur, þar sem var gert ráð fyrir því, að skráð væri tímasókn nemenda og prófessorunum gert það að skyldu. Það var meira að segja gefið ákveðið í skyn af háskólaráði þá, að menn mundu ekki fá styrki, ef þeir hefðu ekki sýnt tilskilda tímasókn, og menn urðu að leggja fram vottorð þá, man ég, um það, að þeir hefðu sótt tíma í tilteknum fögum, til þess að þeir gætu vænzt þess að fá styrk. Og ég man sérstaklega eftir því vegna þess, að það stóð þá þannig á eitt sinn, að ég hafði þurft eitt missiri að vera að verulegu leyti frá námi, vegna þess að ég þurfti að vinna fyrir mér, og hafði þess vegna ekki getað stundað nám í nokkra mánuði og hafði sótt fáa tíma. Ég man það að vísu, að ég var ekki látinn gjalda þess að lokum. og stafaði það m. a. af því, að prófessorarnir tóku ekki allt of háalvarlega þessar námsferilsbækur og gáfu nú gjarnan vottorð, þó að það væri ekki alveg strengilega í samræmi við tímasóknina. Ég álít, að það verði að minnsta kosti að taka það alvarlega til athugunar, að það sé ekki verið með því, sem hér er verið að gera, að torvelda stúdentum möguleika til þess að afla sér þeirrar þekkingar, sem hugurinn girnist, eins og hv. 3. landsk. segir réttilega að sé andi og kjarni hins akademíska frelsis.
En þá kem ég einnig að öðru, sem mér finnst að ekki hafi verið tekið til greina við þær reglur, sem háskólaráð er að óska eftir. Mér virðast reglurnar einmitt benda til þess, að háskólaráð geri ekki ráð fyrir, að það sé ýkja mikil löngun hjá stúdentum til að læra; ef það er út frá því gengið, að það sé nauðsynlegt sífellt að ganga lengra og gera ríkari kröfur um tímasókn og skyldu nemenda til þess að sækja tíma, þá sé ekki gengið út frá því, að þeir nemendur, sem háskólanám stunda, hafi ýkja mikinn áhuga á því sjálfir, margir hverjir, að stunda sitt nám. Ég vil nú leyfa mér að halda því fram, að minnsta kosti eins og nú standa sakir um aðstöðu manna til náms, bæði í háskóla og öðrum skólum, að þá hef ég litla trú á því, að stúdentar muni almennt vilja vera lengur við nám, en þeir nauðsynlega þurfa. Ég álit, eins og ástatt er um getu manna og möguleika til að afla sér fjár til að kosta sitt nám, þá sé því þannig háttað nú, að allur þorri stúdenta muni áreiðanlega ekki draga lengur, en honum er óhjákvæmilegt að ljúka sínu námi. — Hv. 3. landsk. sagði, að þessar reglur, sem hér væri farið fram á að setja, skertu ekki á nokkurn hátt aðstöðu þessara manna til náms. Nú er því hins vegar slegið föstu af honum, að það eigi að setja vissa lágmarksskyldu um tímasókn, og enn fremur gert ráð fyrir því, að það kunni að verða prófaðir þyngra þeir menn, sem ekki hafa sótt tíma, og telur hann, að það lögmál gildi við aðra skóla og þá m. a. við utanskólanemendur við menntaskóla. Þetta álit ég að geti nú haft sín áhrif í þá átt að torvelda stúdentum, sem verða að vinna fyrir sér, að þeir geti lokið sínu prófi á sama hátt eins og aðrir stúdentar. En það álít ég að sé grundvallaratriði þessa máls, og vil ég þá taka undir það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, — að háskólinn á að skapa mönnum möguleika til þess að geta aflað sér fræðslu. Það verður að ganga út frá því, að stúdentar séu það þroskaðir menn, — einhvern tíma kemur að minnsta kosti að því, að menn verða að bera ábyrgð á sínum eigin gerðum í lífinu, og ég skil ekki í því, að það sé ekki tími til þess kominn, þegar menn eru búnir að ljúka námi í menntaskóla um tvítugsaldur, að þá verði menn að taka afleiðingunum af því sjálfir, ef þeir hafa ekki manndóm eða þrótt til þess að stunda nám sitt sómasamlega. Og ég hygg nú, að það sé nokkuð rangt með faríð að halda því fram, að það sé miklum mun dýrara fyrir þjóðfélagið, þó að það séu skráðir nokkru fleiri stúdentar í háskólann og ef þeir ekki stunda nám þar, heldur en ella, því að ég geri ekki ráð fyrir, að það auki neitt kostnað við rekstur háskólans, þó að það sé gert ráð fyrir því, að ekki séu settar sérstakar hömlur á nemendur um tímasókn.
Ég álít sem sagt, að það verði í sambandi við þetta mál, sem hér liggur fyrir, að taka þessi atriði, sem ég hef minnzt á, til rækilegrar athugunar, áður en slík lagasetning er sett sem hér er gert ráð fyrir, því að hvað sem hæstv. ráðh. og hv. 3. landsk. segja, þá er það augljóst mál öllum, sem til þekkja, að hér er að sjálfsögðu gert ráð fyrir, að beitt verði nú þyngri reglum og þrengri um frelsi stúdenta til náms í háskólanum. Það felur frv. augljóslega í sér, og þýðir þar ekki að ganga fram hjá þeirri staðreynd. að það atriði verður ekki dulið. Og hvort sem sú regla er sett með beinu lagaákvæði eða með heimild til handa háskólaráði, sem hv. 3. landsk. vildi gera mikinn mun á, þá er það að sjálfsögðu augljóst, að það skiptir harla litlu máli, því að heimildin mun að sjálfsögðu verða notuð í þeim anda, sem fram á hana er farið í lögunum sjálfum.
Ég álít, að það verði að leggja áherzlu á það við háskólanám og í öllu starfi háskólans, til þess að vinna sem mest gagn fyrir þjóðina, að stuðla að því á pósitívan hátt með því að auka áhuga nemendanna á sínum viðfangsefnum, með því að glæða metnað þeirra til þess að leysa sín verkefni vel af hendi, en ekki með negatívum aðgerðum eins og hér er farið inn á, að það eigi að stefna að þessari leið með höftum og bönnum, vegna þess að ég er sannfærður um, að sú leið verður ekki til þess að stuðla að auknum veg háskólans eða til þess að stuðla að því, að út úr honum skrifist hæfari menn til verka í sínum fræðigreinum heldur en ella hefði verið, ef menn hefðu almennt hið svo kallaða akademíska frelsi til þess að læra það, sem hugurinn girnist, og á þeim tíma, sem þeir telja sér fært. Það er ekki hægt að miða almennar reglur við það, að það séu einstaka nemendur, sem slugsa við nám og séu óhæfir til þess að stunda það. Það eru alltaf aðferðir fyrir háskólann til þess að koma í veg fyrir slíkt án lagasetningar, en ég álit, að það megi ekki taka slíkar undantekningar og gera að meginreglu og setja lagaákvæði út frá því.