28.10.1952
Neðri deild: 16. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í C-deild Alþingistíðinda. (3115)

102. mál, Háskóli Íslands

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég er hálfhissa á þessum þjósti, sem hv. 3. þm. landsk. hefur hér í frammi í sambandi við þetta. Hann segir, að það sé verið að leggja eitthvað skakkt út úr frv., þegar við tölum um, að það sé verið t. d. að skapa þyngri próf fyrir þá, sem hafi kannske að miklu leyti verið utanskóla, heldur en hina, sem hafa setið í skólanum. Það stendur hérna: „og skal þá gera strangari prófkröfur“ — og í grg. stendur: „að auka aðhald“. Það er ekki verið að tala um að gera þá linari prófkröfur til hinna, sem sækja kennslutímana. Ég skil bókstaflega ekki í þeim hugsunarhætti, sem einkennir ræðu hv. 3. landsk. í þessum efnum. Hann talar um, að það væri einhver goðgá, ef menn ættu að hafa sama rétt, þegar þeir ganga undir próf, ef menn hafa ekki sótt tímana hjá prófessorunum. Ég álít, að það eigi að vera jafnrétti í háskólanum, jafnrétti fyrir þann mann, sem prófessorinn ekki þekkir, og fyrir þann mann, sem hefur setið á skólabekknum hjá prófessornum allan tímann; jafnrétti fyrir þann mann, sem er of fátækur til þess að geta kostað sig hér í Reykjavík, og þann, sem á nógu ríka að til þess að geta verið hér allan tímann. Ég álít, að það eigi að vera algert jafnrétti í þessu, og ég álít, að það sé ekkert í núverandi háskólalögum, sem gefur mönnum rétt til þess að gera upp á milli þeirra, en það er verið að gera með þessu, það er meira að segja verið að gera það að skyldu. Þetta vildi ég bara biðja hv. 3. landsk. þm. að athuga. Það eru ekki prófessorarnir, sem eiga að vera þeir æðstu aðilar í þessu efni til þess að dæma, jafnvel þó að þeir þekki ekki manninn. Þá má gjarnan útskrifa menn, sem prófessorarnir þekkja ekki, ef þeir standa sig í þeim prófraunum og þeim kröfum, sem gerðar eru almennt til þeirra manna, sem útskrifaðir eru úr háskólanum. Ég vil bara minna á, hvert er verið að stefna með því að fara að mismuna á þennan hátt, eins og þarna er verið að stefna að. Það var fyrir 100 árum gefin út bók hér á Íslandi, sem hét „Stafrófskver fyrir heldri manna börn“, og mér sýnist verið að stefna að því að fara að gera háskólann meira að kennslubekkjum fyrir heldri manna börn úr Reykjavík, en útiloka þá, sem eru of fátækir til þess að geta verið hérna.