10.10.1952
Neðri deild: 6. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í C-deild Alþingistíðinda. (3140)
21. mál, verðlag
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Ég hafði nú ekki hugsað mér að taka upp neinar kappræður við hv. 3. landsk. út af þessu máli, sem hér liggur fyrir, enda hafði ég ekki búið mig undir slíkt, þótt hann auðsjáanlega hafi tekið upp bæði gamlar og nýjar lummur í þessu efni, sérstaklega staðhæfingu um milljóna álagningu, sem vægast sagt er litið samvizkusamlega upp tekin og ekki hægt að styðja með neinum óyggjanlegum rökum. Hann gat þess í lok ræðu sinnar, að það liti út fyrir, að bráðabirgðalögin hefðu verið gefin út sem yfirskin ríkisstj. til þess að lækka það umtal, sem orðið hafði um verðlagsmálin, og hún ætlaði sér alls ekki að nota þá heimild, sem hefur verið gefin í bráðabirgðalögunum. Hv. þm. vita, að það er ekkert nýtt, þótt hv. þm. sé með slíkar dylgjur sem þessar, án þess að hann hafi nokkra rökstudda ástæðu til þess að bera þær fram. Hann segir, að þessi skýrsla, sem nú liggur fyrir, sé búin að liggja lengi fyrir viðskmrn. og því hefði þess vegna verið innan handar að beita ákvæði brbl. Þetta er bæði rétt og rangt að því leyti, að sumar af þessum skýrslum eru að vísu ekki nýjar, aðrar eru nýjar. En það var frá byrjun ljóst, að þessu ákvæði í brbl. yrði ekki beitt þannig, að það verkaði aftur fyrir sig. Lögin eru sett, ef ég man rétt, þann 6. maí, og það hefur aldrei komið til tals að beita þeim gagnvart þeim, sem brutu af sér fyrir þann tíma. Hins vegar ná þessar skýrslur, ef ég man rétt, aftur í marzmánuð, eða jafnvel febrúar, en svo eru nýjar skýrslur, sem eru teknar í ágústmánuði, og það eru þær skýrslur, sem stuttan tíma hafa legið fyrir ráðuneytinu, en einmitt í þessum skýrslum, sem síðast eru út gefnar, kemur það greinilega í ljós, að álagningin er mjög jöfn og mjög hófleg. Ef ég man rétt, þá eru ekki meira en 2–3 tilfelli í þeim skýrslum, sem telja má að sýni verulega óhóflega álagningu og það á vörum, sem skipta afar litlu máli. Ég vil geta þess út af þeim dylgjum, sem hv. þm. var að bera fram í þessu efni að fyrirmæli hafa verið gefin um það, áður en hann hélt þessa ræðu og áður en hann gerði þetta að umræðuefni í sambandi við fjárlögin, að framfylgt yrði því ákvæði laganna, að birt séu nöfn þeirra, sem vitanlegt er að lagt hafa óhóflega á vörur innfluttar eftir setningu brbl.
Hv. þm. reyndi í síðari hluta ræðu sinnar að benda á, hversu mikið okur væri um að ræða í sambandi við álagningu á innkaupsverð vara. Þessi samanburður — og það veit hv. þm. —þarf ekki að sýna neitt okur, jafnvel þó að álagningin sé hærri, en innkaupsverð varanna. Samanburðurinn á innkaupsverðinu og álagningu varanna er því vísvitandi villandi lagður fram. Og hvers vegna dregur hann ekki það fram t. d. í þessu sambandi, að það eru til vörur, sem kosta miklu minna í innkaupi heldur en flutningsgjaldinu nemur? Er það ekki óhæfa að kaupa inn vörur, ef innkaupsverðið sjálft er lægra en flutningsgjaldið? Ég þarf ekki að vera neitt að skýra fyrir mönnum, að við kaupum vörur, þó að þær séu ódýrari en flutningsgjaldið sjálft, þó að svo mikill kostnaður leggist á þær við að flytja þær til landsins. Svo kemur náttúrlega þar í viðbót kostnaður, þeir tollar og þau gjöld, sem við sjálfir leggjum á vöruna. Ég gat ekki betur séð, en að sú prósentuálagning, sem hv. þm. las upp í þessu sambandi, bæði í heildsölu og smásölu, væri mjög sanngjörn álagning og mjög í samræmi við það, sem menn yfirleitt telja að álagning í þessum greinum eigi að vera. Það sýnir ekki neitt sanngirni álagningarinnar, hversu mikill hluti hún er af innkaupsverði vörunnar. Þetta, sem hér er um að ræða, er ekkert annað en það, sem gengur fyrir sig í hverju einasta landi, að lagt er á vörurnar eins og þær kosta á staðnum með öllum kostnaði. Þetta er það, sem gert er í öllum öðrum löndum og þykir engin goðgá, að heildarverðmæti hverrar vöru á staðnum, með tollum og öllum öðrum kostnaði, er lagt til grundvallar fyrir álagningu á vöruna. Þá er það, sem ræður, hvort hér er um okur að ræða eða ekki, hvað álagningin er há á þá fjárhæð, sem eining vörunnar kostar á staðnum. En hv. þm. telur ekki fyrir neðan virðingu sína hér á Alþ. að koma með svona dæmi sem góða mynd af því, hversu miklir okrarar íslenzkir innflytjendur eru.
Þetta er álíka óvönduð málfærsla í þessum málum eins og hv. þm. yfirleitt viðhefur, og þó að hann ætti að vita betur og viti vafalaust oft og tíðum betur, þá setur hann fram sínar staðhæfingar í því ljósi, að það er beinlínis til þess að villa þá, sem ekkert þekkja til málanna, eins og allan almenning. Hann viðurkenndi í upphafi ræðu sinnar, að álagningin hefði verið orðin of lág. Það getur verið, að hann hafi viðurkennt þetta fyrr, en það er í fyrsta skipti, sem ég heyri hann viðurkenna þetta. En hver maður, sem þekkir nokkuð til verzlunar og verzlunarálagningar, veit það, að ekki er hægt að flytja inn vefnaðarvöru í heildsölu fyrir 4–5% eða selja hana í smásölu fyrir 12–15%, eins og hér var komið, áður en breyting var gerð. Það þekkist ekki í nokkru nágrannalandi slík álagning á vörur, og ég fullyrði, að álagning á vörur hér á landi, bæði í heildsölu og smásölu, er yfirleitt lægri, en í nágrannalöndunum. Ég hef ekki tölur við höndina til að sýna þetta, en ég hef þessar tölur og get lagt þær fram. Ég hef minnzt á þetta við önnur tækifæri og sýnt fram á það, að í ýmsum vöruflokkum nær sú álagning, sem yfirleitt er viðhöfð hér og er frjáls, ekki þeirri álagningu í nágrannalöndunum, sem þar er heimiluð undir hámarksákvæðum. Hins vegar er erfitt að bera saman marga vöruflokka hér og t. d. á Norðurlöndum, vegna þess að þar tíðkast yfirleitt að setja hámarksverð á vörur, en ekki hámarksálagningu, og þá er illt að átta sig á því, hve mikil álagning er leyfð. En þetta geta þau lönd gert frekar en við, vegna þess að þau hafa sjálf mjög mikla framleiðslu á alls konar nauðsynjavörum, sem þau geta sett hámarksverð á og ráðið talsvert yfir, en við verðum að haga okkur eftir því, á hvaða verði við kaupum vöruna á hverjum tíma erlendis frá.
Þá gat hann þess, að það bæri að miða álagninguna við verðmæti innflutningsins. Ég hef aldrei heyrt nokkurn hagfræðing halda því fram, að setja skyldi það sem fasta reglu, að innflutningsverðmætið til landsins ætti að takmarka eða réttara sagt að ráða álagningarprósentunni. Það er alveg rétt, að ef skyndilega eykst mikið innflutningur, þá má segja, að verzlunarstéttin hagnist meira, en ella vegna þess, hvað veltan verður mikil. En fyrst er nú þess að gæta, að þetta eru undantekningar og að innflutningurinn jafnar sig nokkuð frá ári til árs, og það væri bókstaflega að æra óstöðugan, ef í hverju landi ætti að miða verzlunarálagninguna við það, sem ætla má að innflutningurinn verði á næsta ári, því að ekki er hægt að miða álagninguna við innflutninginn þann tíma, sem þegar er liðinn, við þær vörur, sem búið er að flytja inn og verðleggja. Þetta verður að gerast fyrir fram. Mér sýnist, að þetta muni vera alveg ný vísindi í hagfræðinni, og ég veit ekki til, að þetta tíðkist í neinu landi. Það er nú yfirleitt svo, að föst ákvæði eru um það, hvað skuli lagt á, og það hefur verið gengið frá ákvæðum þar að lútandi á miklu skynsamlegri hátt en hér hefur verið gert. Því miður á hv. þm. talsvert mikinn hlut að því, hvernig hefur verið farið með álagningu hér og hún gerð þannig, að verzlunarstéttinni hefur ekki verið fært að selja vörur með þeirri álagningu, sem henni var skömmtuð. Að vísu orsakast þetta að verulegu leyti fyrir ákvæði þingsins í sambandi við ýmis tekjuöflunarlög. Og ég vil endurtaka það, sem ég sagði áðan, að það er hreinasta fjarstæða, að álagning hér sé hærri en annars staðar, nema síður sé. Þetta er hægt að sanna. Hún er talsvert miklu lægri hér á flestum sviðum. Hann gat þess, að álagning hér ætti að vera lægri, en í öðrum löndum vegna þess, hvað við hefðum háa tolla, ásamt bátagjaldeyri. Það er alveg rétt, við höfum miklu hærri tolla en nágrannaþjóðirnar, en dettur hv. þm. ekki í hug, að það sé dálítið hægara að verzla í landi með milljónir íbúa, heldur en að verzla í landi, sem er með 150 þús. íbúa? Ég gæti trúað, að það mætti teljast sanngjarnt, að verzlunarálagningin í stórum löndum væri lægri, en á litlum mörkuðum, af augljósri ástæðu. Innflytjendur í þessum löndum geta aflað sér miklu meiri umsetningar, en verzlanir geta hér á landi.
Ég skal ekki tefja umræður um þetta mál að svo stöddu með lengri málflutningi. Það verður athugað mjög bráðlega, hvaða tilefni hinar síðustu álagningarskrár verðlagsstjóra gefa til frekari aðgerða, en það mun líka verða athugað, að svona málflutningur sem hv. 3. landsk. leyfir sér að viðhafa á þingi, á opinberum vettvangi, fari ekki fram án þess, að skýrt verði fyrir almenningi, hversu óvandaður málflutningurinn er.