13.10.1952
Neðri deild: 7. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (3149)
21. mál, verðlag
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Mér finnst hálfömurlegt til þess að vita, að eftir að hæstv. viðskmrh. virðist vera uppgefinn á því að halda uppi vörnum fyrir verzlunarokrið, sem á sér stað í landinu, þá skuli hv. þm. V-Húnv. taka að sér það hlutverk að halda áfram að karpa um þetta mál og verja það ástand, sem nú er í þessum málum, því að andmæli gegn þessu frv. eru í raun og veru vörn fyrir þetta ástand, sem einkennist fyrst og fremst af óhæfilegu okri á vissum sviðum verzlunarinnar.
Hvað er í raun og veru verið að fara fram á með þessu frv.? Það eitt, að fjárhagsráð skuli hafa heimild til þess að ákveða hámarksverð og hámarksálagningu á vöru og þjónustu, sem seld er í landinu. Ef fjárhagsráð notar sér þá heimild, sem það væntanlega gerir, ef það fengi hana, þá mundi það ákveða hámarksverð og hámarksálagningu á vöru, sem verzlað er með, og vöru, sem framleidd er í landinu. Hverjir þurfa að óttast slíkt? Hverjir þurfa að hrökkva við, þótt fjárhagsráð fái heimild til að ákveða hámarksverð og hámarksálagningu? Væntanlega ekki aðrir en þeir, sem tilhneigingu hafa til þess að ákveða óeðlilega hátt verð eða óeðlilega háa álagningu. Mér finnst, að hv. þm. V-Húnv., sem er góður og gegn samvinnumaður, hafi enga ástæðu til að hrökkva við fyrir hönd samvinnuhreyfingarinnar í landinu. Því aðeins væri ástæða til þess, að sú hreyfing hefði óhreint mjöl í pokanum, en ég vil engan veginn væna hana um það. Þessi viðkvæmni og þessi andstaða gegn þeim heimildum, sem hér er verið að fara fram á, gæti bent til órólegrar samvizku, sem ég þó vil ekki segja að eigi sér stað, og sízt af öllu hjá því félagi, sem hann hefur verið forgangsmaður fyrir og gaf hér nokkra lýsingu á, síðast þegar málið var til umr., og virtist vera rekið með ágætum. Hann sjálfur hefur því ekkert að óttast. Hér hlýtur því að vera um það eitt að ræða, að hv. þm. taki samábyrgðina í hæstv. ríkisstj. svo hátíðlega, að hann telji sér skylt að styðja við bakið á hæstv. ráðherra, þegar hann ekki lengur treystir sér til að standa uppréttur.
Hv. þm. sagði, að það væri fávíslegt að heimta verðlagseftirlit með vörum, sem frjáls innflutningur væri á. Ég hef sagt það áður, að ef innflutningur til landsins væri raunverulega algerlega ótakmarkaður og ef um væri að ræða í landinu algerlega frjálsa samkeppni milli kaupmanna og samvinnufélaga annars vegar og kaupmanna innbyrðis og samvinnufélaga innbyrðis, þá væri takmörkuð þörf fyrir verðlagseftirlit í landinu. En það er mergur þessa máls, að innflutningur til landsins er nú ekki frjáls, hann er takmarkaður, og það er ekki um að ræða í landinu fullkomna samkeppni, hvorki á milli kaupmanna eða kaupfélaga innbyrðis af mörgum orsökum né heldur á milli kaupmanna innbyrðis. Og það er þessi staðreynd, sem gerir það fyrst og fremst að verkum, að það er nauðsyn á verðlagseftirliti, eins og ástand okkar viðskiptamála nú er.
Ég hef líka bent á það áður, að nú er í raun og veru ekki frjáls innflutningur nema á ýmsum matvörum og ýmsum vefnaðarvörum og svo á bátagjaldeyrisvörunum svo kölluðu; á þeim er innflutningur frjálsastur. Það eina, fyrir utan ýmsar helztu matvörurnar, sem nú má flytja til landsins í algerlega ótakmörkuðu magni, eru vörurnar á bátagjaldeyrislistanum. Samt sem áður vita nú allir, að á þeim hefur verið mest okrað af öllum vörum, sem fluttar hafa verið til landsins. Af hverju? Meðal annars af því, að samvinnuhreyfingin hefur af einhverjum ástæðum ekki viljað taka að sér að verzla með þessar vörur og veita kaupmönnum samkeppni á því sviði. A ýmsum öðrum vefnaðarvörum, eins og menn vita, er innflutningurinn nú takmarkaður, þar sem ákveðið hefur verið, að þær megi ekki flytja inn lengur samkv. frílista, heldur skuli innflutningur á þeim fyrst og fremst vera frá jafnvirðiskaupalöndunum, þar sem erfitt er að fá þær, auk þess sem þær eru þaðan dýrari heldur en í þeim löndum. sem þær áður voru keyptar frá.
Þessi röksemd hv. þm. á því ekki við neitt að styðjast, eins og málum er nú komið. — Að síðustu segir hann, að það muni verða ríkissjóði mikill útgjaldaauki, ef þetta frv. næði fram að ganga, vegna þess að þá mundi ríkisstarfsmönnum fjölga verulega, en þeir séu þegar nógu margir fyrir. Það er alveg rétt hjá hv. þm. Það mætti gjarnan fækka eitthvað við ríkisjötuna, og þar hefur hv. þm. mjög góða aðstöðu til þess að láta til sín taka, þar sem hann er einn af mikilhæfustu stuðningsmönnum hæstv. ríkisstj., og vafalaust einn meðal þeirra, sem hæstv. fjmrh. mundi taka mest mark á, ef hann léti einhverjar skynsamlegar tillögur frá sér heyra á því sviði, en mér þykir undarlegt, ef það er aðeins á sviði verðlagseftirlitsstarfsmanna, sem þessi hv. þm. óskar eftir því að ríkið spari. Og í þessu sambandi hefði verið mjög æskilegt að fá að vita það, og ég mun að gefnu þessu tilefni koma á framfæri fyrirspurn um það til hæstv. fjmrh., hvað stjórnin hefur í raun og veru sparað mikið með því að afnema verðlagseftirlitið. Mér segir nefnilega svo hugur um, að það hafi verið sáralítið, aðeins nokkrir tugir þúsunda, svo að það mundi í raun og veru verða mjög lítill kostnaðarauki, þó að verðlagseftirliti væri aftur komið á í sama formi og það var fyrir 1½ ári, áður en ríkisstj. tók að framkvæma þetta atriði í stefnuskrá sinni.