06.10.1952
Neðri deild: 4. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í C-deild Alþingistíðinda. (3155)

24. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum

Flm. (Sigurður Guðnason):

Herra forseti. Það er nú ekki í fyrsta sinn, sem þetta frv. hefur komið fyrir Alþingi, og það er ekki heldur í fyrsta sinn, sem tvö samhljóða frv. hafa komið fram, svo að maður gæti nú hugsað, jafnlangt og er liðið síðan þetta mál kom fyrst til umr. hér og þar sem tveir þingflokkar hafa verið með frv. um þetta efni, að það væri nú óþarfi að halda langa ræðu um málið, þegar það er orðið leyst í samningum og þetta frv. fer eingöngu fram á það, að bundið verði í lög það, sem samið var um síðast milli sjómanna og útgerðarmanna um hvíldartíma háseta á botnvörpuskipum. Það hefur tekið þetta 5–6 ár og þýtt tvær langvarandi deilur, sem hefðu verið alveg óþarfar, ef Alþingi hefði haft skilning á því, hve þetta var mikið áhugamál fyrir sjómennina, enda viðurkennt hjá yfirleitt öllum sjómönnum, að sami hópur manna afkasti eins mikilli vinnu með þessu fyrirkomulagi eins og með því að hafa 16 tíma vinnu.

Ég get nú ekki verið að rekja neitt sögu þessa máls, enda er það gert hér í greinargerð fyrir frv. að dálitlum mun. En það er ég viss um, að það er enginn vafi á því, að sjómenn láta ekki taka þennan rétt af sér, sem þeir eru búnir að semja um, því að þeir eru búnir að berjast svo mikið fyrir honum. Og það er rétt og skylt, að Alþingi komi í veg fyrir það, að þetta málefni geti orðið að harðvítugum deilum síðar meir, og það er dálítið athugavert við það, sem hv. alþm. ættu að taka til greina, að togaravökulögin eru þau einu lög, sem verkamenn hafa sótt hingað til Alþingis um rétt sinn og það að breyta þeim og fá mannsæmandi hvíld hefur kostað lengri og meiri átök og kostað þjóðina meira, en nokkur önnur barátta verkalýðsins, sem hefur ekki verið lögfest. Og ég vona nú, að Alþingi sjái sér fært að breyta togaravökulögunum í samræmi við samninga, eins og frv. fer fram á og ekkert annað.