14.10.1952
Neðri deild: 8. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í C-deild Alþingistíðinda. (3172)

39. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Flm.. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í þessu frv. felst það, að persónufrádráttur skuli hækkaður mjög verulega frá því, sem nú er, eða að hann skuli um það bil tvöfaldaður. Gert er ráð fyrir, að persónufrádráttur fyrir einstakling skuli vera 7 þús. kr., fyrir hjón 14 þús. og fyrir hvert barn 6 þús. kr., miðað við meðalvísitölu yfirstandandi árs.

Þingmenn Alþfl. hafa á undanförnum þingum hvað eftir annað flutt frumvörp í aðalefni samhljóða þessu frv., en þau hafa til þessa ekki náð fram að ganga. Hér er um að ræða tilraun til að bæta úr einum af mörgum ágöllum skattalöggjafarinnar eins og hún er nú, en ég tel, í stuttu máli, að á gildandi skattakerfi séu einkum þessir þrír gallar:

1) Að hlutdeild óbeinu skattanna sé orðin óhæfilega mikil.

2) Að mestur hluti óbeinu skattanna er söluskattur, sem hvílir mjög þungt á öllum almenningi, en skilar sér illa í ríkissjóð, og tollar á ýmsar nauðsynjavörur.

3) Að beinu skattarnir hvíla mjög misþungt á einstökum þjóðfélagsstéttum.

Ef athuguð er skipting ríkisteknanna samkvæmt fjárlfrv. því, sem hæstv. fjmrh. hefur nú lagt fyrir þetta þing, þá kemur í ljós, að gert er þar ráð fyrir því, að beinir skattar ríkisins nemi aðeins 14% af heildartekjum ríkisins, tekjur af ríkisstofnunum ýmsum hins vegar 22%, en tekjur .af tollum og ýmsum óbeinum sköttum hvorki meira né minna en 62% af tekjum ríkisins. — Hæstv. fjmrh. gat þess í fjárlagaræðu sinni, að ríkistekjurnar væru hér svipaðar í hlutfalli við þjóðartekjurnar og í nokkrum nágrannalandanna, og efast ég ekki um, að þetta sé rétt reiknað, en hins vegar gleymdi hæstv. ráðh. að geta þess, að hlutfallið milli beinna og óbeinna skatta er hér allt annað, en í þessum sömu löndum, sem hann nefndi. Þar skiptast tekjur ríkis og sveitarfélaga samanlagt um það bil til helminga milli beinna og óbeinna skatta, þ. e. a. s. ríki og sveitarfélög afla sér í Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi t. d. um það bil helmings tekna sinna með beinum sköttum.

Allir beinir og óbeinir skattar hér til ríkis og sveitarfélaga munu vera um 540 millj. kr., en beinir skattar af því aðeins um 200 millj. Beinir skattar eru hér aðeins um 10% af þjóðartekjunum, en óbeinu skattarnir 17%, og er hér átt við bæði skatta til ríkis og sveitarfélaga. Þ. e. a. s., óbeinu skattarnir eru hér tiltölulega miklu hærri hluti af heildartekjuöflun ríkis og sveitarfélaga heldur en í löndunum í kringum okkur, og í því fyrst og fremst kemur fram hinn gífurlegi munur, sem er á tekjuöflunaraðferðum íslenzka ríkisins eða hinna opinberu aðila á Íslandi og landanna í kringum okkur. En þótt beinu skattarnir hér á Íslandi séu aðeins um 10% af þjóðartekjunum, þá eru þeir samt sem áður óbærilega þungir fyrir fjölmargar þjóðfélagsstéttir og þó sérstaklega ýmsar launastéttir. Atvinnurekendur hafa hins vegar, svo sem kunnugt er, margvísleg skilyrði til þess að skjóta undan skatti, auk þess sem þeir njóta margs konar hlunninda í skattgreiðslu, varasjóðsfrádráttar t. d., sérstakra reglna um fyrningarafskriftir og þar fram eftir götunum. Það er raunar ekkert sérstakt fyrir Ísland, að tekjur allar af atvinnurekstri komi ekki fram við skattaframtal. Athugun, sem gerð var í Danmörku á þessu efni, leiddi í ljós, að tæplega 30% af tekjum af landbúnaði komu þar ekki til skatts, tæplega 20% af tekjum af iðju, iðnaði og verzlun komu ekki til skatts, en aðeins rúmlega 10% af öðrum tekjum, þ. á m. tekjum opinberra starfsmanna og margra launamannastétta, komu ekki til skatts. Þ. e. a. s., skattaundanbrögðin þar í landi voru næstum þrefalt meiri í landbúnaði, næstum tvöfalt meiri í iðju, iðnaði og verzlun heldur en átti sér stað um flestar mikilvægustu launastéttirnar.

Heildarundanbrögðin hér eru vafalaust meiri en á sér stað í Danmörku. Um skiptinguna á einstakar tekjustéttir verður hins vegar ekki sagt, þar eð engin slík athugun hefur farið hér fram, en margt bendir þó til þess, að sú staðhæfing sé rétt, að tekjuskattarnir hér á landi séu fyrst og fremst launaskattar, að þeir hvíli tiltölulega langþyngst á þeim mönnum, sem hafa föst laun.

Gallinn, sem nú er á óbeinu sköttunum, sem hér eru innheimtir á Íslandi, er fyrst og fremst sá, að þeir eru of almennir, þeir hvíla of þungt á allri almennri neyzlu. Ýmsa óbeina skatta, sem einkum hvíla á eignamönnum, vantar hér alveg, svo sem t. d. verðhækkunarskatta, og aðrir skattar, sem einkum lenda á þeim, sem hæstar hafa tekjur og mestar eignir eiga í þjóðfélaginu, svo sem erfðafjárskattar, eru hér mjög lágir. Hins vegar eru ýmsir óbeinir skattar, sem hvíla beinlínis á neyzlu jafnvel tekjulágra manna, tiltölulega mjög háir. En það er ekki aðeins, að óbeinu skattarnir hvíli of þungt á öllum almenningi og tekjulágu fólki, heldur gera beinu skattarnir það líka, og er það undarlegra og fullkomið sérkenni á skattakerfi okkar Íslendinga, og skattabyrði af beinu sköttunum er nú tiltölulega þyngri en hún var, þegar núgildandi skattalög fyrst voru sett, þ. e. a. s. 1935.

Það er grundvallaratriði í flestri skattalöggjöf, að hreinar þurftartekjur skuli undanþegnar skattgjaldi. Reglum þeim, sem settar eru um persónufrádrátt, er ætlað að tryggja slíkt. Samkvæmt rannsókn, sem skipulagsnefnd atvinnumála gerði á raunverulegum tekjum verkamanna hér í Rvík 1935, eða sama ár og gildandi tekjuskattslög voru sett fyrst, leiddi í ljós, að meðaltekjur verkamanna hér í Rvík voru þá 2.500 kr. Gera má ráð fyrir, að þetta hafi verið algerar þurftartekjur, enda voru þessar tekjur skattfrjálsar samkv. tekjuskattslögunum frá 1935. Verkamaður hefði á því ári haft 3.300 kr. í tekjur, ef hann hefði haft fulla vinnu og unnið 8 tíma á sólarhring alla vinnudaga ársins. Miðað við væntanlega vísitölu yfirstandandi árs mundu verkamannstekjur verða 33 þús. kr., ef unnið væri 8 tíma á dag alla vinnudaga ársins, eða um það bil tífaldar fullar árstekjur ársins 1935. Virðist því ekki vera úr vegi að gera ráð fyrir því, að peningatekjur hafi á þessu tímabili, fyrir margar launastéttir a. m. k., tífaldazt, og er þá fróðlegt að bera saman, hvaða skatt mönnum var ætlað að greiða samkvæmt tekjuskattslögunum 1935, samanborið við tífaldar peningatekjur nú samkv. ákvæðum þeim, sem nú gilda á þessu ári.

Ég gat þess áðan, að verkamaður með 2.500 kr. tekjur 1935, kvæntur verkamaður með 3 börn á framfæri, hefði engan skatt þurft að greiða 1935. Kvæntur verkamaður með 3 börn, sem hefði haft 25 þús. kr. tekjur í fyrra, átti nú í ár að greiða 101 kr. í skatt. Hann átti að greiða skatt, þó að tekjurnar hlytu að teljast hreinar þurftartekjur.

Af 3.500 kr. tekjum 1935 hefði kvæntur verkamaður með 3 börn á framfæri þurft að greiða aðeins 0,1% af tekjum sínum í skatt, þ. e. a. s., hann var raunverulega skattfrjáls. Á þessu ári hefði kvæntur verkamaður með 3 börn og 35 þús. kr. tekjur þurft að greiða 548 kr. í skatt.

Sami maður með 4.500 kr. tekjur 1935 hefði líka raunverulega verið skattfrjáls. Hann hefði þurft að greiða aðeins 0,37% af tekjum sínum í skatt, aðeins 17 krónur. Á þessu ári hefði kvæntur verkamaður með 3 börn og 45 þús. kr. tekjur þurft að greiða 1.185 kr. í skatt, eða 1.018 kr. meira en hann hefði þurft að gera, ef um væri að ræða sambærilegar skattgreiðslur og 1935.

Af 6.000 kr. tekjum 1935 þurfti heimilisfaðir með 3 börn á framfæri sínu aðeins að greiða 1% af tekjum sínum í skatta, en af 60 þús. kr. tekjum á árinu 1951, sem greiddir eru skattar af á þessu ári, hefði þurft að greiða 2.629 kr. í skatta til ríkisins.

Af þessum tölum sést mjög greinilega, að skattþunginn hefur aukizt mjög verulega á sambærilegum tekjum frá því, sem gert var ráð fyrir að hann yrði 1935. Ef skattur ætti að vera sambærilegur, þá ætti maður með 25 þús. kr. tekjur engan skatt að greiða, eins og ég tók fram áðan. Fjölskyldufaðir með 3 börn á framfæri, sem hefði haft 35 þús. kr. tekjur í fyrra, hefði aðeins átt að greiða 35 kr. í skatt, en greiddi raunverulega 548. Hann greiðir þannig rúmum 500 kr. meira en hann hefði gert 1935. Af 45 þús. kr. tekjum ætti slíkur fjölskyldufaðir nú raunverulega að vera skattlaus, þ. e. a. s., hann hefði átt að greiða 166 kr. í skatt, en er raunverulega látinn greiða 1.185 kr. Og jafnvel þótt slíkur fjölskyldufaðir hefði haft 60 þús. kr. tekjur, þá hefði hann aðeins átt að greiða 600 kr. í tekjuskatt, ef sömu reglur hefðu gilt nú og giltu 1935, en hann greiðir 2.629 kr. í skatt, þ. e. a. s., skattbyrðin hjá slíkum fjölskylduföður af 60 þús. kr. tekjum er 2.029 kr. meiri en verið hefði samkv. reglunum frá 1935.

Um það er því ekki að deila, að þungi beinu skattanna er nú miklu meiri á öllu þessu tekjubili, frá 25 þús. upp í 60 þús. kr., en gert var ráð fyrir að hann væri samkv. reglunum frá 1935. Höfuðástæðan fyrir þessu er sú, að persónufrádráttur var þá ákveðinn tiltölulega miklu hærri en hann er nú reiknaður.

1935 var persónufrádráttur heimilaður 800 kr. fyrir einstakling, 1.500 fyrir hjón og 500 kr. fyrir hvert barn. Nú á þessu ári hefur hann hins vegar verið reiknaður 3.654 kr. fyrir einstakling, 4.308 kr. fyrir hjón og 2.842 kr. fyrir eitt barn í Rvík. en utan Rvíkur 2.436 kr. Þannig hefur persónufrádráttur aðeins 4-5-faldazt á þessu tímabili, þótt tekjur hafi allt að tífaldazt, eins og ég gat um áðan, og það er þetta fyrst og fremst, sem veldur því, hversu þungi beinu skattanna á launum hefur aukizt gífurlega. 1935 var persónufrádráttur einstaklings 32% af raunverulegum meðaltekjum verkamanns og persónufrádráttur hjóna 60% af þeim. En sé gert ráð fyrir því, að meðaltekjur verkamanns 1951 hafi numið um 30 þús. kr., er persónufrádráttur einstaklings aðeins 12% þessara tekna og hjóna aðeins 26%.

Þetta nær auðvitað engri átt. Sú hlutfallslega lækkun, sem hefur orðið á persónufrádrættinum, er mjög ósanngjörn. Hitt er hins vegar rétt, að það er ekki nóg að lagfæra þetta, það er ekki nóg að hækka persónufrádráttinn við útreikning á tekjuskatti til ríkisins. Það þarf einnig að breyta þeim reglum, sem gilda um útsvarsálagningu á tekjur. En þar eð niðurjöfnunarnefndir fylgja yfirleitt hliðstæðum reglum og gert var við álagningu tekjuskattsins, má búast við því, að slík hækkun á persónufrádrætti í skattalögunum mundi verða til þess, að niðurjöfnunarnefndir hækkuðu einnig persónufrádrátt við álagningu útsvara.

Útsvarsálagningin hér í Rvík er þannig, að af 25 þús. kr. tekjum á s. l. ári hefðu hjón með 3 börn þurft að greiða 1.291 kr. í útsvar. 25 þús. kr. tekjur eru, eins og ég sagði áðan, hreinar þurftartekjur og ósvinna að leggja nokkurn skatt á slíkar tekjur, hvort sem er til ríkis eða bæjar. Engu að síður innheimtir bæjarsjóður Reykjavíkur 1.291 kr. í útsvar af slíkum tekjum. Af 35 þús. kr. tekjum er útsvarið meira að segja 2.719 kr., og þarf ég ekki að fara fleiri orðum um það, að í þessu felst slíkt ranglæti, að við svo búið má ekki lengur standa, hefur raunar staðið allt of lengi.

Ég skal svo að síðustu gera svolitla grein fyrir því, hvaða áhrif samþykkt þessa frv. hefði á greiðslu tekjuskatts og enn fremur á greiðslu útsvars, ef gert er ráð fyrir því, að reglum um útsvarsstigann hér í Rvík yrði breytt þannig að persónufrádráttur þar yrði tvöfaldaður, eins og gert er ráð fyrir að persónufrádráttur við ríkisskattaálagningu verði samkv. þessu frv.

Af 25 þús. kr. tekjum greiðir verkamaður með 3 börn á framfæri nú 101 kr. í skatt og 1.291 kr. í útsvar, en yrði skattfrjáls og útsvarsfrjáls, ef þessum reglum yrði breytt.

Af 35 þús. kr. tekjum greiðir kvæntur maður með 3 börn nú 548 kr. í ríkisskatt og 2.419 kr. í útsvar. Ríkisskatturinn lækkaði hjá honum um 509 kr. og útsvar um 1.409 kr. Samtals yrði lækkun hans á opinberum gjöldum 1.918 kr.

Af 45 þús. kr. tekjum er skattgreiðslan nú 1.185 kr. og útsvarsgreiðslan 4.609 kr. Skattgreiðslan mundi lækka um 949 kr., útsvarsgreiðslan um 1.499 kr. og greiðsla skatta og útsvars samtals þannig um 2.448 kr.

Um þetta mundi muna mjög verulega fyrir launamenn með þessar tekjur. Það mundi bæta mjög verulega úr því ranglæti, sem nú á sér stað, að jafnvel beinu skattarnir hvíla með óeðlilegum þunga á þessum launastéttum, og það má vissulega ekki dragast lengur, að leiðréttingar séu gerðar á skattalöggjöfinni að þessu leyti.

Ríkissjóður mundi missa nokkuð í tekjum við samþykkt þessa frv. Það er mjög erfitt að áætla, hvað sá tekjumissir mundi nema miklu, en það liggur að sjálfsögðu beinast við að reyna að bæta hann upp með bættu skatteftirliti. Skatteftirlitinu hér á Íslandi er mjög ábótavant, og það er enginn vafi á því, að ekki koma nálægt því allar raunverulegar tekjur fram til skatts. Það mætti auka tekjur af beinum sköttum mjög verulega með því að taka upp nýjar og betri aðferðir við skattheimtuna, og ég er þess fullviss, að það mætti auka skatttekjurnar með bættu skatteftirliti um það bil um þá sömu upphæð og tekjurnar mundu minnka vegna þess hækkandi persónufrádráttar, sem hér er gert ráð fyrir.

Ég vil svo að síðustu leyfa mér að óska þess að, að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til hv. fjhn.