14.10.1952
Neðri deild: 8. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í C-deild Alþingistíðinda. (3186)

58. mál, aðstoð við barnafjölskyldur til mjólkurkaupa

Flm. (Ásmundur Sigurðsson):

Herra forseti. Þeir, sem muna ástand og horfur í atvinnu- og efnahagslífi Íslendinga áratuginn næsta fyrir styrjöldina, muna einnig, að það markaðist m. a. af tvennu, í fyrsta lagi því, að í kreppunni og fyrst eftir að henni fór að létta var mjög mikið hér um atvinnuleysi og efnahagur alls almennings í bæjum þessa lands mjög erfiður, og í öðru lagi því, hvað snerti annan aðalatvinnuveg þjóðarinnar, landbúnaðinn, að mjög erfitt var að selja vörur hans einmitt vegna hins erfiða fjárhagsástands meðal alls almennings í bæjum og kauptúnum landsins. Þetta breyttist nokkuð, þegar fram á stríðsárin kom. Byrjaði það raunar strax að breytast á fyrsta ári stríðsins og breyttist þannig, að atvinna jókst, tekjur almennings hækkuðu og því fylgdu aftur á móti stóraukin afurðasala og vaxandi framleiðslumöguleikar fyrir landbúnaðarvörur. Og svo var ástandið breytt, þegar komið var nokkuð fram á stríðsárin, að þá var ekki nærri því fullnægt eftirspurn eftir landbúnaðarvörum, vegna þess að þá hafði kaupgeta almennings aukizt svo mikið, að þrátt fyrir það að framleiðsla þeirra hafði vaxið að mun, var eftirspurninni ekki nærri fullnægt. Og það sýndi greinilega, hversu langt var frá því, að áratuginn fyrir styrjöldina hefði almenningur fengið nægju sína af þessum vörum, eða réttara sagt getað keypt nægju sína af þessum vörum.

Í sambandi við þetta má benda á það, að árið 1942 var tekið upp nýtt fyrirkomulag hér á landi í kaupgreiðslum, og var þá tekið fyrir að mæla dýrtíðina, ef svo mætti komast að orði, þ. e. a. s. að nota vísitöluna sem mælikvarða á dýrtíðina, og ákveðið jafnframt, að laun skyldu greidd í samræmi við hækkandi vísitölu og hækkandi dýrtíð. Þetta varð til þess m. a. að tryggja launakjörin og tryggja einnig sölu þeirra vara, sem hér er um að ræða. Þetta hélzt út öll stríðsárin og raunar fram yfir stríð. En segja má, að nokkur þáttaskipti verði í þessu eftir stríðið, og má telja, að þau hefjist í raun og veru þegar Alþ. ákvað að binda kaupgreiðslur við 300 stiga vísitölu í árslok 1947, en það var samþ. í árslok 1947 og byrjaði í ársbyrjun 1948. Þetta varð til þess, að þá var kaupgjald slitið að nokkru leyti úr sambandi við hækkandi verðlag, og þýddi raunverulega lækkaðar kaupgreiðslur, sem þó urðu ekki mjög áberandi fyrst í stað. Ástæðan til þess, að þetta virtist ekki fyrst á eftir koma mjög mikið fram í lækkuðum tekjum almennings, var tvímælalaust það, að með auknum atvinnutækjum, sem þá voru að berast inn í landið, sköpuðust möguleikar til þess að auka útflutningsframleiðsluna, og meðan hægt var að selja hana úr landi fyrir allgott verð, þá mátti segja, að ekki bæri mjög mikið á þeim erfiðleikum, sem þessi lækkun kaupgreiðslna að öðru leyti hlaut að valda öllum almenningi. Það verður þess vegna í raun og veru fyrst árið 1950, þegar gengislækkunin er samþ., sem verulega má segja að verði þáttaskipti hvað það snertir, að kaupgeta almennings fór verulega að rýrna. Með gengislækkunarlögunum var ákveðið að breyta vísitölufyrirkomulaginu mjög mikið. Þá var ákveðið, að sú 300 stiga vísitala, sem kaup- og launagreiðslur höfðu verið miðaðar við áður, skyldi nú sett niður í 100 stig, og síðan skyldi eftir vissum reglum hækka kaup í samræmi við hækkandi vísitölu, þó aldrei fyrr, en nokkuð eftir á. Sú staðreynd liggur fyrir núna, að síðan þetta var ákveðið hefur hin nýja vísitala hækkað um 62 stig, eða rúmlega um 3/5, 60%. Þetta upplýsti m. a. hæstv. fjmrh. í fjárlagaræðu hér á Alþ. núna fyrir stuttu. Hins vegar hefur alltaf verið haldið áfram að reikna út vísitölu eftir hinu eldra fyrirkomulagi, og sá útreikningur sýnir það, að sú vísitala, sem nú er reiknað með í öllu viðskiptalífi, þ. e. hin nýja vísitala, sem ákveðin var með gengislækkunarlögunum, sýnir alls ekki hina réttu mynd af dýrtíðinni eins og hún er orðin. Hin raunverulega vísitala, sem miðað skal við og miðuð er við sama útreikning eins og var áður, er núna komin nokkuð upp yfir 600 stig, en var 328 stig þegar kaupgreiðslur voru fyrst festar í ársbyrjun 1948, og þess vegna má segja, að eftir þeim útreikningi, sem er tvímælalaust hinn réttasti, þá hafi dýrtíðin eða verðlag í landinu hækkað um allt að því helming síðan þá. Enn fremur má benda á það, að núverandi kaupgjaldsvísitala, sem mun vera núna um 154 stig, nær ekki því, að greidd séu laun í samræmi við hina raunverulegu dýrtíðarvísitölu, og þess vegna liggur mjög beint við að álykta og er rétt að álykta, að það vantar verulega mikinn hluta á það, að launþegi, hvort sem það er verkamaður eða opinber starfsmaður, hafi launagreiðslu núna í samræmi við það, sem áður var. Það mun óhætt .að fullyrða, að launagreiðslur séu núna 34 til 1/3 lægri en vera ætti, samanborið við það, sem var á stríðsárunum, meðan fylgt var hinni eldri reglu um vísitöluútreikninginn. Við þetta hefur svo bætzt það einmitt núna á síðustu árum, að mjög hefur vaxið atvinnuleysi í öllum bæjum og kauptúnum landsins, svo að segja, og það hefur gert að verkum, að tekjur almennings hafa þorrið mun meira heildarlega heldur en bæði nýrri og eldri vísitöluútreikningur bendir til. Þetta hefur mjög komið fram núna á síðustu árum í minnkandi sölu landbúnaðarafurðanna, og það er það, sem er býsna óálitlegt, ekki aðeins fyrir framleiðendur landbúnaðarvaranna, heldur ekki síður fyrir þann hluta þjóðarinnar, sem þarf að kaupa þær til neyzlu, því að það er viðurkennt af öllum, að framleiðsluvörur landbúnaðarins séu einn nauðsynlegasti þáttur í lífsframfæri þjóðarinnar og ekki sízt nauðsynlegar fyrir hina yngstu kynslóð, sem er að vaxa upp. Sérstaklega gildir þetta þó um mjólk og mjólkurvörur.

Enn þá liggja ekki fyrir nákvæmar opinberar tölur um lækkun á söluvörum þessum fyrir það, sem liðið er af því ári, sem nú er yfirstandandi. En ég get bent á það, að það liggja fyrir alveg opinberar tölur um það, að mjólkursalan frá samsölunni hér í Reykjavík lækkaði á s. l. ári um milli 400 og 500 þús. lítra, og það er hreint ekki lítið, þegar miðað er við það, að sífellt er einnig fólkinu að fjölga og framleiðslan að aukast. Lækkun rjóma var þó hlutfallslega miklu meiri en þetta, og það hefur allt saman komið fram í því, að orðið hefur að vinna meiri vinnsluvörur úr þeirri mjólk, sem ekki hefur selzt. Þær hafa síðan, bæði smjör og ostar, safnazt verulega fyrir hjá mjólkurbúunum, ekki selzt, og núna á s. l. sumri greip ríkisstj. til þess ráðs, til þess að reyna að koma út einhverju meiru af smjörbirgðunum, að auka niðurgreiðsluna á smjörinu. Eins og ég tók fram áðan, þá er þetta einmitt mjög alvarlegt mál fyrir þjóðina í heild, ekki sízt það, að mest hættan er á því, þegar kaupgeta almennings minnkar, að mest minnki kaupgeta þeirra, sem mesta þörf hafa fyrir að kaupa nægilegt af þessum vörum, en það eru barnafjölskyldurnar, þar sem eins manns laun þurfa að sjá fyrir hlutfallslega stærstu heimill, og það mun ekki neinn vafi á því vera, að það séu einmitt þær, sem mest hafa þurft að draga við sig kaup þessara vara.

Þetta frv. er flutt til þess að gera tilraun til að bæta dálítið úr þessu, meðan núverandi ástand ríkir í þessum málum. Ég skal benda á það í þessu sambandi að miðað við núverandi mjólkurverð mundi 7 manna fjölskylda, sem ætlaði að leyfa sér að kaupa 6 lítra af nýmjólk á dag, þurfa að kosta til þess 7–8 þús. kr. á ári. Það sér hver heilvita maður, að þetta er svo mikill hluti af tekjum eins heimilisföður, að hann verður að hafa ekki aðeins þau venjulegu verkamannalaun, sem nú eru ákveðin í landinu, hann verður a. m. k. að hafa vinnu hvern einasta virkan dag ársins, til þess að hann eigi að geta nálgazt þær tekjur að geta keypt svona mikla mjólk fyrir sitt heimili. Þess vegna er það álit okkar flm., að hið opinbera verði, meðan ástandið er svona í þessum efnum, að hlaupa undir bagga til þess að reyna að hindra þá minnkun þessarar neyzlu, sem mjög er farið að bera á og mjög er hætt við að fari vaxandi, ef svo heldur áfram í efnahagsmálunum sem nú horfir.

Í sambandi við þetta vil ég enn fremur benda á það, að mjög er mikið um það talað og ýmislegt til þess gert að örva landbúnaðarframleiðsluna. Það er verið að fjölga býlum í landinu. Til þess að vinna að því starfar sérstök stofnun, sem Alþingi hefur sett á stofn. Það er verið að auka vélainnflutning til landbúnaðarins, og það er stöðugt verið að leggja kapp á að auka ræktunina, bæði með framlagi þeirra einstaklinga, sem þar eiga hlut að máli, og með sérstökum ráðstöfunum ríkisins í því efni. Þetta allt saman má segja að sé út í hött, ef ekki er séð fyrir því, að hægt sé að selja framleiðsluvörur þær, sem landbúnaðurinn lætur af hendi. Og það getur ekki svo farið, að ef svo heldur áfram sem núna virðist horfa, að áframhald verði á frekar minnkandi sölu á framleiðsluvörum landbúnaðarins, þá hlýtur þessi framfaraþróun hans að stöðvast líka. Hjá því verður ekki komizt. Þess vegna teljum við flm., að þetta frv. þjóni tvennu í senn, það þjóni hagsmunum tveggja aðila, bæði þeirra, sem þurfa á þessum vörum að halda til neyzlu, og þeirra, sem framleiða þær.

Ég vil enn fremur benda á það, hvað útlit er fyrir að þetta muni kosta ríkissjóð mikil útgjöld. Ég veit það vel, að það munu margir þm. vera, — og mér þykir það út af fyrir sig ekkert undarlegt, — sem kysu heldur, að ekki þyrfti að taka aftur upp í stórum mæli hið gamla fyrirkomulag um niðurgreiðslur varanna úr ríkissjóði. Og það er ekki heldur meining okkar flm. að slá því föstu með flutningi þessa frv., að svo eigi að vera um ófyrirsjáanlega framtíð. Þess vegna höfum við sett tímatakmark í frv. og gert ráð fyrir, að það gildi fyrst um sinn aðeins það sem eftir er af þessu ári og næsta ár, vegna þess að næsta ár ætti að vera búið að laga það atvinnuástand, er hefur skapað þá fjárhagskreppu, sem er orsök þeirra söluerfiðleika, sem ég hef rætt hér.

En hvað snertir væntanleg útgjöld ríkissjóðs, þá vil ég benda á það atriði, sem raunar er líka tekið fram í grg., að samkv. lauslegri áætlun hagstofustjóra, sem er að vísu miðuð við barnafjölda í kaupstöðum og stærri kauptúnum landsins árið 1940, við næstsíðasta manntal, vegna þess að það liggja ekki fyrir nákvæmar tölur frá síðasta manntali, og miðað við það, að hlutfallið milli barna á þessum aldri, 14 ára og yngri, og fullorðins fólks sé svipað og þá, þá ætti sá barnafjöldi núna að vera rúmlega 30 þús. að tölu. Væri um að ræða 30 þús. börn, sem fengju að njóta þeirra hlunninda, sem frv. gerir ráð fyrir, þá mundi upphæðin verða 5,4 millj. kr. Nú má benda á það, að í mörgum kauptúnum landsins, einkum hinum smærri, er verulega mikil mjólkurframleiðsla, þ. e. a. s., það er fjöldi af fjölskyldufeðrum þar, sem framleiða næga mjólk fyrir sig og sín heimili, og þess vegna má óhætt fullyrða, að sá fjöldi barna, sem þessara réttinda kynnu að njóta, muni verða nokkrum mun minni heldur en ætti að vera samkv. þessari áætlun hagstofustjóra. Ég hef þess vegna gert lauslega ráð fyrir því í grg. frv., að þessi upphæð mundi ekki fara yfir 5 millj. kr., og tel ég það ekki óhóflega farið í sakir að leggja til, að ríkissjóður leggi á næsta ári þessa upphæð fram til jafnmikils nauðsynjamáls og það er að tryggja það, að yngsta kynslóðin, sem er að vaxa upp í landinu, fái nægilega mikið af þessum vörum í neyzlu sinni, og líka það, að sú framleiðsla, sem framleidd er af bændunum og þyrfti til að fullnægja þessari neyzlu og þessari eftirspurn, geti selzt.

Ég vil svo leggja það til að, að þessari umr. lokinni verði frv. vísað til 2. umr. og landbn.