08.12.1952
Neðri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í C-deild Alþingistíðinda. (3199)
65. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Fyrst farið er hér að óska afgreiðslu á tilteknu máli úr n., þá tel ég nauðsynlegt að beina umkvörtun til hæstv. forseta út af tilteknu máli, það er á þskj. 65, frv. til l. um breyt. á l. um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra. Þetta mál var 16. okt. til 1. umr. hér í deildinni og var þá vísað til heilbr.- og félmn. Sú n. er búin að hafa málið til meðferðar í nærri tvo mánuði, og þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir mínar til formanns n. hefur hann ekki fengizt til að afgreiða það frá n. Hef ég þó ríka ástæðu til að ætla, að meiri hl. nm. sé frv. fylgjandi. Og það er náttúrlega óviðunandi, að formenn n., þótt þeir kunni að vera andstæðir málum, ætli að leggjast á þau og reyna að svæfa þau þannig í n. Ég vil beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hann hlutist til um, eftir því sem í hans valdi stendur, að fá mál þetta afgreitt úr nefndinni.