24.10.1952
Neðri deild: 14. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í C-deild Alþingistíðinda. (3230)

82. mál, raforkuframkvæmd

Hannibal Valdimarsson:

Ég er algerlega sammála hv. flm. þessa frv. um það, að nauðsyn sé á því, að aflað verði lánsfjár til þess að hraða framkvæmdum í raforkumálum. Það er vitað, að heilir landshlutar hafa algerlega farið varhluta af aðstoð ríkisins til rafvirkjana og að atvinnulífið í þessum landshlutum bíður stórkostlegan hnekki af því að hafa ekki nema rándýra og ótrygga raforku, framleidda með erlendu hráefni. Það hefur verið upplýst hér á Alþ., að búið sé að ráðstafa tekjum raforkusjóðs a. m. k. 2 ár fram í tímann og þó kannske heldur lengur, og jafnljóst er hitt, að þjóðfélagið hefur veitt stórkostlega aðstoð til þess að byggja risavaxin orkuver í Sunnlendingafjórðungi og Norðlendingafjórðungi, og veitti ekkert af því. Ég er þess vegna hræddur um það, ef það er tilætlun þessara hv. flm. með þessu frv., að erlend lántaka bæti að nokkru verulegu leyti úr um raforkuþörfina — að ég ekki segi raforkuhungrið — í þeim landshlutum, sem enn þá hafa verið settir til hliðar og líkur eru til að verði settir til hliðar kannske um áratugi enn þá, þá þætti það skammt, þó að hæstv. ríkisstj. fengi heimild til að taka allt að 15 millj. kr. lán í þessu skyni. Ég tel því, að það mundi lítið gagna til þess að þoka þessum málum nokkuð verulega fram á leið, nema þarna væri fengið miklu meira fjármagn. Ég mun því flytja brtt. við þetta frv. um það í fyrsta lag, að í stað 15 millj. kr. komi allt að 50 millj. kr. lán, og tel þó, að sú upphæð muni reynast of lág, ef þjóðfélagið ætlar sér að koma þarna verulega til hjálpar til þess að fiýta framkvæmdum, svo að nokkru nemi. Ég er algerlega sammála flm. um það, að það muni vera auðveldara að fá erlend lán til raforkuframkvæmda heldur en til flestra annarra framkvæmda í landinu og jafnframt að þörfin sé hvergi brýnni, en einmitt að fá lánsfé til slíkra mannvirkja.

Þá vil ég í annan stað gera brtt. við þessa sömu grein frv. á þá lund, að í stað „rafmagnsveitna“ komi: raforkuframkvæmda, — því að það mætti skilja það svo, þegar til framkvæmda kæmi, að þar væri eingöngu átt við, að þessu fé mætti verja til raforkuleiðslna frá raforkuverum, því að það mun vera sú merking, sem er lögð venjulega í orðið rafmagnsveita, þ. e. leiðslurnar frá raforkuverinu, og má vera, að það hafi vakað fyrir flm. að verja þessu lánsfé eingöngu til þess að leggja leiðslur út frá orkuverunum, sem búin eru nú að fá á þriðja hundrað millj. kr. lánsfé í gegnum ríkisaðstoð. En ég vil, að það sé a. m. k. opið fyrir raforkumálastjórninni að verja þessu lánsfé, sem aflað kynni að verða samkvæmt þessu frv., til hvers konar raforkuframkvæmda, sem nauðsynlegar þættu, en ekki aðeins til þess að byggja kerfi út frá þeim orkuverum, sem nú eru í byggingu eða þegar eru til. Ég vildi við þessa umr. málsins boða það, að ég mun flytja þessar brtt. við frv., en sé ekki ástæðu til að leggja þær fram fyrr en við 2. umr.