30.10.1952
Neðri deild: 17. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í C-deild Alþingistíðinda. (3244)

90. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Í þessu frv. okkar hv. 9. landsk. þm. felst það, að hvort hjóna um sig skuli vera sjálfstæður skattþegn, þ. e. a. s., að allar konur skuli verða sjálfstæðir skattborgarar, hvort sem þær starfa á heimili, að sameiginlegum atvinnurekstri eða vinna utan heimilis. Gert er ráð fyrir því, að sértekjur konu séu ávallt skattlagðar hjá henni. Sameiginlegum tekjum hjóna eða heimilis skal hins vegar skipt þannig. að konunni séu taldar allt að 25 þús. kr. Ef hún vinnur úti, en fyrir minni tekjum en 25 þús. krónum, skal hún fá svo mikinn hluta af tekjum mannsins, að tekjur hennar verði 25 þús. kr., en þó aldrei meiri en tekjur mannsins.

Gildandi lög gera ráð fyrir samsköttun hjóna. Sú regla á vafalaust rót sína að rekja til hinna gömlu réttarreglna um sameign hjóna, en reglan um samsköttun hjóna mun í upphafi tvímælalaust hafa haft önnur áhrif, en hún hefur nú. Henni mun í upphafi hafa verið ætlað að veita hjónum nokkur skattfríðindi á þann hátt, að konu, sem vinnur á heimili, eru ekki talin til tekna störf hennar í þágu heimilisins. Á síðari tímum hefur þessi regla hins vegar tekið að hafa allt önnur áhrif, og eru ástæðurnar fyrst og fremst þrjár. Í fyrsta lagi sú, hve algengt það er orðið, að konur vinni utan heimilis, í öðru lagi, hversu persónufrádráttur er lágur, og í þriðja lagi, hversu stighækkun skattstigans er mikil.

Ég skal leyfa mér að nefna mjög einfalt dæmi til þess að sýna í grundvallaratriðum, hver áhrif samsköttunarreglan hefur. Gerum ráð fyrir, að herra A og ungfrú B vinni hvort um sig hálfan daginn fyrir 15 þús. kr. Gerum einnig ráð fyrir, að það dugi þeim til lífsframfæris, ef þau vinna sjálf að nauðsynlegum heimilisstörfum, þ. e., þau matreiða fyrir sig sjálf, þjóna sér sjálf og þar fram eftir götunum. Skatt- og útsvarsgreiðsla þeirra hvors um sig af þessum 15 þús. kr. tekjum nemur 1.253 kr. Nú skulum við gera ráð fyrir því, að þau giftist, en haldi engu að síður algerlega óbreyttum störfum sínum, þ. e., þau haldi áfram að vinna hvort um sig utan heimilisins og haldi áfram að vinna sömu störf á heimilum sínum eða heimili sínu og áður. Eina breytingin er sú, að þau hafa gifzt. En samkv. gildandi skattareglum eru nú tekjurnar lagðar saman, og eiginmaðurinn greiðir nú tekjuskatt og útsvar af 30 þús. kr. tekjum, og skattur og útsvar af þessum tekjum verður 3.629 kr. eða 1123 kr. hærri, en samanlagður skattur og útsvar þessara tveggja einstaklinga var áður. Skattgreiðsla þessara tveggja einstaklinga. sem vinna fyrir hreinum þurftarlaunum, hækkar m. ö. o. um 45% vegna þess eins, að þeir giftast, þótt þeir í engu breyti störfum sínum og efnahagsaðstaða þeirra í lífinu sé nákvæmlega hin sama eftir sem áður.

Nú skulum við í þriðja lagi gera ráð fyrir því, að þau komi á með sér verkaskiptingu, þ. e., að A, eiginmaðurinn taki að vinna úti allan daginn og geti þá unnið helmingi lengri tíma en áður og fái 30 þús. kr. í kaup, en konan, B, taki að vinna öll heimilisstörfin fyrir sig og eiginmanninn. Þá er komið á þeirri verkaskiptingu, sem venjulega er látin sigla í kjölfar hjónabands og er talin eðlileg og hagkvæm báðum aðilum, en skatt og útsvar á, eins og í dæminu á undan, að greiða af 30 þús. kr. Eiginmaðurinn greiðir 3.629 kr. í skatta og útsvar, eða 45% hærri skatt en þessir tveir einstaklingar hefðu greitt, ef þeir hefðu unnið hvor í sínu lagi. Þetta einfalda dæmi sýnir, að samsköttunarregla er óeðlileg 1 sjálfri sér, og í raun og veru er vandamálið, sem hér er á ferðinni, óskylt spurningunni um það, hvort réttmætt sé að skattleggja sérstaklega vinnu kvenna utan heimilis eða ekki. Eðli vandamálsins sjálfs er annað og meira.

Af þessum sökum verður að reikna konunni, sem vinnur á heimili, tekjur. Spurningin er sú, hvort eðlilegt sé að reikna henni tekjur til viðbótar tekjum eiginmannsins eða hvort reikna eigi henni í tekjur hluta af tekjum eiginmannsins, þ. e., hvort skoða á vinnu konunnar í þágu heimilisins sem sjálfstæðar tekjur, þótt ekki sé hún greidd með peningum, og reikna henni þær til viðbótar þeim peningatekjum, sem maðurinn aflar sér með vinnu utan heimilisins. Ef konunni væru reiknaðar tekjur til viðbótar tekjum mannsins, þá greiddi þetta heimili hjónanna skatt af tekjum, sem eru aldrei skattlagðar hjá einstaklingi. Skattur heimilisins yxi því við það, að þessir tveir einstaklingar giftast.

Í þessu frv. er ekki lagt til, að horfið verði frá þeirri grundvallarreglu skattalaga okkar og allra skattalaga nágrannaþjóða, að vinna í þágu eigin heimilis sé skattfrjáls. Auðvitað mætti lækka skattstigann, þannig að þetta kæmi í heild í sama stað niður fyrir hjónin, en einstaklingar nytu þó einnig góðs af þeirri lækkun skattstigans, svo að misræmið gagnvart þeim héldist. Hér yrði einnig um að ræða ívilnun gagnvart atvinnurekstri, sem ýmsum mundi þykja ástæðulaus. Það er og ávallt hæpið að innheimta skatt af reiknuðum tekjum, sem hafa aldrei verið peningatekjur, en það væri gert, ef konunni væri gert að greiða skatt af tekjum til viðbótar tekjum mannsins.

Nú skulum við gera ráð fyrir því sem tilbrigði frá dæminu, sem ég nefndi áðan, að A kæri sig ekki um að kvænast eða engin kæri sig um að giftast honum og hann ráði til sín ráðskonu, af því að hann þarf að halda heimili, t. d. vegna þess, að hann hefur börn eða foreldra á framfæri sinu. Gerum ráð fyrir, að hann greiði ráðskonunni 15 þús. kr. í kaup, svo að hann geti sjálfur unnið utan heimilisins allan daginn. Gerum og ráð fyrir því. að ráðskonan vinni hálfan daginn hjá A, en hálfan daginn fyrir sjálfa sig og komist því af með 15 þús. kr. peningatekjur. A fær ráðskonufrádrátt, sem nú er ca. 3.700 kr. Þetta heimili greiðir því meiri skatt en hjón mundu gera, ef tekjum þeirra yrði skipt. Þetta er óeðlilegt, en orsökin er sú, að ráðskonufrádrátturinn er of lágur, og má ekki rugla þessu vandamáli saman við afleiðingar samsköttunarreglunnar.

Ég tel, að A ætti að hafa heimild til þess að draga frá tekjum sínum greitt ráðskonukaup, ef hann á annað borð er talinn hafa þörf fyrir það að hafa ráðskonu, og þetta frádráttarbæra ráðskonukaup ætti að vera jafnhátt hinu reiknaða kaupi eiginkonunnar sem hámark. Þá kæmi í sama stað niður, hvort þessi einstaklingur væri giftur eða hefði ráðskonu, ef honum er það nauðsynlegt á annað borð, og sú skipun virðist vera eðlileg og skynsamleg. Hinn heimilaði ráðskonufrádráttur, sem nú er jafn persónufrádrætti, 3.700 kr., þyrfti því einnig að hækka.

Í framhaldi af þessu má geta þess, að á það hefur verið bent, að væru reglur þessa frv. samþykktar, væri hjónum, þar sem kona vinnur heima, ívilnað óeðlilega á kostnað hjóna, þar sem konan vinnur úti og þarf að kaupa vinnu ráðskonu. Ég skal skýra þetta með dæmi. Gerum ráð fyrir því, að einstaklingur, X, sé kvæntur og hafi 40 þús. kr. tekjur. Samkv. reglum þessa frv. mundu þær skiptast til helminga. Annar maður, Y, hefur 40 þús. kr. tekjur og kona hans 20 þús. kr. tekjur fyrir vinnu utan heimilis, en þau hafa ráðskonu og greiða henni 20 þús. kr. í kaup., þ. e. allt kaup eiginkonunnar. Raunveruleg aðstaða beggja þessara hjóna er hin sama. Það, sem síðari hjónin hafa afgangs, eftir að tekjur eiginkonunnar hafa farið til greiðslu ráðskonukaupsins, er það sama og hins heimilisins, þar sem húsbóndinn hafði 40 þús. kr. og konan vann heima. En þar eð síðari eiginmaðurinn þyrfti að greiða skatta af 40 þús. kr., en eiginkonan af sínum tekjum, 20 þús. kr., að frádregnum hinum lága ráðskonufrádrætti, ca. 3.700 kr., þá væru síðari hjónin verr sett hvað skattgreiðslu snertir heldur en hin fyrri. Ástæðan til þess misræmis, sem hér kemur fram, er sú, að ráðskonufrádrátturinn er of lágur. Úr þessu á að bæta með því að hækka ráðskonufrádráttinn. Ef eiginmaðurinn mætti draga ráðskonukaupið, 20 þús. kr., frá sínum tekjum, greiddi hvort hjónanna skatt af 20 þús. kr., eins og hjónin á því heimilinu, þar sem konan vann heima. Þess er þó að geta, að vafasamt væri að heimila að draga allt greitt ráðskonukaup frá tekjum mannsins eða konunnar sökum hættu á misnotkun á slíkri heimild. En koma mætti í veg fyrir hættu á slíku með því að hafa sama hámark á heimiluðum ráðskonufrádrætti og hinum reiknuðu eiginkonutekjum. Þá yrði aðstaða þessara tveggja heimila, sem ég nefndi í þessu dæmi, jöfn. En ég endurtek, að þetta vandamál er í sjálfu sér óskylt hinu vandamálinu, hvernig forða eigi hjónum frá stighækkun skattstigans.

Þess ber líka að geta í þessu sambandi, að sú staðreynd, að heimilisvinna er skattfrjáls samkv. núgildandi skattalögum og skattalögum allra nágrannalanda, getur valdið vissu misræmi í skattgreiðslum milli einstaklinga innbyrðis og þeirra annars vegar og hjóna hins vegar. Þetta skal ég líka reyna að skýra með einföldu dæmi. Gerum ráð fyrir, að einstaklingur vinni hálfan daginn fyrir 15 þús. kr. og vinni hinn helming dagsins fyrir sjálfan sig á heimili sínu. Hann greiðir skatt af 15 þús. kr. tekjum. Ef hann fer að vinna fyrir 30 þús. kr. tekjum allan daginn, en kaupir að heimilisvinnu fyrir 15 þús. kr., þ. e. helminginn af öllum tekjum sínum, þá greiðir hann nú skatt af 30 þús. kr. að frádregnum ráðskonufrádrætti. þó að aðstaða hans og raunverulegar tekjur í verðmætum reiknað séu alveg þær sömu og áður. Segja má, að þetta sé óeðlilegt, en á þessu yrði ekki ráðin bót nema með því að taka að telja til tekna alla vinnu, sem unnin er í þágu heimilis. Það er ekki tilætlun þessa frv. að gera svo róttækar breytingar á skattalöggjöfinni, enda væru á slíkri breytingu mjög margir annmarkar, sem ég mun þó ekki ræða frekar, þar eð þessi breyting er ekki lögð til í frv. og mér vitanlega hefur ekki verið upp á henni stungið áður hér á hv. Alþ.

Samsköttunarreglan bitnar sérstaklega illa á þeim konum, sem afla sér tekna með vinnu utan heimilis. Má skýra þetta með dæmi: Kvæntur maður hefur 30 þús. kr. árstekjur. Skattar hans og útsvar nema 3.629 kr. Eiginkona hans vinnur utan heimilis fyrir 20 þús. kr. tekjum. Við þetta hækka skattar og útsvar eiginmannsins upp í 9.478 kr., eða um 5.849 kr. Skattarnir og útsvarið hækka m. ö. o. um 5.849 kr. vegna þess, að eiginkonan vinnur utan heimilisins fyrir 20 þús. kr. tekjum. Ógift kona mundi greiða 2.075 kr. í skatt og útsvar af 20 þús. kr. tekjum. Af tekjum giftu konunnar verður hins vegar að greiða meir en tvöfalda þessa upphæð, eða eins og ég sagði 5.849 kr. Þetta er auðvitað fráleitt, og það má ekki lengur við svo búið standa. Ef þetta fólk hefði verið ógift, hefðu skattar þess og útsvar numið 6.278 kr. Skattarnir og útsvarið nema 9.478 kr. vegna samsköttunarreglunnar, þ. e. vegna þess, að þessir tveir einstaklingar eru giftir. Skattarnir hækka um 50%.

Þeirri spurningu má varpa fram, hver skattgreiðslan hefði orðið, ef maðurinn hefði unnið viðbótarvinnuna, en ekki konan. Það er rétt, að ef eiginmaðurinn hefði aflað 20 þús. kr. tekna með viðbótarvinnu, en ekki konan, þá hefði skatturinn hækkað upp í þá upphæð, sem ég nefndi, þ. e. um 5.849 kr. Hjá því er ekki hægt að komast. En sá munur er hér á, þrátt fyrir hin fögru og ágætu orð, að maður og kona skuli vera eitt, að þau eru samt sem áður tveir einstaklingar, sem geta unnið sér inn hvort sínar tekjur og jafnvel skilið. Hvort þau búa saman gift eða ógift, má með engu móti hafa áhrif á upphæð þeirra opinberu gjalda, sem þeim ber að inna af hendi. Það er ekki aðeins óskynsamlegt, heldur einnig óréttlátt.

Ýmsar till. hafa komið til úrbóta þeim augljósu göllum, sem eru á skattalögunum hvað þetta snertir. Í fyrsta lagi hafa komið fram till. um, að giftar konur, sem vinna utan heimilis, skuli greiða sérskatt af sínum tekjum. Galli á þessari skipan er sá, að þá greiddi gift kona, sem vinnur utan heimilis, lægri skatta af tekjum sínum heldur en kona, sem eykur sameiginlegar atvinnutekjur þeirra hjónanna, þ. e. tekjur þeirra af sameiginlegum atvinnurekstri. Enn fremur greiddi þá það heimili lægri skatta, þar sem konan ynni úti, en annað, þar sem heimilisfaðirinn ynni fyrir jafnmiklum tekjum, og hvort tveggja er auðvitað óeðlilegt. Þá hafa einnig komið fram till. um að leysa allan vandann einvörðungu með hækkun ráðskonufrádráttarins. Á því er sá galli, að sú regla kæmi þeim einum til góða, sem hefðu efni á því að hafa ráðskonu. Þau heimili greiddu þá lægri skatta, sem hefðu ráðskonu, en hin, þar sem húsmóðirin vinnur bæði utan heimilis og heimilisstörf á heimilinu. Þess vegna teljum við, flutningsmenn þessa frv., einu skynsamlegu leiðina til úrbóta á hinum augljósu göllum skattalaganna vera þá að skipta sameiginlegum tekjum hjóna milli þeirra og láta konuna greiða skatt af sínum sértekjum. Í þessu frv. er lagt til að takmarka hlutdeild konunnar í sameiginlegum tekjum við 25 þús. kr. Má auðvitað um það deila, hvort þetta hámark sé eðlilegt eða hæfilegt, hvort það sé of hátt eða lágt. Á það hefur verið bent, að kona, sem vinni utan heimilis, sé betur sett en sú, sem eykur sameiginlegar atvinnutekjur manns síns, vegna þess að sú, sem vinnur utan heimilis, fái allar tekjur sínar reiknaðar sem sértekjur, en sú, sem eykur sameiginlegar atvinnutekjur þeirra hjónanna, geti aldrei fengið sér reiknaðar hærri sértekjur en 25 þús. kr. Það ósamræmi, sem hér er um að ræða, er óhjákvæmilegt, nema því aðeins að sá kostur yrði tekinn að skipta bókstaflega öllum tekjum hjóna til helminga milli þeirra, en ég tel, að á þeirri skipun væru meiri gallar heldur en sá, sem hlýzt af því að binda hlutdeild konunnar í sameiginlegum tekjum við ákveðið hámark. Ég held, að það gæti skapað skilyrði til misnotkunar á þessum reglum, ef heimildin yrði höfð sú, að tekjum hjóna skyldi alltaf skipt til helminga. Ræði ég það að öðru leyti ekki frekar.

Þegar þetta frv. var flutt á síðasta Alþ., hlaut það mikinn stuðning ýmissa félagasamtaka. Alþ. barst fjöldi áskorana um að samþykkja frv., alls um 20 áskoranir, og meðal þeirra voru ýmis mjög fjölmenn samtök. Við flm. þessa frv., hv. 9. landsk. og ég, væntum þess mjög eindregið, að frv. hljóti nú á þessu þingi stuðning þessarar hv. deildar. Við óskum þess, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjhn., og vonum, að hv. n. taki málið til sem skjótastrar meðferðar.