30.10.1952
Neðri deild: 17. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í C-deild Alþingistíðinda. (3245)
90. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Hv. fyrri flm. þessa frv. hefur nú haldið alllanga ræðu og talað fyrir málinu. Ég vil, vegna þess að þetta mál mun eiga að fara í n., aðeins benda á fáein atriði í þessu sambandi, sem mér virðast ekki vera til þess að mæla með því, að frv. verði samþykkt.
Það er augljóst, að það er ákaflega margt, sem má færa þessu máli til gildis, eins og hv. síðasti ræðumaður gerði, en það eru líka augljós nokkur atriði, sem ekki eru til þess fallin að vera sérstaklega til þess að mæla með frv. Sú spurning hlýtur óhjákvæmilega að vakna, þegar þetta frv. er lesið, hvort þjóðfélagið eigi yfirleitt að stuðla að því, að giftar konur vinni utan heimilis, hvort vettvangur giftra kvenna eigi að vera innan heimilisins og starfssviðið aðallega þar eða hvort þær eigi að sækja atvinnu sína utan heimilisins. Það er eðlilegt, að spurning vakni hjá mörgum um það, hvort það sé ekki hollast fyrir þjóðfélagið, að konan helgi heimilinu alla krafta sína og orku óskipta, hvort það sé ekki hollast fyrir hina ungu þjóðfélagsþegna, börnin, að konan, móðirin, sé oftast heima, hvort börnin geti ekki liðið við það í uppeldinu, að konan sé sjaldan heima og gefi sér lítinn tíma til þess að hugsa um börnin. Þessi spurning vaknar hjá mér, og mér finnst, að það sé eðlilegt, að sú kona, sem velur sér starfsvettvang utan heimilisins, greiði nokkuð fyrir það sérstaklega.
Ég er á sama máli og síðasti ræðumaður um það, að ég vil, að konan hafi fullt jafnrétti í þessu þjóðfélagi. Ég vil, að konan hafi fullt jafnrétti, en það er eigi að síður eðlilegt, að menn spyrji um það, hvort það sé þjóðfélagslega hollt og þjóðfélagslega rétt að raska þannig hornsteinum þjóðfélagsins, heimilunum, að konan, sem á mestan þátt í því að byggja þau upp, að konan, sem á mestan og drýgstan þátt í barnauppeldinu, fari út af heimilinu allan daginn og vinni þar og láti svo óviðkomandi konu hugsa um börnin eða láti jafnvel börnin vera umhirðulaus eða umhirðulítil, á meðan hún er fjarverandi.
Svo vaknar önnur spurning líka hjá mér í sambandi við þetta mál, og hún er þannig: Eins og okkur er ljóst, þá er hér oft takmörkuð atvinna, og mér dettur nú í hug, að prófessorinn, hv. fyrri flm. þessa frv., þekkti ef til vill dæmi hér í Rvík um tvenn hjón, sem búa í sömu götunni. Þessi hjón eru bæði jafnvel menntuð og hafa svipuð skilyrði til þess að starfa. Konurnar hafa fengið sömu menntun og gætu leyst sama verkið jafnvel af hendi. Mennirnir eru einnig jafnvel færir til starfs. En ef prófessorinn þekkti nú dæmi um það, að bæði hjónin í öðru húsinu hefðu fulla atvinnu, en hvorugt hjónanna í hinu húsinu fengi atvinnu, mundi þá ekki einhver segja, að þarna væri ójöfnuður á ferð og að það væri ekki rétt, að hjónin í öðru húsinu gætu bæði unnið fyrir fullu kaupi, á meðan hvorugt hjónanna í hinu húsinu fái nokkuð að gera? En þessi dæmi eru til og þau ekki fá, að giftar konur vinna störf, sem heimilisfeður í öðrum húsum nauðsynlega þyrftu að fá, en fá ekki vegna þess, að hjónin bæði, nágrannahjónin, vinna úti fyrir tvöföldum tekjum. Ég held það sé hollast að játa staðreyndir. Og staðreyndin er, að það er oft takmörkuð atvinna, og það eru margir heimilisfeður, sem eiga oft erfitt með að fá vinnu til þess að hafa ofan í fjölskyldu sína og sjá henni borgið. Þá segi ég, að ef við viljum reyna að tryggja það, að allir þegnar þjóðfélagsins hafi nokkuð að bíta og brenna, þá megum við ekki stuðla að því, að sumir geti á þennan hátt fengið tvöföld laun.
Hv. fyrri flm. nefndi hér nokkur dæmi áðan af kvæntum manni, sem hefði í fastar tekjur 30 þús. kr. Telur hann hér með þessu dæmi, sem hann tekur í grg., vafasamt, að hann geti lifað af því. Það er að vísu rétt, að 30 þús. kr. nú eru lágar tekjur. Þó verða ákaflega margir að sætta sig við það að hafa ekki meiri tekjur. Og það má segja, að enginn sveltur, sem hefur 30 þús. kr. tekjur, en sá hinn sami verður e. t. v. að neita sér um margt, sem hann vill kaupa og æskilegt væri að hann gæti keypt. Og svo heldur hv. fyrri flm. áfram og segir: Tökum nú dæmi og segjum, að konan vinni úti og hún fái 20 þús. kr. í tekjur. Þá verða samanlagðar tekjur hjónanna 50 þús. kr., en þá hækka skattar hjónanna um hvorki meira né minna en rúmar 5 þús. kr. — Þetta segir hv. flm. En við það, að konan vinnur úti, hækka tekjur hjónanna samt sem áður um 15 þús. kr. og samanlagðar tekjur hjónanna verða þá 45 þús. í staðinn fyrir 30 þús. Þegar svo er komið, að tekjur heimilisins eru orðnar 45 þús. kr., þá getum við hætt að vorkenna þessu heimili fyrir það, að það hafi ekki nægilegt til þess að bíta og brenna. Og þetta heimili stenzt betur við það að greiða 9.448 kr. í skatta og útsvör heldur en sá maður, sem aðeins hafði 30 þús. kr. tekjur og verður að greiða 3.629 kr.
Ég held, að með þessu frv. sé ekki verið að vinna fyrir þá, sem illa eru settir í þjóðfélaginu, sem verst eru settir. Ef hjónin bæði eiga þess kost að vinna utan heimilisins og þannig tvöfalda tekjur heimilisins, þá eru það ekki þeir þegnar þjóðfélagsins, sem illa eru settir og mest þörf er að bæta fyrir. Hv. flm. flutti sams konar frv. á síðasta þingi og hann flytur nú og talaði jafnmikið fyrir því á síðasta þingi og hann talaði nú, og það er dálítið einkennilegt, að þessi hv. flm., sem oft hefur verið að tala um þá, sem verst eru settir, skuli nú taka upp baráttuna fyrir þá þjóðfélagsþegna, sem bezt eru settir í þessu þjóðfélagi, taka upp baráttuna fyrir þau hjón, sem bæði hafa atvinnu utan heimilisins og tvöfaldar tekjur, en láta svo ógert að gera nokkuð fyrir þá, sem enga atvinnu hafa og lítið hafa að bíta og brenna. Ég held, að hv. Alþ. ætti að leggja þetta frv. á hilluna og leita frekar að leiðum fyrir þá, sem hafa litla og takmarkaða atvinnu og ekki hafa þurftartekjur.