07.11.1952
Neðri deild: 22. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í C-deild Alþingistíðinda. (3264)

120. mál, vinna unglinga og námsmanna

Flm. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Tilgangur þessa frv. er að reyna að bæta nokkuð úr þeim vandræðum. sem verið hafa undanfarið fyrir unglinga, sem slæm efni hafa, til þess að geta haldið áfram námi og tryggt sér vinnu. Það er öllum hv. þm. kunnugt, hvernig gengið hefur til undanfarin ár. Það hefur farið mjög vaxandi atvinnuleysi hjá þjóðinni, og ég ætla hér ekki að ræða um, hvernig það atvinnuleysi kemur við þá fullorðnu og þá, sem fyrir heimilunum eiga að sjá. Það hefur oft verið gert á öðrum vettvangi og ýmsar till. frammi um að reyna eitthvað að gera til þess að bæta úr því. En í þessu frv. hef ég eingöngu haldið mér við það tiltölulega þrönga svið að reyna að tryggja, að þjóðfélagið bæti að einhverju leyti úr þessu atvinnuleysi, að svo miklu leyti sem það kemur við unglingana og þá sérstaklega þá, sem hefðu hug á því sjálfir að geta haldið áfram námi nokkru lengur, en til 16 ára aldurs.

Ég held, að það blandist engum hugur um, að það sé alveg tvímælalaust þjóðarheildinni ákaflega nauðsynlegt, að sem allra flestir af þeim mönnum sem veljast til þess að halda áfram framhaldsnámi, eins og það er kallað, séu menn, sem gera það af áhuga og vinna að því af ósérplægni, en séu ekki svo að segja hálfpískaðir til þess af foreldrum, sem vilji forframa þá og koma þeim í háar stöður. Ég held, að það sé engum efa bundið, að það væri stórkostlegt tjón fyrir þjóðina, svo framarlega sem efni aðstandendanna fyrst og fremst yrðu látin ráða því, hvaða menntun menn hljóta í þjóðfélaginu, þegar 16 ára aldrinum sleppir eða þegar menn yfirleitt útskrifast úr þeim skólum, sem skylda er nú að ganga í. Hins vegar býst ég við, að hver einasti þingmaður hafi orðið þess var, hvað gerzt hefur núna tvö undanfarin ár. Það munu flestir hafa haft meiri eða minni persónuleg kynni af því. Mjög efnilegir unglingar, sem útskrifazt hafa og fyrir nokkrum árum gátu svo að segja alltaf unnið fyrir sér að sumrinu, þannig að þeir slömpuðust svona með ofur lítilli aðstoð í gegnum veturinn, hafa verið þannig staddir, sérstaklega nú í sumar, að þeir hafa gengið um, beðið um vinnu og hvergi getað fengið hana. Ég þekki sjálfur ýmsa unglinga, sem undanfarin ár hafa ýmist verið í síldarvinnu, vegavinnu eða slíku eða í vinnu hjá bændum við landbúnaðinn og hafa nú leitað alls staðar fyrir sér og hvergi getað fengið neitt. Piltar, sem hafa þótt með efnilegustu unglingum í sínum bekkjum, tekið hafa góð próf, en átt fátæka foreldra að eða jafnvel enga foreldra, hafa gengið um göturnar í bæjunum hér á Íslandi, slitið upp skónum sínum án þess að eiga til þess að sóla þá aftur, gengið jafnvel tötrum klæddir og ekki séð nokkra möguleika til þess að fá tækifæri til að vinna fyrir sér til þess að halda áfram skólanámi. Á sama tíma eru svo sumir ungu mennirnir úr auðmannafjölskyldunum hér í Reykjavík látnir skemmta sér í þessum fínu bílum auðmannanna eða ríkisins. Síðan er haldið að þeim, að þeir verði nú endilega að nema, þeir verði endilega að verða stúdentar, þeir verði endilega að fara á háskóla, það sé svo fínt, og jafnvel kostaðir aukakennarar til þess að reyna að troða í þá. Og svoleiðis er verið að reyna að knýja menn, sem engan áhuga hafa fyrir því að læra, til þess að taka próf. Foreldrarnir eiga nægileg efni. Þeir þurfa ekki að vinna. En jafnvel ef foreldrarnir eru svo skynsamir, að þeir sjá, að þeim sé betra að vinna, þá veitist venjulega auðvelt fyrir þá að skaffa þessum mönnum vinnu. Þeir hafa nóg sambönd. Og á meðan ganga efnilegir, fátækir unglingar atvinnulausir, hálfhungraðir, hálfklæðlausir og eru stöðvaðir í því að geta haldið áfram að læra. Afleiðingin verður svo, þegar hærra sækir, þegar kemur t. d. upp í háskólann og annað slíkt, að meginið af mönnunum, sem útskrifast, fer að verða menn, sem eru hálfpíndir í gegnum skóla, áhugalitlir og áhugalausir eiga ríka að, eiga góð sambönd alls staðar og er svo troðið í embætti á eftir. Og hvernig haldið þið, að þjóðfélaginu sé þjónað með þessu móti? Ég held þess vegna að það sé það minnsta, sem er raunverulega hægt að fara fram á, að þeim unglingum af alþýðustétt, sem langar til þess að læra og hafa áhuga fyrir því, sé gefinn kostur á því að mega vinna fyrir sér sjálfir að sumrinu til, til þess að geta stundað nám að vetrinum.

Ég veit, að í þjóðfélögum, sem lengra eru á veg komin í félagsmálum heldur en okkar, er öll skólaganga, alveg upp í háskólana og að þeim meðtöldum, ókeypis fyrir þá, sem hafa áhuga fyrir því að læra, vegna þess að það er litið svo á, að það sé þjóðinni fyrir beztu, að sem allra flestir öðlist sem allra bezta menntun og þjóðin hafi sem allra mestu úr að velja af menntuðum mönnum. Hérna aftur á móti virðist með þeirri stefnu, sem nú er, stefnt að því, að menntunin sé raunverulega eitthvað, sem helzt eigi að stía mönnum frá, sérstaklega þó ef þeir eru fátækir, og á sama tíma eigi að gera menntunina og síðar meir trúnaðarstörfin í þjóðfélaginu að einkaréttindum fyrir þá, sem eiga ríkasta að og haldið hefur verið að skólum meira af metnaðargirnd foreldranna heldur en meira að segja þeirra sjálfra. Ég þekki marga menn af efnuðu fólki, sem hefur verið haldið að skólagöngu á móti þeirra vilja og þeim sjálfum til ógæfu, — menn, sem hefur dauðlangað til þess, þegar þeir voru strákar, að fá að vinna venjuleg verkamannastörf eða vélastörf eða ýmislegt annað slíkt og hefðu getað orðið ágætir menn á slíku sviði, hefðu þeir fengið að gera það, en af því að það þótti ekki nógu fínt, þá var verið að reyna að reka þá til þess að fara í skóla, kosta handa þeim kennara og annað slíkt, þangað til þeir sjálfir, þegar þeir voru búnir að eyða svo og svo mörgum árum ævi sinnar, reka sig meira eða minna á, tóku í taumana og fóru í það, sem hafði verið upprunalega langheppilegast fyrir þá.

Ég fer ekki fram á mikið í þessu litla frv., 1. og 2. gr., og raunverulega ekki fram á annað en það, sem með núverandi lögum, ef þau væru framkvæmd og ef nokkuð skapaðan hlut væri hugsað um að reyna að framkvæma þau, ætti að vera gert. Það er lagt svo fyrir í lögunum um fjárhagsráð, að fjárhagsráð skuli miða starf sitt við það, að öllum verkfærum mönnum sé tryggð næg og örugg atvinna. En þar sem þetta er svo herfilega framkvæmt, að ekki er einu sinni um þetta hugsað hvað snertir þá menn, sem eiga fyrir fjölskyldum að sjá og vinna, þá er náttúrlega ekki við því að búast, að það sé um það hugsað, þegar unglingarnir eiga í hlut, — þeir unglingar, sem enga volduga eiga að og ekki heldur nein verkalýðssamtök til þess að berjast fyrir þeirra rétti. Eins og skiljanlegt er og nauðsynlegt, þá verða verkalýðssamtökin að einbeita sínum krafti, sinni baráttu að því að sjá fyrir því, sem er númer eitt í þessum hlutum, og það er að tryggja fjölskyldufeðrum vinnu, fyrirvinnum heimilanna, og reyna að sjá um það, að þeir menn, sem eiga velferð fjölskyldunnar á herðum sinum og hafa það á ábyrgð sinni, .að hún komist af, geti þó að minnsta kosti fengið vinnu.

Það hefði e. t. v. þótt eðlilegra að fara í þessu frv. lengra, og ég mundi ekki verða á móti því, ef það fengi það góðar undirtektir, að því yrði bætt við að tryggja þessum unglingum í skólum að vetrinum til nokkurn styrk, t. d. með því að auka þá bræðrasjóð, sem er t. d. í menntaskólanum, eða aðra félagssjóði, sem ætlaðir eru til þess, ýmsa gamla sjóði, sem settir voru af ýmsum góðum og framsýnum mönnum á stofn á síðustu öld til þess að reyna að styðja fátæka unglinga hér á Íslandi til náms. En allir slíkir sjóðir hafa á þessum síðustu árum orðið að engu fyrir aðgerðir ríkisins. Ég hefði síður en svo haft á móti því og fagnað því, ef þetta frv. fengi það góðar undirtektir, að það væri hægt frekar að auka þarna við og tryggja þessum unglingum meiri styrk að vetrinum heldur en þeir fá nú. En höfuðatriðið álít ég þó hitt og það er raunverulega það minnsta, sem þjóðin getur sagt við sína æsku, þegar hún útskrifar hana úr skyldunámsskólunum: Eitt skuluð þið þó vita: Þið getið fengið að vinna fyrir ykkur til þess að öðlast menntun. — Þjóðin ætti að biðja þessa unglinga sína um að reyna að öðlast sem mesta menntun. Hún ætti þó að minnsta kosti ekki að banna þeim að fá að vinna fyrir sér að sumrinu til þess að kosta námið að vetrinum. Ég vildi þess vegna vonast til, að það, sem felst í 1. og 2. gr., fengi góðar undirtektir hjá hv. þm.

Í 3. gr. legg ég til, að ríkið leggi fram nokkurt fé til þess að aðstoða þau bæjar- og sveitarfélög, sem kæmu hins vegar upp vinnu fyrir unglinga innan 16 ára aldurs. Það er vitanlegt, hve erfitt hefur verið — og það veit ég að allir eru mér sammála um — fyrir slíka unglinga að hafa vinnu að sumrinu, eins og bæði er þeim hollt og þeirra fjölskyldum oft nauðsynlegt. Og það hafa einstöku bæjarfélög, eins og t. d. Reykjavíkurbær, þegar haft góða forgöngu í þessum efnum, og mundu vafalaust fleiri bæjarfélög vilja gera slíkt. Þarna er lagt til, að ríkisstj. heimilist að verja allt að 2 millj. kr. til þess að leggja fram framlög á móti því, sem viðkomandi bæjarfélög treysta sér til að gera.

Ég vildi mega vona, að þetta litla frv. fengi góðar undirtektir, bæði hér í deildinni og hjá þeirri hv. n., sem ég legg til að það fari til og ég tel eðlilegast að sé menntmn. Ég er auðvitað til viðtals um hverjar þær breytingar á því, sem betur mættu ná þeirri tilgangi, sem fyrir mér vakir, en ég vildi ákaflega mikið óska þess, að slíkt samstarf gæti um þetta náðst, að eitthvað, sem að gagni mætti verða, mætti þó koma út úr flutningi þess. — Ég vildi svo, eins og ég hef tekið fram, leyfa mér að leggja til, að því verði vísað að lokinni þessari umr. til 2. umr. og hv. menntmn.