23.01.1953
Neðri deild: 56. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í C-deild Alþingistíðinda. (3327)

172. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Frsm. meiri hl. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft frv. þetta til athugunar og sent það til umsagnar vitamálastjóra, en umsögn hans um frv. fylgir hér með í nál. frá meiri hl. n. á þskj. 557. Sjútvn. gat ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt, en tveir nm. geta ekki fallizt á að samþ. frv. og hafa gefið út sérstakt nál.

Frv. um landshöfn í Höfn í Hornafirði hefur legið hér fyrir Alþingi áður og verið hér rætt talsvert, svo að málið er í öllum aðalatriðum þm. kunnugt og því ekki þörf á því að ræða ýtarlega um það. En ég vildi þó láta þess getið sérstaklega í sambandi við þetta mál, að svo mikil þörf sem hefur verið á því að undanförnu að fá samþykkt l. um það, að Höfn í Hornafirði yrði tekin í hóp þeirra staða, þar sem yrði gerð landshöfn og ríkið kostaði hafnarframkvæmdirnar að öllu leyti í sambandi við stofnframlag, þá er þó, eins og nú er komið, enn þá ríkari nauðsyn á því, að lög verði sett um þetta efni, heldur en áður var.

Það er kunnugt, að nú eru þegar í byggingu tvær landshafnir, báðar hér að vestanverðu á landinu, önnur í Keflavík og hin í Rifi, en hins vegar hefur Höfn í Hornafirði, sem lengi hefur verið á dagskrá, verið látin bíða. Af þessu leiðir svo það í framkvæmd, að bátar frá Austurlandi neyðast til þess að hætta útgerð að verulegu leyti fyrir suðausturströnd landsins, þar sem þeir hafa lengi áður fiskað á vetrarvertíð og nú t. d. í vetur er svo komið, að næstum allir bátar frá Austurlandi flýja þessa gömlu útgerðarstöð sína og leita til útgerðar til Vestmannaeyja og til Faxaflóa og annarra þeirra hafna, sem hægt er að stunda vetrarvertíð frá og uppfylla betur skilyrði fyrir stærri báta heldur en höfnin í Höfn í Hornafirði. Hitt er svo líka ljóst mál, að aðstæður í Höfn í Hornafirði eru þannig, að það er varla við því að búast að heimamenn þar leggi af eigin rammleik að mestu leyti í þær dýru hafnarframkvæmdir, sem þarna yrði um að ræða, því að á þeirra mælikvarða yrði þarna um talsvert dýrar hafnarframkvæmdir að gera, þótt hins vegar landshöfn í Höfn í Hornafirði yrði engan veginn neitt svipað því eins dýr og t. d. landshöfnin í Keflavík og ekki heldur eins dýr og höfnin í Rifi.

Það er áreiðanlegt, að samþykkt þessa frv., sem er að vísu mjög mikið hagsmunamál fyrir Austfirðinga, er einnig verulegt hagsmunamál fyrir þá, sem veiðar stunda hér við Faxaflóa, því að ég hygg, að þeim þyki flestum vera komið fullnóg af, að útgerð hvaðanæva af landinu svo að segja, t. d. öll útgerðin á Austurlandi, skuli eiga að koma hingað í Faxaflóa og keppa þar öll um tiltölulega takmörkuð mið hér, á sama tíma sem ágæt fiskimið, t. d. fyrir suðausturhluta landsins, eru látin alveg ónotuð vegna ónógra hafnarskilyrða.

Ég skal svo, eins og ég sagði, ekki hafa um þetta verulega mörg orð að þessu sinni. Ég veit, að hv. þm. þekkja málið, úr því að það hefur verið hér til umræðu áður, í öllum aðalatriðum, en meiri hl. sjútvn. leggur til, að þessum stað verði nú bætt við sem þriðja stað á landinu, þar sem ríkið lætur gera landshöfn og gera á þann hátt kleift að koma upp þeim hafnarmannvirkjum, sem þarna vantar tilfinnanlega.