09.12.1952
Neðri deild: 37. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í C-deild Alþingistíðinda. (3348)

176. mál, búfjárhald í bæjum

Pétur Ottesen:

Mér finnst það ekki vera að ófyrirsynju eða ástæðulausu, þótt landbn. vilji þvo hendur sínar af ýmsum ákvæðum, sem í þessu frv. eru fólgin. Ég verð satt að segja að láta í ljós undrun mína á því, að landbn. skuli hafa flutt þetta frv. í því formi, sem það er, því að hér virðist vera að því stefnt með frv. og áreiðanlega tilgangur þeirra, sem að því standa, að gera sem allra erfiðast fyrir um það í bæjarfélögum og hreppsfélögum, að menn geti þar byggt að nokkru afkomu sína á skepnuhaldi, að minnsta kosti sauðfjárframleiðslu, og er á allan hátt leitazt við að gera erfitt fyrir um að hafa þar aðrar skepnur.

Tilefni þessa frv. er það, að hér hefur komið upp í Rvík og Hafnarfirði vilji til þess að gera víðtækar ráðstafanir til að koma í veg fyrir sauðfjáreign ekki einasta í kringum Rvík og Hafnarfjörð, heldur jafnvel á öllum Reykjanesskaganum, að því er virðist. Það hefur nú að vísu verið horfið frá þeirri gereyðingarstefnu í þeim ákvæðum. sem í frv. þessu felast, að setja fortakslaust bann við sauðfjáreign á þessu svæði. Hins vegar er tilætlunin að ná þessu takmarki með því að veita bæjarfélögum heimild til að koma slíku í framkvæmd.

Ég held þess vegna, að það hefði verið miklu réttara, þar sem allar ástæður fyrir þessu frv. eru byggðar á þeim óskum, sem hér hafa komið fram um þetta í Rvík og Hafnarfirði, að byggja þá frv. utan um það, en fara ekki að stíga svo stórt spor eins og í því felst að búa til heimildarlög, sem taka til alls landsins í þessu efni og engar óskir hafa komið annars staðar um. Og mér virðist, að hlutverk landbn. ætti frekar að beinast að því að gera ráðstafanir til þess að styrkja atvinnu manna til þess að afla sér lífsframfæris með því að geta haft búpening, í hvaða formi sem það nú er, heldur en hitt, að fara að leggja upp í hendur skammsýnna manna í þessum efnum vopn og verkfæri, sem geta snúizt alveg á öfuga lund við það.

Ég vildi þess vegna mjög vænta þess, að landbn. athugaði afstöðu sína gagnvart þessu frv. eða þeirri hugmynd, réttara sagt, sem hér kemur fram, og ef hún telur nauðsyn bera til að sinna henni að einhverju leyti, að miða það þá við þá staði, þar sem óskir hafa komið fram um þetta, en fara ekki að þröngva upp á menn, sem engar slíkar óskir hafa borið fram, heimild, sem svo yrði máske síðar notuð til þess, að gerðar yrðu óheppilegar og jafnvel skaðlegar ráðstafanir, sem gefið er undir fótinn með í þessu frv.

Ég veit ekki heldur hvort landbn. hefur gert sér grein fyrir því, til hvað mikils kostnaðar er stefnt með þessu frv. Ef í það væri farið að setja girðingar utan um land allra kaupstaða og kauptúna, þá mundi slíkt sjálfsagt hafa í för með sér ekki lítinn kostnað, og af þessum kostnaði er svo gert ráð fyrir því, að ríkissjóður beri 1/3. Ég held, að þetta sé allathugavert atriði eitt út af fyrir sig. Hitt er alkunnugt, að mjög víða í kauptúnum þessa lands byggist afkoma þeirra að mjög verulegu leyti á gripahaldi, að minnsta kosti að svo miklu leyti, að við ýmis skakkaföll, sem menn, sem þar búa, bíða í sambandi við aðalatvinnu þá, sem þeir reka þar, sjávarútgerð sérstaklega, getur það orðið til þess og verður í mörgum tilfellum til þess að fleyta þeim yfir þá örðugleika, sem þeir komast í, í sambandi við aflabrest og óáran, auk þess sem það er mjög mikilvægt menningar- og uppeldisatriði, að börnin, sem þar alast upp, komist í nokkur kynni við búrekstur, ræktun og annað, sem helzt í hendur við slíkan atvinnurekstur. Það er mjög mikið uppeldis- og menningaratriði. Og mér virðist það satt að segja býsna hart, og alveg sérstaklega af landbn., að bera fram till., sem eru þess eðlis, að hægt sé að gera ráðstafanir, sem brjóta í bága við þetta sjónarmið.

Í 1. gr. frv., — án þess að ég ætli að fara að ræða nokkuð sérstaklega einstakar greinar þessa frv., það á vitanlega ekki við, við 1. umr. málsins, — er það fært fram sem ástæða fyrir nauðsyn á því að gera girðingar um ræktunarlönd tilheyrandi bæjum og kauptúnum, að verjast þurfi ágangi á þau lönd frá aðliggjandi sveitum. Ég hygg, að hitt sé nú miklu algengara, að nærliggjandi sveitir við kaupstaði og kauptún verði fyrir ágangi af þeim, heldur en að brögð séu að því, að ágangur sé úr sveitunum til kaupstaðanna. En eins og frsm. landbn., hv. þm. A-Húnv., tók fram, þá eru svo þröngar skorður settar við gripahaldi í kaupstöðum, þar sem slíkar samþykktir hafa verið gerðar, að það er raunar sama sem útilokun á því, miðað við þá staðhætti, sem hér er um að ræða.

Ég vildi hreyfa þessum athugasemdum við frv., og mér sýnist, eins og komið er, að ekki sé nema um tvennt að gera fyrir hv. landbn., annaðhvort að gerbreyta frv. ellegar þá að beita sér gegn því. Virðist mér blátt áfram vera hlutverk n. að snúast þannig við þessu máli.