10.12.1952
Sameinað þing: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í C-deild Alþingistíðinda. (3354)

180. mál, tollskrá o. fl.

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég veitti því athygli, að hv. frsm. málsins gerði ekki till. um, að frv. yrði vísað til n. Vil ég leyfa mér að gera það að till. minni, að málið fari til fjhn. til athugunar. Þar hafa ætíð tollamál verið til meðferðar, þegar þau liggja fyrir þingi. Mál þetta er að vísu flutt af n., en ég sé ekki, að það breyti neinu í þessu efni. Ef þeir 4 eða 5 hv. þm. í iðnn., sem tóku ákvörðun um að flytja málið, hefðu ritað sín nöfn á það persónulega sem flm., þá hefði málinu að sjálfsögðu verið vísað til fjhn., og ég sé ekki, að það breyti neinu, þó að þeir í stað þess telji málið flutt af þeirri n., sem þeir eiga sæti í.

Ég legg því til, að þetta mál — eins og öll önnur tollamál — fari til fjhn. til athugunar.