12.12.1952
Neðri deild: 39. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í C-deild Alþingistíðinda. (3362)

180. mál, tollskrá o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég hygg, að það megi leita í þingsögunni og það muni ekki koma í ljós, að það hafi nokkru sinni verið hér á hv. Alþ. afgr. nokkurt mál, sem hefur fjallað um tolla eða skatta til ríkissjóðs, þannig að það hafi ekki farið í fjhn. Væri þá algert einsdæmi, ef þannig væri farið að með þetta mál. Ég ætlaði þar að auki að upplýsa í gær, en gat ekki verið við umr., að það er eftir að leggja fyrir þetta Alþ. frv. um breyt. á tollskránni, einmitt um ýmis atriði, sem varða iðnaðinn, og það mun fara í gegnum fjhn., og þess vegna væri það líka eðlilegt, að þetta mál færi til fjhn. og væri skoðað þar í sambandi við hið nýja mál, sem á eftir að koma fram.