12.12.1952
Neðri deild: 39. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í C-deild Alþingistíðinda. (3369)
180. mál, tollskrá o. fl.
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Það eru ekki nema aðeins örfá orð. — Hv. 7. þm. Reykv. drap hér á nokkur mál, hvernig þeim hefði verið vísað til nefndar og hvers eðlis þau væru, og sum af þessum frv., sem hann minntist á, kæmu þó við fjármál. Það er rétt. En það er nokkuð annað, en þegar beinlínis er um skattalöggjöf að ræða. Þó að málsatriði séu þannig vaxin, að um fjármuni geti verið að ræða í þágu ýmissar starfsemi hjá þjóðinni, þá er það nokkuð annað, en þar sem er beinlínis um hreina skattalöggjöf að ræða. Þess vegna er ekki hægt að leggja það til grundvallar um málaflokka og skiptingu milli nefnda, að öllum slíkum málum skuli vera vísað til fjhn. En eitt mál, sem hv. þm. minntist á, var beinlínis skattamál. Það var um endurgreiðslu á tolli við bátasmíði, minnir mig. Það er beinlínis skattamál, og auðvitað átti það að fara í fjhn. og hefur af vangá dm., vitaskuld, verið vísað til þeirrar nefndar, sem þm. nefndi. Hv. þm. leggur einmitt áherzlu á það, að þessu máli hafi verið vísað til iðnn. Og þá fór eins og mig grunaði. Af því að hv. d. hafði orðið á sú skyssa að vísa þessu máli til annarrar nefndar en fjhn., þá á að nota það sem fordæmi til réttlætingar því að fara svona ámóta að, þó að það sé alls ekki viðeigandi. Það var einmitt það, sem ég lagði áherzlu á og mig grunaði. Eitt dæmi er hægt að nefna, sem er hliðstætt þessu, og það á að nota sem fordæmi. Hvað mun þá verða síðar meir, þegar þau fara að tíðkast? Ég ætla, að það sé þess vegna hyggilegt að halda sér við anda laganna, sem við eigum að vinna eftir um þetta efni. — Hitt, sem hann gat sér svo til, að það mundi vera af einhverjum annarlegum ástæðum, það frábið ég mér alveg, að fyrir mér vaki nokkuð annað, en að þetta mál fari nú til þeirrar nefndar, sem á að vinna að því, og hv. þm. getur alveg sparað sér svigurmæli f þeim efnum til annarra manna. „Margur ætlar mann af sér mátulega dyggan.“
Hv. 2. þm. Reykv. var mér sammála um það, hvert málinu skyldi vísa, en sakir þess, að n. hefði mörg mál og gengi seint afgreiðsla, þá fannst mér að hann mundi neyðast til að greiða nú atkvæði með, að þetta héldi áfram sem málefni iðnn. Mér þykir mikið fyrir þessu. Hann á rétt á, að mál séu tekin fyrir innan n., þó að hann sé í minni hl., og það er skylt að taka ákvörðun í n. Hann getur, þegar sú ákvörðun er fengin, gefið út minnihlutaálit, og ég veit, að hæstv. forseti brýtur ekki svo lög á honum, að hann sinni ekki ósk hans áður en löng stund líður að taka það málefni til meðferðar, úr því að nál. er komið. Meiri hl. n. hefur engan rétt á því að liggja á máli, eftir að það er komið fram í deildina, og þann rétt ætti hv. þm. að nota sér. Og ég skal styðja hann í því, ef hann þarf á liðsinni að halda, að málið komi fyrir. (EOl: Þú ættir að láta Framsókn setja þig í nefndina.) Það er nú um seinan á þessu þingi. — Ég vil því vænta, að hv. deild fari ekki að taka upp nýjan sið um afgreiðslu mála og hvernig unnið er að þeim.