12.12.1952
Neðri deild: 39. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í C-deild Alþingistíðinda. (3374)
183. mál, skattfrelsi sparifjár
Flm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Á síðasta Alþingi flutti ég frv. um stofnlánadeild landbúnaðarins og lagði þar til, að gerð yrði tilraun með það, að þeirri deild yrði leyft að taka á móti sparifé, án þess að það væri talið fram til skatts eða væri skattskylt. Þetta var að vissu leyti fellt út úr frv. hér í þessari hv. deild á þann hátt, að það var tekið inn, að þótt leyft yrði að taka þetta fé inn í deildina, án þess að það væri skattskylt, þá yrði að telja það fram. Var talið, að ef ætti að fara inn á þessa leið, þá yrði það að gilda um allt sparifé.
Í hv. Ed. var á síðasta þingi einnig flutt frv. af hv. þm. S-Þ. um skattfrelsi sparifjár, en í því var sá sami ágalli, að það var ákveðið samkvæmt því, að þetta skattfrjálsa sparifé skyldi teljast fram, og frá því sjónarmiði mundi það ekki hafa komið að því gagni, sem nauðsyn ber til, vegna þess að þá voru um leið ótæmandi tækifæri til þess að leggja á það önnur gjöld, en tekju- og eignarskatt.
Nú hef ég leyft mér ásamt hv. 1. þm. Rang. að flytja þetta mál hér fyrir hv. deild í annarri og nýrri mynd, og þetta frv., eins og ég þykist vita að hv. þm. hafi veitt athygli, er á þskj. 426. Samkvæmt þessu frv. er til þess ætlazt, að allt sparifé í landinu, sem stendur inni í bönkum og sparisjóðum og öðrum stofnunum, svo sem innlánsdeildum samvinnufélaga, sé skattfrjálst og það sé ekki skylt að telja það fram til skatts, svo framarlega sem það hefur staðið inni lengur en eitt ár. Það takmörkunarákvæði er í frv. sett til þess, að það sé ekki hægt að braska með þetta á þann hátt að leggja inn um nýár sparifé og taka það út aftur innan skamms og það sé í raun og veru ekki standandi fé inni í viðkomandi innlánsstofnun.
Um einstök atriði í frv. skal ég ekki fara öllu fleiri orðum að þessu sinni, því að það skýrir sig nokkurn veginn sjálft og tilgangur þess er nokkuð skýrður í grg. En ég vil segja örfá orð um málið í heild sinni.
Tilgangurinn með þessu frv. er fyrst og fremst sá að koma í veg fyrir það, að haldið sé áfram að örva eyðsluhneigð þjóðarinnar, því að það hefur óhjákvæmilega orðið til þess að örva eyðsluhneigð meðal þjóðarinnar, að fólkið í landinu hefur tapað að mjög miklu leyti trúnni á það, að það hefði verulegt gildi að eiga peninga inni í lánsstofnunum. Þetta hefur átt sér stað á þann hátt, að allt verðlag, öll laun og allt annað, en peningar, hefur hækkað margfaldlega á síðustu 10–20 árum og allra mest nú á síðustu 12 árum. Enn fremur er það kunnugt, að það hefur hvað eftir annað verið til þess gripið af ríkisvaldinu í nauðvörn að lækka gengi okkar krónu, til þess að ekki yrði alger stöðvun á útflutningsframleiðslunni. Allt er þetta frá mínu sjónarmiði sprottið af þeim öfgum, sem eiga rót sína að rekja til vísitölulaganna og þeirrar skrúfu, sem vísitalan hefur skapað í okkar þjóðfélagi. Það hefur verið, er og verður — frá mínu sjónarmiði — tiltölulega þýðingarlítið að tala um að stöðva dýrtíðarflóðið, sem svo er kallað, meðan sú regla er í gildi að reikna út vísitölu, hvort sem það er mánaðarlega eða á þriggja mánaða fresti, og borga upp í topp öllum launþegum í landinu, sem hefur haft þær afleiðingar í för með sér, að framleiðslustéttirnar hafa gripið til nauðvarna til þess að verða ekki alveg troðnar undir í þessum skrúfugangi.
Nú mætti segja, að þetta frv., sem hér er flutt um skattfrelsi sparifjár, ætti lítinn rétt á sér, vegna þess að það væru ríkir menn, sem ættu peninga í bönkum og sparisjóðum landsins, en það sanna er, að þeir, sem almennt í umræðum manna á milli og hér á Alþingi eru kallaðir ríkir menn, þ. e. verzlunarmenn, verzlunarerindrekar, iðnrekendur. útgerðarmenn, efnaðri bændur o. s. frv., eiga yfirleitt ekki sparifé. Þeirra eignir eru í allt öðru. Þær eru í fasteignum, skipum, vörubirgðum o. s. frv., þeim hlutum, sem nauðsynlegir eru til þess að geta rekið framleiðsluatvinnuvegina. Flestir þessir menn, sennilega með örfáum undantekningum, eru stórskuldugir, skulda bönkum og sparisjóðum og ýmsum öðrum stofnunum, en þeirra efnahagur byggist á því, hve eignirnar eru miklar umfram skuldirnar.
Þeir, sem eiga sparifé í stofnunum landsins, eru fjöldi annarra manna, sem hafa sparað saman af þeim tekjum, sem þeir hafa öðlazt. Er þar fyrst að telja þá menn, sem eru komnir á efri ár og hættir eru atvinnurekstri og hafa selt eignir sínar, en lagt þær fyrir í peningaeign. Þeir, sem þannig stóð á um, áður en verðbólgan skall yfir í þessu landi, hafa orðið fyrir þeim ægilegu óhöppum, að þessar eignir þeirra hafa verið gerðar nálega verðlausar samanborið við allt annað, og ef unnt væri að rétta þessum mönnum ofur litla hjálparhönd, þá er það vissulega skylt og réttmætt. Það var gerð lítils háttar till. í sambandi við afgreiðslu gengislaganna á árunum, en sú till. er nú ekki komin að fullu leyti til framkvæmda enn. Aðrir þeir menn, sem eiga sparifé, eru fjöldi manna, sem eru í launastéttum, fastlaunamenn, verkamenn, iðnaðarmenn o. s. frv., og nokkrir menn einnig meðal sveitamanna. sem ekki hafa eytt sínum tekjum eða lagt þær í framkvæmdir.
Það er þess vegna ekki þannig að skilja, að það séu þeir menn, sem almennt eru kallaðir ríkir menn eða stóreignamenn, sem eiga sparifé í landinu og hér er farið fram á að veita þau hlunnindi, að þetta sé ekki talið fram til skatts og sé undanþegið þeim gjöldum, sem nú hvila þungt á öllum almenningi. En eins og tekið er fram í grg. fyrir þessu frv., þá er aðaltilgangur þess að stuðla að því, ef verða mætti, að draga ofur lítið úr þeim hugsunarhætti, sem nú er mjög ríkjandi í okkar þjóðfélagi, að eyða bara hispurslaust öllu, sem aflað er. Ég man ekki betur, en að það stæði í einhverju áreiðanlegu riti nú í vetur, — ég man ekki, hvort það var í Hagtíðindunum eða annars staðar, — að á s. l. ári hefði verið eytt 17 millj. í erlendum gjaldeyri í ferðalög erlendis, og hvað halda hv. þm. að hafi farið margar millj. eða tugir millj. í ferðalög, þörf og óþörf, innanlands? Við vitum líka, að þótt ekki séu teknar aðrar vörutegundir en áfengi og tóbak, þá er eytt í það nærri 200 millj. á ári hverju síðustu árin. Svona mætti halda áfram að telja, og allt þetta sýnir, að það er ákaflega takmörkuð trú orðin meðal almennings á því, að það hafi nokkuð að þýða að eignast peninga í bönkum og sparisjóðum, vegna þess að þeir verði þá og þegar gerðir verðlausir og þar að auki séu vextirnir að miklu leyti teknir í skatta. Það er breyting á þessu, sem fyrir okkur flm. vakir með flutningi þessa máls, og ég vil mega vænta þess, að hv. þdm. og alþm. yfirleitt hafi það glöggan skilning á því, hvað hér er á ferðinni, að þeir vilji taka þessu máli með fullum velvilja. — Að lokinni þessari umr. legg ég til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.