12.12.1952
Neðri deild: 39. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í C-deild Alþingistíðinda. (3377)
183. mál, skattfrelsi sparifjár
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Hv. frsm. svaraði því miður ekki fyrirspurn minni, sem var um það, hvort hann ætlaðist til þess, að sparað fé væri einnig undanþegið tekjuskatti og útsvari, en ekki einvörðungu eignarskatti til ríkisins og eignarútsvari. Sannleikurinn er sá, að 1. gr. er ekki nákvæmlega orðuð hvað þetta snertir. Ég hygg þó, að greinin mundi verða skilin þannig, að þar væri ekki ætlazt til þess, að sparað fé, sem lagt væri inn í peningastofnanir, væri undanþegið tekjuskatti og útsvari, tekjuútsvari. En ef það er rétt, og ég tel eiginlega ómögulegt að skilja frv. öðruvísi en þannig, með sérstöku tilliti til 3. gr., þar sem sagt er, að vaxtatekjur af skattfrjálsu sparifé skuli vera undanþegnar opinberum sköttum og gjöldum, þá hlýtur maður af því að draga þá ályktun, að sjálft hið sparaða fé eigi hvorki að vera undanþegið tekjuskatti né útsvari. Sé þetta rétt skilið, þá vildi ég benda á, að samþykkt þessa frv. mundi hafa allt of litla þýðingu til þess að rétta hlut þeirra, sem spara fé sitt, því að eignarskatturinn og eignarútsvarið eru svo lág, að sparifjáreigendur mundi ekki muna verulega um þetta.
Þess vegna er það, að ég tel, að athuga þyrfti þetta mál betur og rækilegar. Það, sem sérstaklega kemur til greina í því sambandi, álít ég vera till., sem mjög hefur verið uppi í ýmsum nágrannalandanna, t. d. á Norðurlöndum, að undanþiggja þann hluta af tekjum, sem tekjuhafi sparar, tekjuskatti og þá ef til vill líka útsvari, m. ö. o. gera mönnum ekki skylt að greiða tekjuskatt og útsvar af þeim hluta tekna sinna, sem þeir spara, eða greiða a. m. k. ekki skatt af hinum spöruðu tekjum eftir sama skattstiga og þeir greiða af hinum eyddu tekjum. Þetta er hugmynd, sem ég tel mjög athyglisverða. Hún hefur að vísu ekki náð fram að ganga í neinu nágrannalandanna, þó að hún hafi verið rædd þar í mörg ár, en hana tel ég vera umræðuverða. Og ég vil benda þeirri hv. n., fjhn., sem málið fær til athugunar, á að kynna sér þær umræður, sem farið hafa fram um þetta mál í nágrannalöndunum, og hugleiða, hvort hún treysti sér til þess að taka slíkar ráðstafanir hér til athugunar. Það mundi verða til þess að ýta mjög undir sparnað í framtíðinni, sem vissulega er nauðsynlegt, eins og hv. frsm. tók skýrt fram.
Eitt af því, sem mest háir okkur í okkar efnahagslífi, er einmitt það, hversu sparnaður er lítill. Það má vel vera, að takast mætti að auka sparnað verulega með því annaðhvort að undanþiggja skatti eða létta skatta á þeim hluta tekna, sem er sparaður, en ekki eytt, og um það mundi sparara og sparifjáreigendur muna mjög verulega og margfalt meira en að undanþiggja það sparifé, sem nú er fyrir hendi, undan eignarskatti og eignarútsvari einvörðungu.