03.02.1953
Neðri deild: 64. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í C-deild Alþingistíðinda. (3383)

183. mál, skattfrelsi sparifjár

Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Meiri hl. fjhn. hefur orðið ásáttur um, eins og fram kemur á þskj. 672, að leggja til. að þetta frv. verði samþ. en nm. meiri hl. áskilja sér rétt til þess að flytja og fylgja brtt., og höfum við hv. þm. Snæf. flutt brtt. á þskj. 673.

Þetta frv. var á sínum tíma sent bönkunum þremur hér í Reykjavík, Landsbankanum, Útvegsbankanum og Búnaðarbankanum, og Skattstofu Reykjavíkur og beðið um umsögn þessara aðila, og fylgja nál. meiri hl. umsagnir þessara viðkomandi aðila, sem allir sendu þær. Af þeim kemur það glöggt fram, að bankarnir allir mæla eindregið með samþykkt þessa frv., en fjórði aðilinn, skattstofan, telur hins vegar, að frv. kunni að fela í sér nokkra annmarka, þar sem samþykkt þess mundi torvelda eftirlit með framtölum manna, eins og fram kemur í grg. skattstofunnar.

Ég hygg, að menn almennt séu nokkuð sammála um réttmæti þessa máls, jafnvel þó að n. í heild hafi ekki getað staðið að afgreiðslu þess, og það sé fremur vegna þess, að málið þurfi kannske í einstökum atriðum nánari athugun, en þegar hefur verið gerð. Við höfum hins vegar álitið, nm. meiri hl., sem leggjum eindregið með þessu máli, að þar vegi það þungt á metunum hið samhljóða álit allra bankanna þriggja, að það beri vissulega að taka tillit til þess. Höfuðástæðurnar, sem bankarnir færa nú fyrir því, að það sé rétt að samþykkja frv. þetta um skattfrelsi sparifjár, eru þær, að þeir telja, að með þeim hætti mundu að verulegu leyti örvast sparifjárinnlög manna, sem vissulega mundi þá verða til góðs atvinnu- og framleiðslustarfseminni í landinu og auðvelda starfrækslu bankanna. Það er á það bent í nál. Landsbankans, að í Finnlandi hafi verið gerð tilraun í þessu skyni og samþ. löggjöf um skattfrelsi sparifjár árið 1943, og síðan hafa löggjafarákvæði um þetta verið framlengd. Það er jafnframt á það bent sem eftirtektarvert, að á árinu 1951, þegar sú breyt. var gerð á löggjöf Finna í þessu sambandi, að framtalsskyldunni var aflétt, hafi stórlega hækkað innlánsfé þar í landi, meira en þrefaldazt frá því, sem það var árið áður. Meðal annars með vísun til þessa og samkv. áliti bankanna á öðrum stöðum er af þeirra hálfu lögð mikil áherzla á ákvæði 3. gr. þessa frv., sem mælir fyrir um það, að sparifé skuli ekki vera framtalsskylt.

Ég vil leyfa mér að vísa til nokkurra atriða hér úr þeim umsögnum, sem fyrir liggja. Það kemur fram í umsögn bankastjóra Búnaðarbankans eftirfarandi, þar sem hann heldur þessu fram:

„Verulegur hluti þess“ — þ. e. a. s. sparifjárins — „er ekki talinn fram og verður ekki, enda þótt skattskylt sé að lögum. Og engum heilvita manni kemur til hugar að hefja eltingarleik til að fá það fram talið.“

Að svo miklu leyti sem þessi staðhæfing bankastjórans er rétt, þá vegur auðvitað minna sú gagnrýni, sem kemur fram hjá skattstofunni um það, að skattfrelsi sparifjár muni mjög torvelda eftirlit með skattframtölunum. Ég hygg, að segja megi, að enda þótt skattstofan hafi lagaheimild til þess að fá upplýsingar um innistæður manna og telji í sínu áliti, að það sé mjög hæpið að afnema þá lagaheimild, þá sé það rétt, að henni hafi verið beitt að mjög óverulegu leyti og sennilega alls ekki nema í alveg einstökum undantekningartilfellum. Ég hygg einnig, að það sé ekki fullkomlega á rökum reist í áliti skattstofunnar, þar sem segir, að menn þyrftu ekki að gera skattyfirvöldunum grein fyrir því, hvernig tekna hafi verið aflað til að mynda sparifjáreignina, því að samkv. frv. er að sjálfsögðu teknaframtalsskyldan óbreytt frá því, sem er, en aðeins gert ráð fyrir því, eins og raunar kemur fram í áliti skattstofunnar í upphafi, að undanþiggja sparifé eignarskatti og svo arð af því eða vextina tekjuskatti.

Þær brtt., sem við flytjum, hv. þm. Snæf. og ég, eru í aðalatriðum í samræmi við þær till. eða ábendingar, sem fram komu í áliti Útvegsbankans til breytinga á frv. og komu reyndar einnig fram sumar í ábendingu Búnaðarbankans.

Fyrsta till. er við 2. gr. Í þeirri grein er ákvæði um það, til hvaða sparifjár ákvæði laganna taka. Við leggjum til, þegar um er að ræða innistæðu, sem greiðist innistæðueiganda ákveðnum tíma eftir að hann hefur tilkynnt úttekt hennar, að þá sé það miðað við hálft ár eftir að þessi tilkynning hefur komið, og að því er varðar innistæður, sem bundnar eru til ákveðins tíma í senn og greiðast á tilteknum degi án undangenginnar uppsagnar, sé undanþága l. bundin við, að tíminn milli gjalddaga innistæðunnar sé hálft ár í staðinn fyrir eitt ár, eins og segir í 2. gr. Það kemur fram í áliti Útvegsbankans að, að undanskildum 10 ára bókum, sem litlu máli muni skipta í þessu sambandi, sé lengsti uppsagnarfrestur á innistæðum sex mánuðir og í samræmi við það beri að miða þessar tímaákvarðanir 2. gr., og bendir bankastjóri Búnaðarbankans á þetta sama atriði, svo að það virðist einsætt að breyta þessu, ef menn að öðru leyti verða ásáttir um að fylgja þessu frv.

Þá leggjum við til, að 4. gr. frv. falli niður, þar sem segir, að innistæðueiganda sé í lifanda lífi óheimilt að selja, veðsetja eða ráðstafa á nokkurn annan hátt sparisjóðsbókum eða innlánsskírteinum fyrir skattfrjálsu sparifé, og eru lögð viðurlög við því. Við álítum, að það sé mikil skerðing á þessu frv., ef innistæðueigendur hafi ekki möguleika til þess að nota þetta sparifé til veðsetningar og annarra ráðstafana, og sé því óþarft að setja þá takmörkun, sem í 4. gr. segir. Við skulum segja, að bæði væru foreldrar og venzlamenn, sem eiga slíkt skattfrjálst sparifé. Okkur virðist óeðlilegt, að það verði lagðar hömlur á það, eins og 4. gr. segir, að viðkomandi aðilar t. d. gætu hjálpað sínum nánustu, börnum og niðjum og öðrum, með því að gefa þeim heimild til þess að veðsetja þessa sparifjáreign fyrir t. d. lánum, sem viðkomandi aðili vildi taka, og mætti benda á mörg hliðstæð tilfelli.

Loks er svo þriðja brtt., sem er lítilfjörleg. Það er umorðun á 6. gr., þar sem við viljum, að hún hljóði aðeins þannig, að ráðh. skuli með reglugerð ákveða nánar um framkvæmd laga þessara, og sleppt sé því sérstæða tilfelli, sem fram kemur í 6. gr. frv. eins og nú er, — það verði þá á valdi ráðh., hvort hann vilji taka tillit til þess atriðis, eins og margra annarra, þegar að því kemur að setja reglugerðina, m. ö. o., að 6. gr. verði aðeins almennt ákvæði um það, að ráðh. setji reglugerð um nánari framkvæmd laganna.

Ég tel svo ekki á þessu stigi málsins, að það sé ástæða til þess að hafa um þetta fleiri orð. Við sem sagt leggjum til, þm. Snæf. og ég, að frv. verði samþ. með þessum breyt., sem ég hef lýst, og á bak við það standa, eins og ég sagði áðan, mjög einróma meðmæli frá öllum þessum þremur bönkum hér í Reykjavík, sem frv. hefur verið sent til umsagnar og látið hafa í ljós álit sitt. Og enda þótt við viðurkennum, að það sé viss ástæða til þeirrar varfærni, sem skattstofan bendir á, þá sýnist okkur ekki, að öllu athuguðu, að þær mótbárur, sem þar koma fram, séu það veigamiklar, að þær ættu að valda því, að þetta frv. næði ekki þrátt fyrir það fram að ganga.