03.02.1953
Neðri deild: 64. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í C-deild Alþingistíðinda. (3388)
183. mál, skattfrelsi sparifjár
Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég get nú ekki leynt því, með allri virðingu fyrir hæstv. fjmrh., að ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum af ræðu hans hér. Hæstv. fjmrh. segir, að það, að hann sé ekki búinn að leggja fyrir þingið till. um skattfrelsi sparifjár, sé vegna þess, að rannsókn sé ekki lokið í fjmrn. á þessu máli. Ef þetta er rétt og það strandar á þessu einu, þá hefði maður sannarlega mátt búast við svolítið meiri áhuga og betri undirtektum hjá hæstv. fjmrh. í þessu máli. Og mér finnst, að hann hefði þá átt að telja það þakkarvert, að nokkrir þm. hafa tekið sér fram um að hjálpa svolítið upp á erfiðleikana, sem fjmrn. hefur við að stríða að átta sig á þessu máli. Það ætti a. m. k. að vera nokkur fengur fyrir fjmrn. að fá umsagnir helztu fjármálastofnana landsins, eins og komið hefur fram hér í þinginu.
Þetta segi ég vegna þess, að það sama á við varðandi afstöðu hv. þm. V-Húnv., og þegar hann heldur því fram, að það sé eðlilegt að rannsaka þetta mál betur og vísa því til milliþn. í skattamálum, þá má þetta að vísu til sanns vegar færa, en það dregur auðvitað ákaflega mikið úr áhuga manna til þess að verða nú við þessum tilmælum, þegar hv. þm. les svo upp allar greinar frv. og er á móti hverri einustu og er nú formaður í þessari mþn., sem á að endurskoða málið. Það hefði náttúrlega verið líklegra til þess, að menn vildu fara þessa leið, ef menn hefðu heyrt meiri áhuga og vilja hv. formanns mþn. og þingmanns hér til þess að greiða þessu máli götu heldur en fram kom í ræðu hans.
Mér finnst því miður og hef hugboð um það, að það gæti mjög um of skattheimtusjónarmiðsins hjá báðum þessum mönnum, hæstv. fjmrh. og hv. þm. V-Húnv., í sambandi við þetta mál og að þeir mikli fyrir sér það, sem skattstofan talar um, að það muni kippa fótunum undan því að hafa eftirlit með framtölum manna. En hvar stendur nú skattstofan í þessu máli? Búnaðarbankastjóri segir alveg réttilega: Það er ekki nema lítill hluti af sparifénu, sem er talinn fram. — Ef það er rétt, eins og ég sagði áðan, þá hefur þetta að sjálfsögðu ekki eins mikil áhrif og skattstofan vill vera láta.
Við skulum þá taka dæmi skattstofunnar. Hún talar um kaup og sölu á fasteign, nokkur hundruð þúsund krónur, og svo á viðkomandi maður að fara að tíunda það fyrir skattstofunni, hvernig hann gat eignazt þessa fasteign. Það er alveg rétt, að það getur vel verið, að það sé auðveldara að tíunda það fyrir skattstofunni, ef menn hafa möguleika til að benda á, að þeir hafi getað átt svo og svo mikið skattfrjálst sparifé. En við megum þá ekki heldur gleyma því, hvaða tölur það eru, sem teknar eru. Hvaða tölur eru það, sem gefnar eru upp, þegar menn eru að tíunda fyrir skattstofunni kaup og sölu á fasteignum? Ég held, að allir, sem eitthvað hafa við þessi mál fengizt, viti það með sjálfum sér, að hér er í stórum stíl farið fram hjá þeim raunverulegu kaupupphæðum, sem um er að ræða. M. ö. o., eftir því sem menn reyna að fara lengra upp og ná sér betur niður á að vita til hlítar um efnahag og tekjur og eignir manna, þeim mun lengra ganga borgararnir í því að reyna að komast undan þessu. Þetta er bara staðreynd, sem ekki er hægt að mæla á móti, og þá fer að verða spurning um það, hvort það er ekki meira virði fyrir þjóðfélagið að gera ráðstafanir til þess að örva sparifjármyndun og auka fjármálaviðskiptin í þjóðfélaginu, enda þótt menn á sama tíma geti ekki talið sér trú um, að þeir geti með einhverri hnýsni í skattamálunum uppgötvað hverja krónu, sem skattþegnarnir eiga.
Ég er sammála hæstv. fjmrh. og hv. þm. V-Húnv. í því, að það beri að sjálfsögðu að koma til athugunar, hvort það ætti ekki í þessu sambandi að gera skattfrjáls ríkisskuldabréf, eins og hv. 2. þm. Eyf. benti á. Það væri auðvitað auðvelt að koma slíkri breytingu inn í þetta mál, ef menn hefðu haft áhuga fyrir því. Í Finnlandi var það svo, að einmitt ríkisskuldabréf voru skattfrjáls, eins og kemur fram í plöggum, sem fjhn., hafði til athugunar og Landsbankinn lét henni í té, m. a. í sambandi við skaðabótaskyldu Finna eftir styrjöldina, þar sem ríkið hafði þurft að leita á það að fá sparifé manna, og ýmis önnur tiltekin bréf. En ég get hins vegar ekki fallizt á það sjónarmið hjá hæstv. fjmrh., að þetta sé hættulegt út frá því sjónarmiði, að ef bara sparifé sé skattfrjálst, þá fari allt fjármagnið inn í sparisjóðina og þá sé ekki neitt fé til til þess að gera aðra hluti. Mér þætti nú heldur líklegt, að bankarnir stæðu dálítið betur að vígi, ef sparisjóðirnir fylltust af fé hjá þeim, og það er ekki útilokað, að þeir gætu kannske keypt eitthvað af ríkisskuldabréfum og eitthvað af verðbréfum Framkvæmdabankans væntanlega, m. ö. o. ráðstafað því fé, sem kemur inn, í trygg verðbréf, eins og m. a. eru lögákveðin fyrirmæli um í samþykktum bankanna, að þeir skuli gera að svo og svo miklu marki, en hafa sjálfsagt gert miklu minna, en heppilegt er. Við megum ekki ganga út frá því, að spariféð hverfi eða fé almennings hverfi, ef það er lagt inn í sparisjóði bankanna og peningastofnanir landsins, svo að þetta atriði er ekki eins hættulegt og hæstv. fjmrh. vildi vera láta.
Varðandi það, að frv. geti ekki haft nein áhrif á þessu ári, þá er það að sjálfsögðu alveg rangt, þó að menn eigi að vera búnir að telja fram. Við skulum segja, að sú athugasemd sé rétt í sambandi við 5. gr., þar sem talað er um, að lögin eigi að koma til framkvæmda við skattframtal, og væri kannske eðlilegt að breyta því eitthvað, úr því sem komið er, en það kemur ekki við álagningu opinberra gjalda, og það ákvæði hefur fullkomlega gildi, því að það er meiningin að gera svo og svo mikinn hluta af því fé, sem menn nú hafa talið fram, skattfrjálsan, og það hefur auðvitað gildi eftir sem áður, þó að fyrra atriðið hafi ekki sömu þýðingu eins og í upphafi, þegar frv. var flutt, vegna þess. hvað nú er orðið áliðið.
Eins og hv. 2. þm. Eyf. benti á, þá hefur allt of lítið verið gert að því í okkar þjóðfélagi að taka tillit til þess, hversu slæm áhrif viss ákvæði skattalöggjafar geta haft á fjármálastarfsemi þjóðfélagsins. Hjá okkur er það vissulega svo, að það eru, eins og hann sagði, engar hömlur á því að eyða sparifé, sem menn taka út og láta fara í eyðslu, og telja skattstofunni trú um, að það sé ekki lengur til. Það er ákaflega auðvelt að eyða í okkar þjóðfélagi. En það hefur verið gert torvelt að safna fé og þ. á m. sparifé, og það er engum blöðum um það að fletta, eins og kemur fram í umsögnum bankanna, að það er ríkjandi tortryggni í okkar þjóðfélagi og einhver ótti hjá almenningi við að láta fé koma inn í peningastofnanirnar, og þennan ótta verður að fjarlægja. Og fólkið hefur vissulega ástæðu til þess að hafa nokkurn ótta í þessu efni vegna þess, hvernig búið hefur verið að sparifjáreigendunum, og ég vil nú segja með öðrum ráðstöfunum, eins og eignakönnuninni, sem hefur sennilega verið ein dýrasta og óhagkvæmasta fjármálaráðstöfun, sem gerð hefur verið á seinni árum, því að hún er áreiðanlega búin að kosta ríkið og einstaklinga margfalt meira fé, heldur en ríkissjóður hafði í tekjur af þeirri eignakönnun. Þar er m. a. að leita orsakanna fyrir því, að hæstv. fjmrh. getur ekki selt ríkisskuldabréf og önnur verðbréf, þó að fullkomlega séu tryggð. Það er lögð áherzla á það að fá menn til þess að kaupa þessi bréf á mismunandi tímum, þegar þarf að gera veigamiklar framkvæmdir í þjóðfélaginu, og menn kaupa handhafabréf, en svo kemur ríkisvaldið eftir á og segir: Herrar mínir, nú skuluð þið koma og skila þessu inn og standa svo eins og meira og minna opinberir skattsvikarar eftir. — Afleiðingin fyrir ríkisvaldið verður svo sú, að það nær í bili nokkrum milljónum króna, náttúrlega miklu færri milljónum, heldur en menn voru að gera hér ráð fyrir í þinginu á sínum tíma, og hefur eyðilagt verðbréfamarkaðinn í þjóðfélaginu.
Þess vegna þarf að snúa við á þessari braut, skapa meira traust og eyða tortryggni og fjarlægja fyrst og fremst ótta almennings við að leggja fé inn í peningastofnanir landsmanna og koma þannig í veg fyrir þann leiða hátt, sem hér er í þjóðfélaginu, að menn láta peningana mygla heima í skúffum sínum og verða ekki að því afli í þjóðfélaginu, sem þeir vissulega eðli sínu samkvæmt eiga að vera.