05.02.1953
Neðri deild: 68. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 469 í C-deild Alþingistíðinda. (3402)
183. mál, skattfrelsi sparifjár
Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Það er nú aðeins örstutt athugasemd í tilefni af ræðu hv. þm. N-Þ. Mér varð ekki á neitt mismæli, þegar ég sagði, að það væri enginn skaði skeður, þó að hans till. væri felld nú. Og ég skal skýra það nokkru nánar. Ég viðurkenni góðan hug og tilgang hv. þm. með því að færa málið til betri vegar, eins og hann telur sig vilja gera með þessari till. En ég sagði ekki, þegar ég hélt því fram, að það væri enginn skaði skeður, þótt till. væri felld, að það væri einhver skaði skeður, þótt menn fengju skattfrjáls skuldabréf Búnaðarbankans, fiskveiðasjóðs, iðnlánasjóðs o. s. frv. Það er ekki hægt að leiða þá ályktun af fyrri orðunum. En það, sem ég átti við, var þetta: Það koma fram á síðustu stundu nokkrar tegundir verðbréfa, sem lagt er til að verði skattfrjálsar. Ég geri ráð fyrir, að það þurfi miklu meiri athugunar við, hvort það séu ekki fleiri tegundir verðbréfa og hverjar þá, sem ættu að koma þarna undir. Mér dettur t. d. í hug: Hví ekki veðdeildarbréf Landsbankans eins og sumt, sem þarna er talið fram? Og þess vegna segi ég, að á þessu stigi málsins, sem við nú stöndum, má gjarnan láta bíða til næsta Alþingis að taka ákvarðanir um það, hvaða verðbréf — því að það er töluvert annars eðlis líka — skuli koma inn í þetta. Og það spillir ekkert því, þótt meginefni málsins væri slegið föstu nú, um skattfrelsi sparifjár, — þótt því væri slegið föstu nokkrum tíma eða ári áður en einhverjar tegundir verðbréfa væru gerðar skattfrjálsar.
Þetta var það, sem ég átti við, og vænti þá, að það sé leiðrétt, og annað ætla ég mér ekki með þessari stuttu athugasemd minni að gera. Ég hef sagt áður í umr. um þetta mál, að mér fyndist, að það kæmi fyllilega til athugunar, hvort einhverjar tegundir verðbréfa ættu ekki að vera skattfrjálsar eins og spariféð, og vitnaði þar í dæmi frá löggjöf Finna. Og það, sem fyrir mér hefur vakað, og það, sem ég meinti áðan, var aðeins það, að sá þáttur málsins væri ekki nógu athugaður nú á þessu stigi, en það væri auðvitað nægur tími til að koma því síðar inn í, ef á meginefni málsins væri fallizt núna, eins og frv. liggur fyrir.