20.01.1953
Neðri deild: 53. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í C-deild Alþingistíðinda. (3430)
202. mál, sala á Grímsá
Flm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Þess gerist ekki þörf að fylgja þessu frv. með langri ræðu. Í grg. þess er í meginatriðum tekið fram um rök til þess, að frv. er flutt, en þær röksemdir eru í stuttu máli, að jörð þessi var fyrir nokkrum árum byggð núverandi ábúanda hennar. Jörð þessi var eyðijörð, þegar hún var byggð honum, en var byggð honum til nokkurra ára og með því skilyrði, að hann hefði að þeim tíma loknum lokið við að byggja upp á jörðinni bæði íbúðarhús og gripahús. Hann hefur unnið að ýmsum framkvæmdum á jörðinni, svo sem tiltekið er í grg. Hins vegar hefur hann ekki séð sér fært að ráðast í þessar miklu framkvæmdir. Bæði er það, sem hv. þm. er skiljanlegt, að menn vilja ógjarnan ráðast í slíkar framkvæmdir nema hafa nokkurn veginn vissu um áframhaldandi rétt til jarðarinnar, og því vildi hann ekki í þetta leggja, nema hafa vissu um að geta eignazt jörðina, og í annan stað það, að það eru einnig erfiðleikar á því að hafa á skömmum tíma lokið þeim framkvæmdum, sem nauðsynlegar eru í þessu efni.
Hreppsnefnd viðkomandi hrepps, Hrafnagilshrepps í Eyjafirði, hefur mælt eindregið með því, að orðið sé við beiðni ábúandans um sölu á jörðinni, og leggur áherzlu á, að hún telji heppilegt, að hann eignist jörðina.
Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um málið, en vil aðeins geta þess, að mér láðist að athuga það við flutning málsins, að hér var enn til meðferðar í hv. d. frv. til l. um heimild til sölu á nokkrum jörðum, og hefði væntanlega verið eðlilegast, að till. um sölu þessarar jarðar hefði komið þar inn í, enda hefur hv. landbn. tekið inn þar fleiri jarðir en upphaflega voru í því frv. Ég vildi þess vegna, til þess að greiða fyrir framkvæmd málsins og þar sem mér virðist það vera eðlileg málsmeðferð, leggja til í fyrsta lagi, að þessu frv. verði að sjálfsögðu vísað til hv. landbn., og jafnframt mælast til þess við hv. n., að hún taki þetta mál til athugunar í því formi, að ef hún sæi sér fært að mæla með því, sem ég vona að hún geri, þá taki hún efni þess upp í það frv., sem hér liggur fyrir og mun nú eiga að vera hér til 2. umr. í dag, og taki þá það til athugunar milli 2. og 3. umr. og taki málið upþ sem brtt. við það frv., ef hún sér sér fært að mæla með samþykkt á sölu þessarar jarðar.
Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja frekar um málið, en legg til, að frv. sé að lokinni þessari umr. vísað til hv. landbn.