23.01.1953
Neðri deild: 56. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 497 í C-deild Alþingistíðinda. (3435)

207. mál, byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum

Flm. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Fyrsta ástæðan til þess, að þetta frv. er flutt, er sú, sem venjulega hefur verið, þegar skyld mál hafa verið flutt eins og þetta, nauðsynin á því að bæta úr slæmu húsnæði og húsnæðisskorti hér á okkar landi. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þá nauðsyn. Hún er öllum hv. þm. kunn, og ekki sízt þeim, sem hér í Reykjavík eru og horfa upp á það daglega, hvílíkan húsnæðisskort allur þorrinn af sérstaklega verkamönnum í Reykjavík á enn við að búa. Og ég veit, að það er hjá öllum hv. þm. a. m. k. vitneskja um, hve ófært það húsnæði er orðið, sem sérstaklega það fólk, sem býr í gömlu herbúðunum, kjöllurum og alls konar útihúsum, á hér við að búa. Og hv. þm. utan af landi þekkja líka, hve húsnæðið þar þarf víða á stórkostlegum endurbótum að halda.

Hér í Reykjavík er ástandið þannig, að lög, sem sett voru fyrir 23 árum og bönnuðu íbúðir í kjöllurum, hafa aldrei verið framkvæmd. Og samtímis hefur ástandið versnað svo, að íbúðirnar í kjöllurum, sem bannaðar voru þá, eru taldar skárri íbúðir heldur en íbúðirnar í herbúðunum núna. Af mannúðarástæðum og heilbrigðisástæðum er þess vegna engum efa bundið, að veruleg endurbót í þessu efni á rétt á sér. En það er önnur ástæða, sem ég álít líka rétt að leggja áherzlu á í sambandi við flutning þessa frv. Það er að slá því föstu, að íslenzkir borgarar, sem ekki eiga íbúðir sjálfir, hafi lagalegan rétt, skilyrðislausan rétt til þess að mega byggja yfir sig. Fyrir nokkrum árum, svona 6–7 árum, þurfti ekki að ræða um það hér á Íslandi, hvort menn hefðu þennan rétt. Það hafði hver einasti Íslendingur þennan rétt til þess að mega byggja yfir sig. Hann var hins vegar oft mismunandi illa settur til þess að geta framkvæmt þennan rétt. Hann hafði máske ekki efnahagsleg skilyrði til þess að geta byggt, sem sé fátæktin hindraði hann máske í því að framkvæma þessi mannréttindi sín, og það er, eins og allir hv. þm. vita, ekki ótítt um okkar stjórnarskrá og okkar mannréttindi. Ástandið, sem nú ríkir, er hins vegar það, að menn eru sviptir þessum rétti. Menn þurfa að sækja sérstaklega til yfirvalda til þess að fá rétt til þess að byggja yfir sig, þó að þeir jafnvel geti það efnahagslega séð.

Í byrjun síðasta stríðs voru sett húsaleigulög hér á Íslandi. Þessi húsaleigulög voru sett út frá því sjónarmiði, að aðflutningur byggingarefnis væri þá svo stopull og erfiður, að það væri tvísýnt, að menn gætu notað sér þann almenna rétt, sem þeir höfðu til þess að byggja yfir sig. Þess vegna var það ákveðið, að húseigendur voru sviptir sínum rétti til þess að mega segja mönnum upp. Meðan svo var, þá var ef til vill hægt að fóðra það, að einhverjar takmarkanir væru á því, hve mikinn rétt menn hefðu til þess að byggja í landinu. Nú hafa hins vegar húsaleigulögin verið afnumin, þannig að nú hafa húseigendur rétt til þess að reka hvern mann út úr sínu húsi. Hvert er þá orðið ástandið, sem leigjandi, sem enga íbúð á, á við að búa? Það er það, að hann getur búizt við því, að honum sé sagt upp í því húsnæði, sem hann er, einn góðan veðurdag. Hann þarf að leita til ákveðinna opinberra aðila um leyfi til þess að fá að byggja, ef hann einhvern veginn treystir sér til þess, og hann er ekki viss í að fá það leyfi. M. ö. o., núverandi löggjöf heimilar að reka einn mann út á götuna og neita honum um leið um leyfi til þess að byggja yfir sig. Núverandi löggjöf heimilar að reka mann út á götuna og banna honum að hafa nokkurs staðar möguleika til þess að hafa þak yfir höfuðið. Þetta er algerlega óþolandi ástand. Þetta er svívirðingarblettur á okkar löggjöf, að þau réttindi skuli ekki a. m. k. vera fyrir menn, sem ekki eiga íbúð sjálfir, að þeir hafi réttinn til þess að byggja yfir sig. Og ég vil í 1. gr. þessa frv. þess vegna slá því föstu, að menn hafi slíkan rétt, að menn hafi slíkan almennan rétt. Enn fremur legg ég það til, að sú skylda sé lögð á hendur byggingarnefnd viðkomandi kaupstaðar eða kauptúns að mæla út lóð handa mönnum til byggingar slíkra íbúðarhúsa, en geri þó þá athugasemd þar, að byggingarnefnd viðkomandi kaupstaðar geti gert það að skilyrði gagnvart manni, sem hún mælir út lóð handa, að menn byggi saman, þannig að það geti ekki hver maður krafizt þess að fá lóð út af fyrir sig, heldur geti byggingarnefnd sagt: Hér útvegum við þér möguleika til þess að byggja íbúð handa þér, en það verður að vera í húsi, þar sem þú slærð þér saman með t. d. 3 öðrum eða með 6 öðrum, eða í slíkum byggingum, allt að 3 hæða húsi. Ég set þetta vegna þess, að það er alveg óhugsandi að ætla sér að skapa stóra bæi eða borgir á þann hátt, að þar séu eintóm einbýlishús. Það rís enginn kaupstaður og engir íbúar kaupstaðar eða stórs bæjar og borgar undir slíku skipulagi á borgarbyggð. Þess vegna vil ég tryggja byggingarnefnd þennan rétt. Nú sem stendur er það hins vegar vitanlegt, að Íslendingar hafa ekki rétt til þess að fá útmældar lóðir sér til handa, þannig að þetta er nýr réttur, sem nú er tryggður, að þeir geti fengið útmældar lóðir sér til handa, ýmist sjálfum sér eða ásamt öðrum. Og ég veit, að það er nú sem stendur þannig hérna í Reykjavík, að nú fá menn ekki slíkar lóðir, nema því aðeins að fjárhagsráð sé búið að leyfa mönnum að byggja. M. ö. o., menn geta hvorki fengið lóð né rétt til þess að byggja yfir sig nú sem stendur, svo framarlega sem þeim er vísað út á götuna.

Þessi 1. gr. fer þess vegna beinlínis fram á að slá föstum þeim mannréttindum, að Íslendingur, sem ekki á íbúð sjálfur, eigi kröfu til þess að geta fengið útmælda lóð handa sér einum eða með öðrum og eigi rétt á að byggja. Þetta eru svo einföld mannréttindi, að þetta vonast ég til að menn geti fallizt á.

Nú skal ég taka það fram, að Sósfl. og ég fyrir hans hönd hef áður flutt frv. um almennt frelsi til bygginga á Íslandi á þessu þingi. Því frv. hefur verið vísað til ríkisstj. eða sama sem fellt. Í því frv. var gengið út frá, að menn hefðu almennan rétt til að byggja íbúðarhús, m. ö. o., menn hefðu rétt til þess að byggja íbúðarhús, hvort heldur handa sjálfum sér til þess að selja þau, til þess að leigja þau eða hvernig sem það væri, bara almennan rétt til byggingar íbúðarhúsa. Þessu frv. var vísað frá. Þess vegna hef ég í þessu frv. eingöngu bundið mig við rétt manna til þess að byggja handa sjálfum sér, en hins vegar er gert ráð fyrir, að menn hafi rétt til þess að skapa sér samtök um slíkt. Og í þessu frv. er þess vegna að öllu leyti miðað við það, að menn byggi handa sjálfum sér og geri til þess ýmiss konar samtök.

Ég hef svo tekið upp í þetta frv. þá löggjöf, sem fyrir er um þessi mál. Það má ef til vill segja, að það orki alltaf tvímælis, hvaða aðferð sé rétt að hafa í slíkum efnum. Þessi aðferð var höfð 1946, þegar lögin um útrýmingu heilsuspillandi íbúða voru sett. Þá voru þau lög tekin þar upp í heild, lögin um gömlu verkamannabústaðina og lögin um byggingarsamvinnufélög. Og þetta var allt fellt saman í eina stóra löggjöf. En það var gert með þeim sama hætti eins og ég hef gert hér, að lagagreinarnar eru orðaðar eins og þær voru í hinum upprunalegu lögum. Þess vegna stendur hér sem sé í 2. gr.: „Stofna skal byggingarsjóð“, en hann hefur verið stofnaður fyrir meira en 20 árum, og þannig er það líka í lögunum frá 1946, sem eru sett 17–18 árum eftir að gömlu lögin voru sett. Ég hef álitið rétt að halda þeirri fyrirmynd, sem þar var gefin. Ástæður til þess, að mér þótti réttara að taka öll gömlu lögin upp, þó að sum af þeim séu ekki nema lítið breytt, voru tvær, fyrir utan þessa fyrirmynd frá 1946. Fyrri ástæðan er sú, að þegar maður gerir brtt. við gömul lög, jafnvel gömul lög, sem eru í 2–3 mismunandi lögum frá mismunandi árum, þá verður þetta svo ruglingslegt, að það er varla mögulegt fyrir þann almenna mann að átta sig á þessu. Enn fremur er ég satt að segja orðinn leiður á því að sjá hérna í þinginu koma lög, sem eru t. d. eins og eitt af þeim lagafrv., sem liggja fyrir okkur núna, sem er frv. til laga um breyt. samtals við 5 mismunandi lög frá mismunandi árum, um 20 ára tímabil, og öll lögin talin upp í fyrirsögninni. Ég verð að segja það, að það er hrákasmíði að ganga svona frá lögunum. Það er til skammar fyrir okkur að afgreiða lög á þennan hátt. Við höfum fengið t. d. stjórnarfrv., sem hafa verið svona, og ég skal taka það fram, að þm. eru almennt ekki með svona frágang á sínum lagafrv. Það er ríkisstj., sem býr lög svona skammarlega út. Ég hef í fjhn. alltaf gert athugasemdir við það að láta lögin fara svona frá okkur. Enn fremur verð ég að segja annað. Ég er orðinn svo leiður á því að sjá sömu lögin framlengd alltaf ár eftir ár hérna í þinginu og orðin svo ruglingsleg, að það er varla hægt nema fyrir lögfræðinga að finna út úr, hvað séu raunveruleg lög, eins og t. d. er með mikið af skattalögunum, þannig að ég vildi þess vegna leggja þetta þannig fyrir, þó að ég hafi alls ekki ætlað mér að gera neinar stórbreytingar á þessum köflum, sem ég hef tekið hér upp, þannig að það væri bara skýrara, almennur maður gæti skilið þetta og það væri ekki verið að gera þetta svo flókið, að það væri svo að segja óskiljanlegt.

Nú skal ég þess vegna fara og það mjög fljótt yfir, hverjar eru höfuðbreytingarnar, sem ég legg til að gera í sambandi við þá gömlu kafla, sem ég tek hér upp. Það er í I. kaflanum, þ. e. gömlu lögunum um verkamannabústaðina, fyrst og fremst ein breyt. í 4. gr., og það er um tekjurnar til verkamannabústaðanna. Ég tek þar upp ákvæði um, að ríkissjóður skuli leggja árlega í sjóðinn helming af tekjuafgangi ríkisins af einkasölu á tóbaki. Eins og þeir þm., sem muna eftir gömlum ákvæðum, vita, þá var, þegar lögin um tóbakseinkasölu voru sett, 1931, þetta ákvæði í lögum. M. ö. o., þegar tóbakseinkasalan var fyrst sett á, þá var sagt við þjóðina: Við erum að setja þessa einkasölu á til þess að láta helminginn af ágóðanum af tóbakseinkasölunni renna til verkamannabústaðanna. — Hinn helmingurinn átti, ef ég man rétt, að renna til bygginga í sveitum. Svo var, eins og oft vill verða, þessu kippt burt seinna, þegar búið var að fá tóbakseinkasöluna og þann mikla ágóða, sem af henni er. Þá var tilganginum, sem yfirlýst var að væri með því að setja hana, kippt burt. Ég vil setja þetta aftur í sitt gamla far, sem það einu sinni var, þó að það væri ekki nema mjög stuttan tíma. Og ef byggingarsjóðir verkamannabústaðanna fá nú helminginn af tekjum tóbakseinkasölunnar, eins og þeim var ætlað 1931, þá eru það um 14 millj. kr., ef ég man rétt, eftir áætlun síðustu fjárlaga. Og það mundi vera mjög verulegt framlag til eflingar verkamannabústaðanna, sem vitað er að hafa verið í peningahraki.

Þá geri ég enn fremur þá breytingu í 5. gr., að bæði byggingarfélög verkamanna, sem hér eru í Reykjavík, fái að starfa. Eins og menn rekur máske minni til, þá var á árinu 1939 með sérstökum brbl. það gamla byggingarfélag alþýðu, sem byggt hafði gömlu verkamannabústaðina við Hringbraut og rutt brautina hér með verkamannabústöðum, svipt réttinum til þess að hafa um hönd byggingarstarfsemi. Og ég veit, að þær ráðstafanir mæltust yfirleitt mjög illa fyrir. Ég legg til, að þarna sé þetta leiðrétt, þannig að hinu gamla byggingarfélagi alþýðu, sem á enn þá þessa gömlu bústaði og eftir því sem mér bezt skilst er tiltölulega efnað félag, sé leyft að starfa aftur við hliðina á því félagi, sem síðan hefur starfað. Og slíkt getur ekki orðið til annars en að efla byggingarstarfsemi verkamanna, og það vil ég vona að nú sé hægt að fallast á.

Í 7. gr. geri ég þá breytingu, að stjórn byggingarfélagsins skuli skipuð fimm mönnum, það sé ekki kippt burt þeim ákvæðum, sem fyrirskipa það, að félmrn. skuli útnefna formann og að hlutfallskosningar skuli viðhafðar, sem sé að félögin ákveði það sjálf, svo sem tíðkast um allan slíkan félagsskap, samvinnufélög, verkamannafélög og önnur slík.

Þá skal ég enn fremur taka það fram, að ég hef með aðstoð skrifstofu Alþingis, eða réttara sagt fyrir hennar tilstilli og athugun, látið breyta þarna útreikningum á gömlu ákvæðunum í 7. gr. um, hvaða tekjur menn þurfa að hafa til þess að öðlast þessi réttindi. Það er útfært þarna bara með þeim upphæðum, sem nú gilda samkv. þeim gömlu ákvæðum, þannig að það er sem sé fært í samræmi við núgildandi verðlag, þ. e. í 4. undirgreininni í 7. gr.

Annað er ekki í þeim gömlu lögum verkamannabústaðanna, sem ég hef breytt, og í byggingarsamvinnulögunum engu.

Í 3. kaflanum hins vegar, um útrýmingu heilsuspillandi íbúða, er höfuðbreytingin sú, að ég tek lögin þarna upp eins og þau voru og legg til í síðasta kaflanum að afnema frestunarákvæðin á þeim lögum, þannig að svo framarlega sem mitt frv. yrði samþ., þá er kaflinn um útrýmingu heilsuspillandi íbúða aftur kominn til framkvæmda. Og sveitarfélögin hafa þar með þann rétt, sem þeim var gefinn með samþykkt þeirra laga til þess að útrýma heilsuspillandi íbúðum og fá til þess aðstoð hins opinbera, eins og upprunalega var ætlazt til. Þessi kafli fer sem sé fyrst og fremst fram á það, að það komist aftur í gang, verði aftur í gildi þau lagafyrirmæli. Og ég hef breytt fyrirsögninni um útrýmingu heilsuspillandi íbúða, tekið upp gömlu fyrirsögnina í stað þeirrar nýju.

Allir þessir þrír kaflar miða sérstaklega við það, að mönnum sé hjálpað til þess að hagnýta sér þann rétt, sem þeim er gefinn með 1. gr. laganna. Þar er þeim gefinn sá almenni réttur til að byggja, sá lagalegi réttur til að byggja. Þessir þrír kaflar miða að því að tryggja þeim, sem fátækir eða tekjulitlir eru, efnahagslega möguleika til þess að framkvæma þennan félagslega rétt.

Í 4. kaflanum, um lánadeild smáíbúðarhúsanna, sem líka er tekinn að mestu orðrétt upp, hef ég gert nokkrar breytingar. Í fyrsta lagi að ákveða með 39. gr., að það skuli fela Landsbankanum eða annarri lánsstofnun stjórn lánadeildarinnar ásamt reikningshaldinu og öðru slíku, þannig að það sé tryggt, að þessi lánadeild smáíbúðarhúsa sé rekin á eðlilegan hátt. Með því miða ég við, að þegar menn sækja þarna um lán úr þessari lánadeild, þá geti menn verið öruggir um, að þeir sæti þeirri venjulegu meðferð, sem menn hljóta almennt í lánsstofnunum. Það sé sem sé í fyrsta lagi farið eftir fyrirmælum laganna um, hverjum skuli veita þetta, eins og mælt er fyrir í 43. gr., og í öðru lagi, að bankastjóri eða forstjóri hvaða lánsstofnunar sem er taki því næst þau eðlilegu tillit, sem hverjum forstöðumanni lánsstofnunar þykir almennt rétt að taka. Ég verð að lýsa því yfir, að ég treysti hverjum sem er af forstjórum þeirra banka, sem hér eiga hlut að máli, og annarra lánsstofnana til þess að rækja þetta, en ég álít það hneyksli, eins og var á síðasta ári, að úthlutun lána úr þessari lánadeild smáíbúðarhúsa sé sett í hendur tveggja manna, sem annar er formaður fyrir hinu pólitíska félagi sjálfstæðismanna í Reykjavík og hinn formaður fyrir hinu pólitíska félagi framsóknarmanna í Reykjavík, og þessir menn séu svo án nokkurs tillits til laga og venjulegra siðgæðishátta látnir úthluta þessu eins og þeim þóknast og án nokkurra reglna. Slíkt er hneyksli, sem ekki á að viðgangast, og ég álít, að það sé ólíkt betur komið í höndum venjulegra bankastjóra eða forstjóra lánsstofnana heldur en þannig í höndum ákveðinna pólitískra fulltrúa, sem ríkisstj. skiptir á milli sín að útnefna.

Enn fremur legg ég til í 40. gr., að framlagið sé alls 30 millj. kr. Með þeim upphaflegu ákvæðum og með því, sem nú var til meðhöndlunar á þinginu, þá var það um 20 millj., þannig að eftir minni till. er það 10 millj. hærra. Enn fremur hækka ég ofurlítið réttinn, sem menn hafa til þess að fá lán út á ábyrgð samkv. 41. gr.

Þegar þessir fjórir kaflar hafa verið athugaðir, sem ég nú hef farið stutt yfir, þá eru þar með upp taldar þær mismunandi ráðstafanir. sem lagt er til í þessu frv. að gerðar séu til aðstoðar þeim, sem erfitt eiga með að byggja, og allar eru til fyrir.

Þá kem ég í 5. kaflanum, sem er nýr kafli, að rétti þeirra einstaklinga til veðlána, sem ekki njóta aðstoðar samkv. 1.–4. kafla þessara laga af einni eða annarri ástæðu. Þeir lenda út úr því, en vilja hins vegar og þurfa að byggja sér íbúð og hafa rétt til þess samkv. skilyrðum 1. gr. Þá geri ég með 44. gr. þá till., að veðdeild Landsbankans sé starfrækt þannig, að hún fullnægi skilyrðum þessarar greinar, og að í staðinn fyrir gömlu ákvæðin um helming af virðingarverði sérstakrar nefndar, sem Landsbankinn útnefnir, þá skuli þeir hafa rétt til þess að fá út á 1. veðrétt þriðjunginn af brunabótamati viðkomandi húss, og er mér vissulega ljóst, að það er allmikil hækkun. Enn fremur legg ég þarna til, að seðlabankanum sé það upp á lagt að kaupa þau bankavaxtabréf, sem veðdeildin lætur mönnum í té.

Ég hef áður vakið eftirtekt á því, að það er náttúrlega alveg ófært ástand, að veðdeildin sé ekki starfrækt. Nú sem stendur munu öll veðdeildarbréf, sem enn þá eru í gangi í öllum þeim 17 flokkum, sem gefnir hafa verið út þessi 50 ár, að upphæð 38 millj. kr. Eins og hv. þingmenn vita, þá er brunabótamat á öllum húsum á Íslandi 3.500 millj. kr., þannig að það, sem veðdeild Landsbankans á í bankavaxtabréfum, hefur lánað út í veðlán, er rétt 1% af brunabótamati allra húseigna á Íslandi. Þetta nær vitanlega engri átt. Og þegar slík eign er til eins og húseignir Íslendinga nú skuldlítil, þá er það gefið, að þjóðin hefur fyllilega efnahagslegar aðstæður til þess í gegnum sinn seðlabanka að auka stórum — og það er algerlega tryggt lán sín til þeirra manna, sem ætla að ráðast í að byggja.

Í 45. gr. er svo ákvæði um, að hver sá íslenzkur ríkisborgari, sem á íbúð samsvarandi þeim, sem um getur í 1. gr., — og þetta er alltaf miðað við íbúðir, sem ekki séu stærri en verkamannabústaðalögin gera ráð fyrir, sem sé 4 herbergi í hæsta lagi, — hann eigi kröfu á að fá lán út á 1. veðrétt í veðdeild Landsbanka Íslands samkv. ákvæðum 44. gr. Ég set þetta ákvæði alveg sérstaklega vegna þess, að ég held, að flestum mönnum hljóti að vera ljóst, að það er alvarleg efnahagskreppa yfirvofandi fyrir mjög mikið af þeim mönnum, millistéttarmönnum og verkamönnum, sem eignazt hafa íbúðir á síðustu 10 árum hér á Íslandi. Menn réðust í það af mikilli bjartsýni, sérstaklega fyrir 4–5 árum, að byggja hér eða kaupa sér hús eða íbúðir, gengu út frá tiltölulega öruggum lífskjörum og vildu leggja á sig mikla vinnu, eftirvinnu og aukavinnu auk venjulegrar vinnu, til þess að reyna að borga niður slíkar íbúðir. Almennt voru lánin, sem veitt voru út á slíkar íbúðir, þannig, að þetta var til ákaflega skamms tíma, fimm og tíu ára. Menn þóttust góðir, ef þeir fengu lengri tíma. Og nú hafa kjör manna versnað svo mikið, dýrtíðin verið aukin svo stórkostlega, að fjöldinn allur af þessum mönnum á í miklum erfiðleikum með að halda sínum íbúðum. Hve mikill fjöldi það var, sem eignaðist íbúðir hérna í Reykjavík t. d. á þessum undanförnu tíu árum, má máske sjá af því, að — ég held ég hafi það rétt eftir — það séu taldir vera um 10 þús. eigendur fasteigna í Reykjavík, þannig að það er mjög mikið af bjargálna mönnum, sem eiga eigin íbúð, verkamönnum og millistéttarmönnum. En þeir eiga þetta að nafninu til og skulda ákaflega mikið út á það, og með sífellt þyngri sköttum og versnandi kjörum rísa þeir ekki undir því að eiga þetta, ef þeir verða að eignast það á skömmum tíma, þannig að þeir borgi þetta niður með lánum, sem eru bara til fimm eða tíu eða fimmtán ára. Meginið af öllum húsum og íbúðum, sem hér hafa verið byggðar, og það sama gildir víðast hvar úti um land, á undanförnum árum, er þannig húsnæði, að það á að geta komið þjóðinni að gagni 100–200 ár. Það nær vitanlega engri átt að leggja það á núverandi kynslóð og jafnvel bara að hún í parti af sínu lífi, 5 eða 10 eða 15 árum, borgi þessar eignir upp. Hver mundi verða afleiðingin af því, ef það væri gert? Afleiðingin mundi verða sú, að meginið af verkamönnum og fátækari millistéttarmönnum, sem nú eiga svona íbúðir, missir þær í hendurnar á húsabröskurum, sem kaupa þessar eignir upp á tiltölulega lágu verði, eiga sjálfir mikið fjármagn og leigja þetta síðan út fyrir okurverð á eftir. Þetta er þróun, sem þjóðfélaginu er ekki til heilla. Það er þjóðfélaginu til heilla, að þeim, sem hafa reynt að eignast þessar íbúðir, sé kleift að gera það. Til þess þurfa þeir að fá lán til langs tíma með sæmilegum vöxtum. Og það væri það, svo framarlega sem þeir fengju t. d. út á 1. veðrétt lán út á þriðjunginn af brunabótamati slíkrar íbúðar til 30–40 ára. Það mundi bjarga fjöldanum af þessum mönnum. Ég álít þess vegna, að þetta sé mál, sem allir þeir styðji, sem vilja stuðla að því, að menn, sem hafa af miklum dugnaði verið að reyna að eignast slíkt þak yfir höfuðið, fái að halda því, þeir séu ekki féflettir bókstaflega. En það er það, sem verið er að gera með núverandi efnahagspólitík, ekki sízt efnahagspólitík hæstv. ríkisstj., þegar gengið er að mönnum eins harðvítuglega með skatta og annað slíkt eins og nú er. Þegar samtímis atvinnuleysi er skipulagt þannig í þjóðfélaginu, að í fyrsta lagi eftirvinna og aukavinna er varla til, t. d. fyrir verkamenn, og í öðru lagi þar að auki ekkert öryggi fyrir fasta vinnu árið um kring, heldur þvert á móti tilfinnanlegt atvinnuleysi stóra tíma ársins, þá er það alveg auðséð, að með slíkri efnahagspólitík verður fjöldinn allur af verkamönnum og millistéttarmönnum, sem eitthvað hefur eignazt af íbúðum yfir sig á undanförnum áratug, féflettur; þeir verða rúineraðir. Þess vegna eru 44. og 45. gr. hjá mér um rétt einstaklinga til veðlána til þess að tryggja það, að menn hafi aðgang að lánsstofnununum til þessara framkvæmda, til þess að geta haldið þannig þessum eignum.

6. kaflinn er um innflutning byggingarefnis. Hann er að mestu leyti óbreyttur, nema byrjunin. Þar er ákveðið, að innflutningur á byggingarefni skuli vera frjáls, svo framarlega sem innflutningur á nokkrum vörum sé frjáls, og hins vegar eftir gömlum fyrirmælum, svo framarlega sem hann ekki er það og höft eru á honum. Ég álít, að það eigi að vera alveg óhætt fyrir þjóð, sem er að byggja upp sitt land, þjóð, sem tók við landinu svo að segja húsalausu hvað varanleg hús snerti um aldamótin, að leyfa innflutning á byggingarefni, svo lengi sem hún yfirleitt gefur innflutning á nokkrum vörum frjálsan og svo lengi sem nokkur maður hefur efni á því að byggja í landinu. Þess vegna hef ég sett þetta ákvæði þarna inn í.

Ég vil, eftir þetta stutta yfirlit um þær breytingar, sem ég hef gert þarna á, leyfa mér að vona, að þetta frv. fái góðar viðtökur hér í hv. d., og vil leyfa mér að leggja til, að að lokinni þessari umr. sé því vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn. Ég held áreiðanlega, að lögin um verkamannabústaði og slík hafi lengst af verið í þeirri nefnd í þessari hv. deild.