11.11.1952
Efri deild: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í C-deild Alþingistíðinda. (3466)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Frsm. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Hv. fjhn. fól mér að hafa framsögu með nál. sínu í þessu máli. Ég get verið hér mjög stuttorður, af því að ég gerði sem flm. grein fyrir málinu við 1. umr. og fskj. málsins eru mjög vel upplýsandi um aðalatriði þess.

Fjhn. sendi málið til atvinnumálanefndar þeirrar, sem hæstv. ríkisstj. hefur starfandi. Þetta var sjálfsagt að gera. Atvinnumálanefndin hafði í sumar sem leið ferðazt til Húsavíkur og kynnt sér rækilega atvinnuhætti, atvinnuaðstöðu og atvinnuhag í Húsavík. Nefndin staðfesti í svari sínu það, sem ég sagði við 1. umr. málsins, að atvinnuleysi sverfur mjög að í Húsavík á vetrarmánuðunum. Atvinnumálan. lýsir yfir, að það sé skoðun sín, að togari, sem legði afla sinn á land í Húsavík, sé líklegasta ráðið til þess að draga úr árstíðabundnu atvinnuleysi þar.

Hv. 1. þm. Eyf., form. fjhn., fór þess á leit við fjhn., að hún tæki upp till. um, að ríkisstj. yrði ekki aðeins heimilað að ábyrgjast lán til togarakaupa vegna Húsavíkurkaupstaðar, heldur einnig vegna Ólafsfjarðarkaupstaðar. Ólafsfirðingar eiga við svipað atvinnuleysi að stríða og Húsvíkingar. Þeir hafa einnig mikinn áhuga fyrir að bæta úr því atvinnuleysi með togaraútgerð, telja það helzta eða jafnvel eina sýnilega úrræðið. Í bréfi sínu talaði atvinnumálan. um þann möguleika, að Húsavík og hafnir við Eyjafjörð, t. d. Ólafsfjörður, hagnýttu í félagi togaraafla. Niðurstaðan af athugun og umræðum þessara mála í fjhn. var svo ályktun um að mæla með því, að l. verði út gefin, sem heimili ríkisstj. að ábyrgjast lán fyrir báða kaupstaðina, Húsavík og Ólafsfjörð, til togarakaupa eða fyrir hlutafélög, sem kaupstaðirnir séu þátttakendur í, og nál heimildin hvort sem heldur er til ábyrgðar vegna kaupa eins togara fyrir báða kaupstaðina saman eða kaupa á sínum togaranum fyrir hvorn kaupstað. Verður þá ríkisstj. að meta, hvort sé heppilegra.

Brtt. þær, sem fjhn. flytur á þskj. 196, eru við þetta miðaðar. Enn fremur er sú breyting líka samkv. till. n., að í stað þess að í frv. segir, að togarinn skuli vera veðsettur til tryggingar, þegar ábyrgðin sé veitt, þá segir í till. n., að þær tryggingar skuli settar, sem ríkisstj. meti gildar. Verður það þá samningsmál, hvernig tryggt er, og af n. hálfu ætlazt til, að ríkisstj. geti verið kröfuharðari um tryggingar en frv. áður gerði beinlínis ráð fyrir.

Ég hef sem flm. frv. ekkert við þessar breyt. að athuga. Ég tel mjög eðlilegt, jafnvel sjálfsagt, að Ólafsfjörður fái sams konar aðstoð og Húsavík, þótt það sé fámennari staður. 10 kaupstaðir af 13 kaupstöðum alls í landinu, sem til eru, hafa áður fengið aðstoð til togarakaupa beint eða óbeint og nokkur kauptún þar að auki. Stuðningur við Húsavík og Ólafsfjarðarbæ er því eins og nú er komið hreint og beint jafnréttismál. Ég treysti ríkisstj. til að verða ekki miklu kröfuharðari um tryggingar við þessa kaupstaði en hún hefur áður verið við hina kaupstaðina. Ég þakka meðnm. mínum í fjhn. fyrir það, að þeir hafa allir orðið sammála um að mæla með jákvæðri afgreiðslu málsins, og ég leyfi mér að vænta þess að hv. d. samþykki frv. með þeim breyt., sem fjhn. leggur til á þskj. 196.