11.11.1952
Efri deild: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í C-deild Alþingistíðinda. (3471)
69. mál, kaup á togurum og togveiðibát
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Mér virðist, að frv. þetta, sem hér liggur fyrir, hafi hlotið mjög rausnarlega afgreiðslu hjá n., þar sem allir nm. virðast vera nokkurn veginn samþykkir till. í aðalatriðum. En samkv. ræðu hv. þm. Barð. virðist hann hafa nokkra sérstöðu í málinu, sem hann vill nú láta fram koma með sérstakri brtt. — Ég veit ekki, hvort hv. n. hefur gert sér fyllilega grein fyrir því, hvaða afleiðingar það kynni að hafa, ef till. hennar yrðu samþ. í þinginu. En það er greinilegt, að áhrifin láta ekki á sér standa. Nú þegar er komið fram frv., eins og hæstv. dómsmrh. gat um í sinni ræðu, — frv. þess efnis að ábyrgjast lán til kaupa á togara og togveiðibát fyrir Ísafjörð og sjávarþorpin við Ísafjarðardjúp. Að sjálfsögðu hafa fleiri staðir eða þorp rétt á slíkri fyrirgreiðslu, en Ólafsfjörður og Húsavík, og ef frv. sem þetta er samþ., verður ekki séð, að hægt sé að synja öðrum stöðum um slíka fyrirgreiðslu. (Forseti: Hvað um staði, sem þegar hafa fengið svona fyrirgreiðslu?) — Ég skal ekki segja um það, hvort hægt er að ræða um þá staði, sem þegar hafa fengið fyrirgreiðslu, en það eru margir staðir á landinu, sem enga fyrirgreiðslu hafa fengið og geta með alveg sama rétti óskað eftir slíkri fyrirgreiðslu eins og Ólafsfjörður og Húsavík. Ég geri ráð fyrir, ef þetta yrði samþ., að þingið mundi standa mjög höllum fæti um að synja slíkum beiðnum. En það hefur að líkindum ekki vakað fyrir hv. n., að samþykkt frv. kynni að hafa slíkar afleiðingar, en ég skal þó ekkert fullyrða um, hvað hv. n. hugsar í því efni.
Mér virðist, að brtt. n. sé í raun og veru lítil breyt. frá sjálfu frv., þó að í till. sé tekið fram, að settar skuli tryggingar, sem ríkisstj. metur gildar. Hv. frsm. hefur nú farið fram á, að þetta verði skilið þannig af ríkisstj., að þeir staðir, sem nefndir eru í frv., verði ekki látnir sæta þyngri búsifjum í þessu efni, en þeir staðir, sem þegar hafa fengið togara. Hv. þm. Barð. taldi sig nú ekki geta fallizt á þetta sjónarmið og hefur þess vegna borið fram till. um það, að umræddir staðir skuli leggja fram ákveðna fjárhæð til kaupa á skipunum. Segja má, að það sé í rétta átt að gera stöðunum að skyldu að leggja fram ákveðna fjárhæð. Það sýnir þó, að einhver snefill af grundvelli sé fyrir rekstri skipanna. Ég veit ekki, hvort þessir staðir hafa gert sér grein fyrir því, hvaða fjárhagslega ábyrgð þeir eru að binda sér. Það er kunnugt, að tap í einni veiðiför slíkra skipa getur orðið svo mikið, að staðir eins og Húsavík og Ólafsfjörður gætu ekki risið undir því, — ég segi tap í einni veiðiför. Það sýnir, hversu óskaplega varhugavert er fyrir fátæk bæjarfélög að taka að sér áhættumikinn stórrekstur, en ég kalla það stórrekstur fyrir lítið bæjarfélag að reka togara. Og áhættan er geysileg, eins og oft hefur sýnt sig. Við höfum því reynsluna fyrir okkur. Flest af þeim bæjarfélögum, sem hafa keypt togara, hafa því miður ekki getað rekið þá svo, að þeir gætu borið sig, og flestir af þeim hafa ekki getað staðið undir tapinu. En hvað hugsa þá þessir staðir, sem hér er um að ræða? Hafa þeir gengið út frá því, að þeir gætu sjálfir staðið straum af taprekstri, sem af skipunum kynni að leiða fyrst í stað? Eða reikna þeir með því, að tapið lendi jafnóðum á ríkissjóði og það kemur fram? Reikna þeir með því, að ríkissjóður verði að greiða tapið, en hafi ekki aðstöðu til og muni ekki telja það hyggilegt að taka skipin af bæjarfélögunum? Þetta vandamál liggur einmitt fyrir í dag. Þessi vandi er þingi og ríkisstjórn á höndum í dag, að ákveða, hvort þau skip, sem hafa verið rekin af bæjarfélögum með stórtapi, eigi að halda áfram að vera á þeirra vegum, og þá hvernig eigi að koma því fyrir, að skipin geti haldið áfram að vera á sömu stöðunum. Þegar um þetta er rætt, gera menn sér ekki ætið ljóst, að verið er að stofna fjárhag þessara bæjarfélaga í geipilega hættu. Jafnvel bæjarfélag eins og Vestmannaeyjar, sem má telja vel stætt og stendur vel að vígi, vegna þess að þar er einhver mesta veiðistöð landsins með stóran bátaflota, hefur nú undanfarið verið að kikna undir taprekstri tveggja togara.
Þetta er því ekki eins einfalt mál og hv. n. virðist telja það, að ekki þurfi annað en að samþ. l. á þingi, til þess að þessi tvö bæjarfélög, sem hafa árstíðabundið atvinnuleysi, geti fengið til sín stórrekstur með því að tryggja 10% af andvirði togaranna og án þess að geta sýnt fram á, að þau hafi nokkur tök á að standa undir þessum rekstri. Ef bæjarfélag ræðst í slíkt fyrirtæki, án þess að hægt sé að segja, að það geti annazt útgerðina á venjulegum heilbrigðum rekstrargrundvelli, þá er enginn grundvöllur fyrir þessari fyrirgreiðslu, vegna þess að þá getur þetta bæjarfélag ekki haldið uppi rekstrinum, nema ríkissjóður taki að sér tapið og greiði það og hjálpi svo bæjarfélaginu til þess að halda taprekstrinum við, ef það sýnist óhjákvæmilegt vegna atvinnuástandsins.