18.11.1952
Efri deild: 28. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í C-deild Alþingistíðinda. (3484)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Forseti (BSt):

Og af ummælum hæstv. dómsmrh. vil ég geta þess, að ég kannast ekki við, að ég hafi verið með nokkrar ádeilur, a. m. k. ekki að þessu sinni og ekki í gær, til hæstv. ráðh. út af því, að þeir mættu ekki hér í d. Það var hv. þm. Barð., sem var með ádeilur út af því, að hæstv. fjmrh. væri hér ekki mættur, og það hafa oft komið kröfur til mín frá ýmsum hv. dm. um það, að ég sæi um það, að þessi og þessi hæstv. ráðh. væri hér viðstaddur. Ég get ekki tekið slíkt að mér.

Að öðru leyti út af því, sem hæstv. ráðh. sagði um starf ráðh. og annað slíkt, þá get ég látið mér það skiljast. En benda má á það, að hæstv. ráðherrar, allir þeir, sem nú eru í rn„ eru jafnframt þm. og þingsköp hafa ákveðið að segja um skyldu alþm. til þess að sækja þingfundi. En hitt er rétt, að það verður síður gerð krafa. til þeirra ráðh., sem ekki eru þm. í þeirri d., sem um er að ræða, að þeir mæti, heldur en hinna. Annars skal ég taka það fram sem forseti þessarar d., að ef um einhverja ásökun væri að ræða frá minni hendi í þessu efni, sem ekki er, þá væri hún nú sízt til hæstv. dómsmrh., því að það vita allir hv. þdm. hér, að hann sækir hér mest fundi af hæstv. ráðh.