25.11.1952
Efri deild: 31. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í C-deild Alþingistíðinda. (3494)
69. mál, kaup á togurum og togveiðibát
Forseti (BSt):
Mér hefur borizt svo hljóðandi skrifleg brtt. við brtt. á þskj. 263 frá Brynjólfi Bjarnasyni:
„Í stað orðanna „einhver aðili, sem hún metur til þess hæfan,“ komi: hlutaðeigandi bæjar- eða hreppsfélag eða hlutafélag, sem bærinn eða hreppurinn er þátttakandi í.“
Þessi till. er of seint fram komin og þar að auki skrifleg og þarf tvöföld afbrigði, sem ég leita hér með.