29.11.1952
Efri deild: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í C-deild Alþingistíðinda. (3504)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Forseti (BSt):

Mér hefur borizt svo hljóðandi brtt. við frv. frá Bjarna Benediktssyni:

„Aftan við 1. gr. frv. bætist ný mgr., svo hljóðandi: Ef ábyrgð samkv. 1. mgr. á að veita til kaupa á skipi, sem skrásett er á öðrum stað innlendum, og það hefur verið gert út þaðan, þá skal ríkisstj. leita eftir því, hvort sveitarfélag eða félag, sem það er þátttakandi í, er fúst til að gera skipið þaðan út, og gefa því þá kost á sams konar ábyrgð til kaupanna. Skal á þann hátt tryggja, að íbúar þess staðar, sem skipið hefur verið gert út frá, verði ekki sviptir atvinnumöguleikum með því, að meiri hlunnindi séu veitt af hálfu ríkisins til hagnýtingar atvinnutækjanna annars staðar.“

Þessi brtt. er skrifleg og of seint fram komin og þarf því afbrigði.