29.11.1952
Efri deild: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í C-deild Alþingistíðinda. (3506)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Frsm. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Hæstv. dómsmrh. hefur nú skotið fyrir þetta mál öðru fótakefli. Menn minnast fótakeflisins frá 2. umr. Og viðinn í þetta kefli virðist hann nú hafa sótt í austurátt, þangað sem hann er annars ekki talinn vanur að leita efnis. En till. ber þetta glöggt með sér, því þó að málað hafi verið yfir viðinn, þá grisjar í vindinn.

Það, sem ég hef fyrst og fremst við þessa till. að athuga, miðað við tilgang minn með að bera fram það frv., sem hér er til umr., er það, að í till. er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. sé skyld að leita uppi kaupanda á útgerðarstað skips, sem á að selja, leita uppi vilja bæjarstjórnar eða félags, sem bæjarstjórn á að taka þátt í, og um leið skyldug að veita slíkum aðilum sams konar ábyrgð og farið er fram á í frv. að tilteknum bæjum sé veitt. Nú er það vafalaust tilgangur með ríkisábyrgð jafnan, slíkri sem hér um ræðir, að veittur sé stuðningur til sjálfsbjargar. Og nauðsynin á að veita slíkan stuðning hlýtur að fara eftir því, hversu erfitt þeir aðilar eiga með sjálfsbjörgina, sem fara fram á stuðninginn. Það hefur líka orðið sú reyndin um togaraábyrgðir hjá ríkinu, að þær hafa verið mjög veittar eftir efnum og ástæðum. Mér skilst eftir ábyggilegum heimildum, að t. d. hafi sumir aðilar ekki af eigin rammleik lagt fram öllu meira en 300 þús. kr. af ca. 10 millj. kr. kaupverði, en fengið aðstoð ríkisins með ábyrgðum til að standast straum af ca. 97%. Ég segi ekki, að þetta hafi ekki verið nauðsynlegt — ég segi það alls ekki. Ég segi einmitt, að það sé nauðsynlegt, að þær heimildir, sem ríkisstj. eru veittar, séu miðaðar við það, að hún megi fara eftir efnum og ástæðum, nauðsyn og sanngirni. Ég hef litið svo á, að Húsavík þyrfti 90% ábyrgð, en ég þykist viss um það, að ýmis bæjarfélög og félög, sem mynduðust með þátttöku þeirra bæjarfélaga, mundu ekki þurfa jafnmikla ábyrgð. Og það er alls ekki rétt, að ríkið veiti svo háa ábyrgð, nema nauðsyn beri til. En brtt. sú, sem hér liggur fyrir, skyldar ríkisstj. til þess að veita þá ábyrgð, sem í frv. ræðir um, hverju bæjarfélagi og hverju því félagi öðru, sem slíkt bæjarfélag er þátttakandi í, án tillits til þarfar. Í henni gætir ekki þess grundvallar, sem á að gæta um ríkisábyrgðir. En þar sem þessi till. er hreinlega afturgengin till., sem hér var felld við 2. umr., þá vænti ég, að hv. d. sé sjálfri sér svo samkvæm, að hún felli afturgönguna líka og samþ. frv. eins og það liggur fyrir óbreytt.