04.02.1953
Neðri deild: 66. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í C-deild Alþingistíðinda. (3516)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Frsm. 1. minni hl. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Þetta mál hefur verið alllengi í fjhn. þessarar hv. d. Það kom til fjhn. 12. des., og ég hef held ég á flestum fundum, sem fjhn. hefur haldið síðan, óskað eftir afgreiðslu á þessu máli. Það hefur gengið erfiðlega að fá hana til þess, og loks í lok janúar gaf ég út stutt nál., 28. jan., þar sem ég lagði til, að þetta frv. yrði samþ., og 30. jan. var þetta mál tekið fyrir í fjhn., og þar var gengið formlega frá álitum nm., sem reyndust því miður mjög sundurleit, þannig að nú er svo komið, að hér liggja fyrir fjórir minni hl., og geta þeir nú varla verið miklu fleiri. Á þeim fundi lagði hv. form. n., hv. þm. V-Húnv., til, að málinu væri vísað til ríkisstj., og ég var satt að segja farinn að örvænta um það, að nokkur leið væri að koma þessu máli í gegn, svo þungt hefur verið á það lagzt. Ég gerði það aðeins að minni till. í nál., að frv. væri samþ. Ég gerði það með tilliti til þess, að höfuðatriðið í þessu máli væri að reyna að fá málið fram, — mér liggur við að segja, í einhverri mynd, — þannig að það kæmist þó út úr þinginu, en kafnaði ekki í n. eða stöðvaðist í umræðunum á síðustu dögum þingsins. Fyrir mér er það þess vegna höfuðatriði að geta fengið málið samþykkt.

Ég verð að vísu að segja, að það er ekki heppileg aðferð um framgang mála á Alþ., þegar eitt mál kemur fram, eins og þetta mál í Ed. upprunalega viðvíkjandi Húsavík, að hengja mörg mál aftan í. Það er ekki heppilegt og það er ekki æskilegt að vera með þennan hátt á. Það væri æskilegra að afgreiða önnur slík mál sjálfstætt, láta hvert mál fá að ganga út af fyrir sig. Hins vegar, svo fremi sem möguleiki er á því að koma málinu í gegn með því að það séu þarna fleiri, sem hafi samflot, þá álít ég það líka niðurstöðu, sem sé æskileg. Ég álít, að það hefði verið heppilegt, ef það hefði verið hægt að ná samkomulagi um örugga afgreiðslu málsins, að veruleg breyting hefði fengizt á 1. gr. eins og hún er nú, jafnvel brottfall, ef maður óttaðist ekki það, að málið yrði fellt í Ed. Vandræðin við að afgreiða mál út úr n. eins og fjhn. hefur afgreitt þetta mál núna, í fjórum minni hl., eru, að maður hefur ekki hugmynd um, hvernig flokkarnir raunverulega standa í þinginu að því að koma svona máli fram; og þegar sá stjórnarflokkurinn, sem hefur hjá sér fjmrh., sem þetta mál kemur sérstaklega undir, leggur raunverulega til að vísa því til stjórnarinnar, þá er ekki efnilegt á að lítast um að tryggja afgreiðslu á svona máli. Hins vegar er alveg gefið, að svo framarlega sem farið yrði að senda málið aftur í Ed., þá er allt málið komið í vandræði og hins vegar engin vissa fyrir, hvernig þeir flokkar, sem að þessu hafa staðið, mundu taka í það, þegar þangað kæmi.

Ef allt hefði verið með eðlilegum hætti, þá hefði átt að vera hægt að semja í fjhn. um afgreiðslu þessa máls, þannig að það myndaðist starfhæfur meiri hl., sem á bak við málið stæði og kæmi því í gegn. Því hefði ég fyrir mitt leyti gjarnan viljað stuðla að.

Ég vil freista að laga a. m. k. 1. gr., ef ekki verða meiri breytingar á henni gerðar, seinni málsgr., þar sem stendur: „sveitarfélag eða félag, sem það er þátttakandi í“ — að þessi orð: „eða félag, sem það er þátttakandi í“ — væru felld burt. Ég álít, að það væri mikil bót á þeirri grein. Og ég vil leyfa mér að leggja fram brtt. um það, að við 1. gr. komi svo hljóðandi breyting, að orðin í 2. mgr.: „eða félag, sem það er þátttakandi í“ — falli burt, og verð ég að biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir því.

Ég mun fyrir mitt leyti haga afstöðu minni við atkvgr. viðvíkjandi þessum till., sem hérna liggja fyrir, þar sem allt er óvíst um, hvernig meiri hluti geti skapazt um málið, — ég mun haga því eftir því, hvernig mér lízt á að bezt verði hægt að tryggja framgang þessa máls hér í þessari d. og í Ed. Og ég vil vona, að hverjir þeir, sem standa að því að samþ. brtt., sem gætu þannig tryggt málinu betur framgang, tryggi það þá um leið, að það haldi áfram í þessari d. og verði samþ. í Ed. Hins vegar er þetta alveg ófært ástand, að mál, sem eru eins mikilvæg fyrir atvinnulíf ýmissa staða á landinu eins og þetta, séu látin liggja svona lengi eins og þarna er um að ræða í n. og allt sé svo komið í hönk á síðustu dögum þingsins með þau. Þetta nær ekki nokkurri átt í afgreiðslu mála hér á Alþ. Og ég álít, að staðir, sem eru að berjast við fátækt og atvinnuleysi, eigi skilið betri meðferð af hálfu Alþ. heldur en þetta. En höfuðatriðið verður nú sem sé að greiða úr þeirri hönk, sem þetta er komið í, og reyna að bjarga málinu þannig, að það verði þó afgreitt frá þinginu svoleiðis, að það geti komið þessum stöðum, fleiri eða færri, að gagni.

Ég vil svo leyfa mér að biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir þessari brtt.