06.02.1953
Neðri deild: 69. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í C-deild Alþingistíðinda. (3525)
69. mál, kaup á togurum og togveiðibát
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Ég hef til þessa lýst litlu fylgi við það frv., sem hér liggur fyrir, en ekki hefur það fylgi aukizt við þær breytingar, sem orðið hafa á frv. í þessari hv. deild. Þegar frv. kom fyrst til umr. í Ed., þá lýsti ég þar minni afstöðu að nokkru, en hún er sú, að ég teldi heldur lítið ráðlegt að veita ríkisábyrgð til lítilla bæjarfélaga til þess að kaupa þessi dýru og stórvirku framleiðslutæki.
Ég get vel skilið það, að bæjarfélög vilji gjarnan auka atvinnuskilyrði sín. En þau verða þá að aukast á þann hátt, sem viðkomandi bæjarfélög fá við ráðið. Ég tel, að það sé í allt of mikið ráðizt fyrir lítil bæjarfélög, eins og t. d. Húsavík og Ólafsfjörð, að taka að sér rekstur á slíkum atvinnutækjum sem togararnir eru, vegna þess að það er hverjum manni ljóst, sem nokkuð þekkir til þessa atvinnurekstrar, að áhættan er svo mikil, að einn eða tveir veiðitúrar geta gert þessi bæjarfélög gjaldþrota. Við vitum það, að það hefur komið fyrir, að togarar hafa tapað 200–300 þús. kr. í einum túr eða á 3–4 vikum. Og það, sem einu sinni hefur komið fyrir í því efni, getur komið fyrir aftur. En það mælir ekki með þessu að mínu áliti, ef þessi bæjarfélög, sem ætla að fá þessi tæki til þess að auka atvinnu á staðnum, gera það með það í huga, að ef illa fer, þá eigi ríkið að hlaupa undir bagga. Það er ekki hægt fyrir Alþ. að viðurkenna þennan hugsunarhátt. En því miður hefur þetta viljað brenna við. Þetta var sagt fyrir, þegar ýmis bæjarfélög keyptu togara hér áður, og það er komið á daginn, að þeir spádómar reyndust réttir. Ég er ekki að segja, að það eigi ekki að hjálpa þessum bæjarfélögum til þess að auka atvinnuskilyrði sín. En það má ekki gera það á þann hátt, að fjárhag þeirra sé stefnt í beinan voða, eða með þeim hætti, að ef illa fer og bæjarfélagið getur ekki staðið undir því, þá eigi ríkið að taka við. Það er það sama sem gerzt hefur með nokkur bæjarfélög, sem nú eru í vandræðum með að standa í skilum með skuldir af sinni togaraútgerð. Ég skal ekki fara neitt frekar út í það hér, þingmönnum er öllum kunnugt, hvernig það stendur. En það er svo erfitt að ráða fram úr því öngþveiti, að ég hygg, að það sé ekki enn fundinn grundvöllur fyrir því að reisa það við, þannig að skipin geti verið á þeim stöðum, sem þau hafa verið gerð út frá hingað til, þó að það sé fullur vilji til þess hjá ríkisstj. og öðrum, sem hlut eiga að máli, að skipin megi halda áfram að vera á þessum stöðum og veita þar atvinnu. En það er líka athyglisvert, að eitt af þessum skipum tapar, ef ég man rétt, um 800 þús. kr. á einu árl. Því verður ekki neitað, að þeir togarar, sem eru nú í eigu bæjarfélaga, hafa flestir verið verr reknir, en þeir togarar, sem eru í eigu einstakra manna eða félaga. Þetta er skiljanlegt. Þetta er sú gamla reynsla, sem við höfum af ríkisrekstri, að það er ekki sama þekking, sama reynsla og sama hugsun, sem þar liggur til grundvallar fyrir rekstrinum. Og það, sem er eitrið við rótina í þessu öllu saman, er það, að það er alltaf gert ráð fyrir því í sambandi við þessi skip, að ef hallast á, þá er það ríkið, sem hleypur undir baggann.
Til þess að leiðrétta lítils háttar þá breytingu, sem gerð hefur verið í hv. d. á frv., ætla ég að leyfa mér að bera hér fram brtt., sem ég verð að bera fram skriflega, og vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp þessa brtt.:
„Aftan við 1. gr. bætist svo hljóðandi málsgr.: Ef óskað er eftir ábyrgð skv. 1. gr. til þess að kaupa skip, sem gert hefur verið út frá öðrum stað innanlands, skal ábyrgðar synjað, ef sveitarfélag það, sem skipið hefur, færir rök að því, að nauðsynlegt sé vegna atvinnuskilyrða, að skipið sé kyrrt á staðnum.“
Í þessari till. felst í raun og veru ekkert annað en sú stefna, sem ríkisstj. og Alþ. fylgir í dag, og það er að reyna til hins ýtrasta að halda skipunum á þeim stöðum, sem þau eru núna, en færa þau ekki úr stað, til þess að rýra ekki atvinnu þess staðar, sem skipin eru á. Hér er því ekki um neina nýlundu að ræða, heldur gert til þess að koma í veg fyrir, að þessi regla sé brotin, áður en hún hefur verið brotin á þeim stöðum, sem nú hafa skip, sem liggja undir hamrinum. Það er öllum ljóst, að hér er verið með þessari till. og þeirri till., sem sett var inn í Ed. af hæstv. dómsmrh., að koma í veg fyrir það, að skipin séu öll tekin úr Reykjavík og færð á staði úti á landi með því að gefa ríkisábyrgð þeim stöðum, sem vilja taka skipin frá Reykjavík. Hér er um þrjá togara að ræða, sem gert er ráð fyrir að hjálpa stöðum úti á landi til að kaupa. Það er vitanlegt, að þessir togarar verða ekki keyptir annars staðar en þá í Reykjavík og Hafnarfirði, og þá kannske sérstaklega í Reykjavík. Fjórði togarinn, sem hér er á frv., var í Reykjavík. Eigendur þessa togara höfðu fengið hann með því skilyrði, að hann yrði ekki seldur úr bænum. En togarinn siglir út úr Reykjavík með fölsku flaggi, og hann er færður yfir á annan stað undir fölsku yfirskini. Ég skal taka það fram, að mér er ákaflega vel við þann stað, sem togarinn fór á, því að það er minn fæðingarstaður. En þrátt fyrir það tel ég, að þetta hafi verið mjög rangt að farið gagnvart Reykjavík. Og nú er komið til Alþingis og óskað eftir því, að það taki ábyrgð á þessum togara, til þess að Akranes geti haldið honum eftir að vera búið að flytja hann til sín undir fölsku yfirskini. (Gripið fram í.) Ja, ég hef nú ekki orðið var við það, nema síður sé. (Gripið fram í.) Ja, það efast ég um. Ég er nú þm. fyrir Reykjavík og Reykvíkingur þar að auki.
Eins og ég sagði áðan, þá er það ekkert leyndarmál, að þeir togarar, sem á þessa staði mundu fara, mundu verða keyptir frá Reykjavík. Þingið væri þá með þessum ábyrgðarheimildum beinlínis að gera tilraun til þess að rýra afkomuskilyrði Reykjavíkur. Það er ekki nokkur heil brú í því að halda því fram, að það eigi að örva atvinnuskilyrði á einum stað með því að draga þau niður á öðrum. Þó að Reykjavík sé stærsti staðurinn, þá þarf hún líka að standa undir stærstu böggunum. Og ég verð að segja það, að það er hlálegt, að á sama tíma sem verið er að gera stórt fjárhagslegt átak til þess að halda togurum á stöðum úti á landi, — togurum, sem hafa verið reknir með stórtapi og ríkissjóður verður að hlaupa undir bagga og borga fé til þess að halda þeim á staðnum, hvort sem það verður talið sem atvinnubótafé, lán eða á annan hátt, — það er hlálegt, að á sama tíma skuli Alþ. vera að samþykkja frv., sem beinlínis stefnir að því að draga togara frá einu bæjarfélagi á landinu til þess að rýra atvinnuskilyrði þar. Þetta er óþolandi ósamræmi í stefnu þingsins, ef svona ætti að fara að, því að það þýddi, að það yrðu látin önnur lög gilda um Reykjavík í þessu efni, en aðra staði á landinu.
Svo að ég víki aftur að till., þá fjallar hún um það, að ábyrgðar verði synjað, ef skipið er tekið af öðrum stað og það sveitarfélag, sem togarann hefur haft, telur, að það rýri sín afkomuskilyrði. Ég tel, að einmitt þetta sé rétta leiðin til þess að sporna gegn því, að framið verði fullkomið ranglæti með þessum ríkisábyrgðum, sem hér er um að ræða. Ég vænti þess vegna, að hv. deild geti fallizt á þessi rök og samþykkt þá till., sem ég ætla að leyfa mér að afhenda hæstv. forseta.