23.10.1952
Efri deild: 13. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í C-deild Alþingistíðinda. (3540)

85. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga o. fl.

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Það hefði nú ef til vill verið óþarft af mér að víkja úr forsetastólnum vegna þeirra orða, sem ég ætla að segja sér. Þau eru eingöngu út af því, sem hv. flm. beindi til forseta Alþ. út af mynd, sem hann vildi láta prenta með grg. þessa frv., en við forsetarnir ákváðum að ekki skyldi verða prentuð. Hv. flm. telur auðsjáanlega að þessi verknaður okkar forsetanna hafi verið „bannhelgur verknaður“, eins og hann kemst að orði í grg. á einum stað. En ég er þar á allt öðru máli. Hann telur, að fordæmi hafi þegar verið gefið fyrir því að prenta myndir. Og er það satt, eins og við forsetar gerðum grein fyrir í grg., sem hann mun hafa fengið, að þetta hefur komið fyrir, að það hefur verið leyft að prenta uppdrætti og myndir, ef þær hafa verið taldar upplýsa mál. En við gátum ekki séð, að þessi mynd, sem hafði birzt í Þjóðviljanum og þess vegna er kunnug, upplýsti málið nokkurn skapaðan hlut. Ég setti nú upp gleraugun, þegar ég var að skoða þessa mynd, og mér er eiður sær, að ég gat ekki greint neitt eða áttað mig á, hvað hvað eina væri, annað en ég sá eina könnu, sem hallaðist. Annað sá ég ekki. Og svo var eitthvað svart, og sást, að það var eitthvað, en hvað það væri, var ómögulegt að sjá.

Hv. fim. sagði, að þessi mynd hefði átt að undirstrika ástand. En hún undirstrikar ekki nokkurt ástand. Ég hygg, að ef ljósmyndavélar hefðu verið til frá landsins fyrstu byggð, þá hefði verið hægt að birta áþekkar myndir frá upphafi Íslands byggðar. og mun verða hægt að birta áþekkar myndir til loka Íslands byggðar, því að það er ómögulegt að sjá, að þetta sé t. d. íbúðarhús. Hvar eru sannanirnar fyrir því, að fólk búi í þessu, sem þarna er verið að mynda? Nei, þessi mynd upplýsir ekki nokkurn skapaðan hlut, og þess vegna var það, að forsetar Alþ. ákváðu, að hún skyldi ekki birt. Og hvernig og hverja getur þessi mynd upplýst, ef hún ætti eitthvað að upplýsa? Ekki aðra en alþm. Ekki les Helgi Hjörvar myndina upp í þingfréttum. Það er ekki komið sjónvarp hér, og ég hygg bara, að allir hv. alþm. hafi séð þessa dásamlegu mynd í Þjóðviljanum, svo að ég get ekki séð, að hún hefði upplýst nokkurn skapaðan hlut, um þetta mál. Hv. flm. var t. d. í ræðu. sinni að tala um, hve margar íbúðir væru, að mér skildist, líkar þessu. Hvað segir myndin um það? Hún segir bara það, að þarna sést kanna sem hallast, og þetta er inni í einhverri byggingu. Það sést lítið um það, hvernig þessi bygging er, en það er ekkert um það, hvort yfirleitt sé búið í þessu. Engin sönnun er fyrir því, að í þessum bragga, sem þarna er myndaður, búi nokkur manneskja, — ekki nokkur sönnun fyrir því. Og sízt af öllu sannar myndin nokkuð um það, ef þetta er íbúð, hve margar slíkar íbúðir eru til. Þess vegna er það, að myndin sannar ekki neitt og upplýsir ekki neitt í þessu máli. — Það hefði getað verið meinlaust fyrir því, þó að myndin upplýsi ekki neitt, að gera það fyrir hv. flm. að birta myndina. En hitt er annað, að ef þm. yfirleitt fara að stunda það að láta birta myndir í þskj. af sjálfum sér eða einhverju öðru, þá kostar það töluvert, svo þó að það hafi stundum verið leyft áður að birta teikningar og myndir, sem hafa átt að upplýsa málin, þá held ég, að það sé alveg rétt að gera það ekki að reglu.