21.11.1952
Neðri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (358)

10. mál, áburðarverksmiðja

Stefán Jóh. Stefánsson:

Herra forseti. Ég skildi nú hæstv. fjmrh. að vísu svo, að hann vildi engu lofa um stuðning við þáltill., sem fram kynni að koma um þetta efni af minni hálfu, en mér þótti sýnu verra, að hann vildi nú lýsa yfir, að hann jafnvel mundi ekki ljá slíkri brtt. lið. En hvað sem er um það, þá stend ég við það, sem ég hef áður sagt; ég tek brtt. aftur og mun þá prófa á síðara stigi málsins um vilja hv. Alþingis til þess að lýsa yfir áliti sínu um það, að endurskoða beri l. um áburðarverksmiðju ríkisins.