05.12.1952
Efri deild: 35. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í C-deild Alþingistíðinda. (3593)
170. mál, menningarsjóður
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Samkvæmt l. nr. 7 frá 1928 er stofnaður Menningarsjóður, og hlutverk hans er að styðja almenna menningu í landinu, rannsókn íslenzkrar náttúru og þróun þjóðlegrar listar. Þetta var upphaflega hlutverk sjóðsins. Hlutverk hans er því mjög mikilvægt, en frá öndverðu hefur hann haft of litlar tekjur til að geta gert því þau skil, sem æskilegt hefði verið.
Með l. nr. 70 frá 1936 var því ákvæði bætt í frumlögin, að sjóðurinn skyldi fá árlega af óskiptum rekstrarhagnaði Áfengisverzlunar ríkisins í viðbót við aðrar tekjur upphæð, sem nægði til þess, að sjóðurinn hefði í heildartekjur 50 þús. kr. á ári. Aukatekjur sjóðsins hafa mjög þorrið á síðari árum, og áðurnefnd lagabreyting hefur lítið bætt úr fjárþörf hans, vegna þess að tekjurnar hafa að engu leyti haldizt í hendur við hækkun nauðsynlegra gjalda vegna vaxandi dýrtíðar á síðari árum. Sjóðurinn getur því ekki innt af hendi hlutverk sitt, nema honum verði séð fyrir auknum tekjum.
Frá öndverðu hefur áfengissölu í landinu verið ætlað alveg með sérstökum hætti að tryggja tekjur sjóðsins, og er með frv. þessu, sem hér er lagt fram, fylgt sömu stefnu með því að ætla sjóðnum 1% af tekjum Áfengisverzlunar ríkisins. Ef sjóðnum væru tryggðar þessar tekjur, þá telja forráðamenn hans, að hann mundi geta mjög sómasamlega innt af hendi það hlutverk, sem honum var í öndverðu ætlað.
Ég leyfi mér að leggja til að, að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr., en þar sem frv. kemur frá n., þá mun ég ekki gera till. um, að frv. verði vísað til n.