17.10.1952
Efri deild: 10. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

6. mál, umboð þjóðjarða

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Þetta frv. lætur ekki mikið yfir sér og er í raun og veru ósköp sjálfsagt. Það var svo, að umboð með þjóðjörðum höfðu vissir umboðsmenn, og landinu var skipt á milli þeirra. 1913 var þessu breytt á þann hátt, að umboðin voru öll lögð niður og ætlazt til þess, að umboðsjarðirnar, hver í sínu umdæmi, féllu undir umsjón viðkomandi hreppstjóra. Þetta mun þó aldrei hafa komizt að fullu í framkvæmd. Umboðsmaðurinn, sem þá hafði umboð Arnarstapa- og Skógarstrandarjarða, mun hafa haldið því. Sömuleiðis umboðsmaðurinn, sem hafði Múlaumboð, sem nær yfir Múlasýslurnar báðar. Þegar stjórninni þótti hentara að láta þessa menn hafa umboðið áfram, þá var l. frá 1913 aftur breytt og tekin upp þessi tvö umboð. Sveinn sálugi Ólafsson í Firði var umboðsmaður Múlasýslu- umboðanna, en þegar hann féll frá, þá var l. breytt að því leyti, að þá var Múlasýsluumboðið lagt niður. 1950 sagði svo bóndinn á Brimils- völlum, Ólafur Bjarnason, sem hefur haft Arnarstapa- og Skógarstrandarumboð, því umboði lausu, og þess vegna er sjálfsagður hlutur að afnema nú þau lög, sem hér er lagt til, að séu afnumin. Það, sem þá skeður, er, að þessar jarðir eiga að falla undir umboð hreppstjóranna, hver í sínum hreppi, eftir l. frá 1913.

En þó að þetta frv. sé að þessu leyti sjálfsagt og sjálfsagt að samþ. það, þá er á hinn bóginn ástæða til þess að láta það koma hér fram, að ég er hræddur um, að athuga þurfi betur, hvernig er háttað og hver fer með umboð þessara opinberu jarða. Þau munu nú vera í ýmsum höndum. Það mun ekki vera annað, en fyrirkomulagsatriði hjá stjórnarráðinu að koma því í annað horf, en nú er. Það mun vera svo, að umráð yfir sumum af þeim jörðum, sem ríkið á nú, heyra beint undir stjórnarráðið, ekki kannske að l., heldur að venju, umráð yfir öðrum undir prestana, enn öðrum undir sýslumennina og loks flestum að réttu lagi undir hreppstjórana. Ég vil ekki neitt segja um það, hvernig þetta er rækt núna, en þegar maður aðgætir annars vegar, að verðmæti þeirra jarða að fasteignamati, sem ríkið er talið eiga í sveitum landsins, nemur um 8 millj. og það, sem þær eru taldar gefa af sér í fjárlögum, nemur 10 þús., þá lítur svo út sem þessu sé einhvern veginn ábótavant í framkvæmdinni og þurfi þess vegna að gera á því athugun hjá stjórnarráðinu — landsstjórninni sjálfri — og koma því í betra skipulag, en nú er. Nú er vitanlegt, að af þessum ca. 8 millj., sem eru eign ríkisins, þá eru ekki allar þær jarðir leigðar út. Í því eru t.d. 4 stórjarðir eins og Bessastaðir, Hvanneyri, Hólar og Vífilsstaðir, sem eru um 600 þús. og ríkið er ekki talið hafa neinar tekjur af, en vitanlega hefur einhverjar tekjur af samt sem áður óbeint, þó að það sé ekki talið, — og fleira: Prestssetrin eru mörg, og þau hafa ekki verið metin neitt til afgjalds fyrir prestana siðan 1918. Þeir búa við það, sem þau voru metin þá, þeirra heimatekjur hafa aldrei verið metnar síðan. Af þessum eignum ríkisins, sem þarna er um að ræða og eru nokkuð miklar, fær ríkið lítinn arð. Ríkisstjórnin þarf öll að taka sig til um það að aðgæta, hvernig yfirstjórn og leigumáli á jarðeignum ríkisins er núna, og koma þeim betur og skipulegar fyrir heldur en nú er gert. En við nm. sjáum ekki ástæðu til þess að setja um það sérstök lög. Það þarf engin lög um það. Lögin eru til. Þetta er framkvæmdaratriði, og þess vegna sjáum við enga ástæðu til annars en leggja til, að þetta litla frv., sem hér er á ferðinni, verði samþ. óbreytt, og þá er þess þá jafnframt vænzt, að gefnu tilefni samt, að umboð það, sem áður heyrði til bóndanum á Brimilsvöllum og hann fór með og rækti vel, verði afhent hreppstjórunum, svoleiðis að ekki liði fleiri ár, sem enginn landseti veit, hvert hann á að borga afgjaldið af býlinu, sem hann býr á, eins og átt hefur sér stað á Austurlandi fyrstu árin eftir að umboðið þar var lagt niður. Það mun vera ógoldið þriggja ára eftirgjald hjá öllum, sem í því umboði eru.