02.10.1952
Sameinað þing: 1. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (3635)
Rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Önnur kjördeild hefur athugað kjörbréf hinna tveggja nýkjörnu þm., Hannibals Valdimarssonar skólastjóra, sem kosinn er þm. Ísaf. við aukakosningu, og Eiríks Þorsteinssonar kaupfélagsstjóra, sem kosinn er þm. V-Ísf. einnig við aukakosningu. — Það er ekkert við kjörbréfin að athuga, og leggur því kjördeildin einróma til, að kosningar þessara tveggja þm. séu teknar gildar.