01.10.1952
Neðri deild: 1. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (3648)
Sætaskipun
Forseti (SB):
Þá ber samkvæmt þingsköpum að hluta um sæti þingmanna, annarra en forseta og skrifara, nema þingflokkar hafi komið sér saman um, að skipað sé í sæti eftir flokkum. Ekkert slíkt samkomulag hefur náðst, og verður því hlutað um sæti. Verður dregið um sæti samkvæmt venju. Vil ég biðja hv. þm., eftir því sem nöfn þeirra eru nefnd, að koma upp og draga um sæti.