06.02.1953
Neðri deild: 69. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1616 í B-deild Alþingistíðinda. (3698)
Starfslok deilda
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér — og ég veit ég mæli þar fyrir munn allra hv. þdm. — að þakka hæstv. forseta fyrir góð orð og óskir í okkar garð. Ég vil enn fremur leyfa mér fyrir hönd þdm. að þakka honum röggsama og réttláta fundarstjórn og gott samstarf við okkur þm. Ég vil svo óska honum alls velfarnaðar og biðja hv. þm. um að rísa úr sætum til að taka undir óskir mínar til hæstv. forseta. — [Deildarmenn risu úr sætum.]