15.10.1952
Sameinað þing: 5. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í B-deild Alþingistíðinda. (371)
4. mál, smáíbúðabyggingar
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Í umræðum þeim, sem fram fóru hér í Sþ. í gær um fjárlfrv., var gerð grein fyrir ástæðum fyrir þessu frv., og sömuleiðis er að því vikið í aths. við það. Ég sé þess vegna ekki ástæðu til þess að fylgja því hér úr hlaði með ræðu, en legg til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að aflokinni þessari umræðu.