11.11.1952
Efri deild: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í C-deild Alþingistíðinda. (3710)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég skal sízt hafa á móti því, að aðstoð verði veitt til nauðsynlegrar atvinnuaukningar á Húsavík og Ólafsfirði, en ég vil benda á, að hér er um allmiklu víðtækara mál að ræða. Nú þegar er lagt fram frv., sem var útbýtt hér áðan, um sams konar eða svipaða aðstoð fyrir nokkur Vestfjarðakauptún. Og þá hlýtur að vakna sú spurning — og raunar strax af tilefni þessa frv. eins, hvaðan eigi að taka þau veiðiskip, sem ætlunin er að fyrir ríkishlutann fari til þessara staða. Er ætlunin að kaupa ný skip til landsins, eða er ætlunin að taka skip frá öðrum stöðum, og hvaðan á þá að taka skipin? Ég vil lýsa því yfir, að ef ætlunin er að taka skip frá einhverjum stöðum, þá verður, áður en skipin eru tekin þaðan, að gefa aðilum á þeim stað samsvarandi hlunnindi eins og ætlunin er að veita þeim á hinum nýja stað. Minn ágæti vinur og velviljaði forustumaður í ýmsum þörfum umbótamálum, hv. 1. þm. N-M., skaut því fram, hvort ekki væru ýmsir togarar undir hamrinum. Það kann vel að vera. En mundu ekki þeir aðilar, sem eru nú í vandræðum með sín skip, geta bjargað sér, ef þeir ættu völ á slíkum hlunnindum eins og hér er um að ræða? Það er fyrsta spurningin, sem úr verður að leysa. Og ef ekki þeir sömu fyrri eigendur, eru þá ekki einhverjir aðrir aðilar á sama stað, sem eru fúsir til þess að taka að sér útgerð skipanna, ef þeir eiga kost á sams konar aðstoð? Ég vil lýsa því yfir að, að svo miklu leyti sem ætlunin kann að vera að beita þessari ábyrgð til þess að fá einhverja togara t. d. frá Reykjavík, þeim stað, sem ég er þm. fyrir, þá er ég algerlega andvígur því, að slík hlunnindi séu veitt öðrum stöðum, nema Reykvíkingum sé samtímis boðið upp á sams konar hlunnindi, ef þeir halda skipunum hjá sér.

Þannig er þetta mál miklu víðtækara en svo, að hægt sé að afgreiða það með einu slíku frv. Það er vitað mál, að árstíðabundið atvinnuleysi er því miður ekki síður hér í Reykjavík og á ýmsum öðrum stöðum heldur en t. d. Húsavík og Ólafsfirði, og geri ég ekki lítið úr erfiðleikum þessara kaupstaða á vissum tímum árs. En það er vitað, að Reykjavík þolir ekki, með því stöðuga aðstreymi, sem hingað er af fólki, og vexti bæjarins, að vera svipt þeim atvinnutækjum, sem þegar eru hér. Menn verða að horfast í augu við það. Það kann að vera, að einstaka skip liggi nú, vegna þess að fjárhagsörðugleikar séu svo miklir, að ekki hafi verið hægt að gera það út eða skapa nýjan grundvöll fyrir útgerð þess. Þá er það fyrsta að athuga, hvaða ráðstafanir þarf að gera, til þess að útgerðin á þessum skipum geti haldið áfram. Og það er miklu eðlilegra, að ráðstafanir séu gerðar til þess, að útgerðin geti haldið áfram á þeim stað, þar sem skipin eru og fullvíst er og áreiðanlegt að á útgerðinni þarf að halda vegna atvinnuástandsins á þeim stað, heldur en að fara að reyna að skapa grundvöll fyrir útgerð togara á þeim stöðum, þar sem togaraútgerð hefur aldrei verið. Ég held þess vegna, að hv. n. verði að athuga þetta mál töluvert betur, athuga, hvaða staði hún er að svipta atvinnumöguleikum með þessu frv., eða ef ætlunin er að kaupa ný skip erlendis frá, að segja þá svo beinlínis og binda heimildina við það. Og þá tel ég fyrir mitt leyti, að frv. sé miklu aðgengilegra. Það mundi gerbreyta viðhorfi til málsins hjá mér. En að öðru leyti finnst mér langeðlilegast, að þessu frv. verði breytt í almenna heimild til sveitarstjórna. um, að þær eigi rétt á slíkum hlunnindum eins og hér er ætlunin að veita einhverjum tilteknum þeirra.