15.10.1952
Sameinað þing: 5. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í D-deild Alþingistíðinda. (3713)

53. mál, kjötútflutningur til Bandaríkjanna

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Hæstv. landbrh. upplýsti það í upphafi máls síns, að það væri vafasamt, að þetta væri landbúnaðarmál, og vitanlega er það svo, að það er meira en vafasamt. Hér er nefnilega ekki um neitt landbúnaðarmál að ræða. Það er um hrein viðskiptamál að ræða, viðskiptamál, sem hafa farið í ólestri að einhverju leyti, og það ætti þess vegna að koma minna við taugar hæstv. ráðh. en það virðist hafa gert, að það er alger misskilningur, að hér sé neitt verið að tala um landbúnaðinn. Það er verið að tala um misheppnaða sölutilraun á íslenzku kjöti í annarri heimsálfu. Ég skildi ekki meðal annars, hvers vegna hæstv. ráðh. mótmælti því ákaflega kröftuglega hér áðan, að það væri rétt hjá hv. 4. þm. Reykv., að valið hefði verið bezta dilkakjötið til þessarar tilraunar. Það væri margbúið að hrekja þetta, sagði hann. Nú sér það þó hver maður, að þegar verið er að gera fyrstu tilraun til að vinna íslenzkri framleiðsluvöru markað, þá hlýtur auðvitað að hafa verið valin til þess úrvalsvara, en ekki neitt hrat eða úrkast þeirrar vöru. Það skyldi engan undra, þó að sölutilraunin hafi misheppnazt, ef hæstv. ráðh. hefur rétt fyrir sér í því, að það hafi verið með því lakasta af íslenzku dilkakjöti, sem hafi verið valið hér til þessarar sölutilraunar. Vitanlega hefur verið tekið frá íslenzkum neytendum allra bezta dilkakjötið til þess að gera þessa tilraun með, í von um, að hún tækist.

Annars vil ég segja þetta í sambandi við þessa sölutilraun: Það væri æskilegt, að unnið væri af meiri röggsemi að því að vinna þeim framleiðsluvörum íslenzkum markað erlendis, sem við framleiðum meira af en þjóðin þarf til neyzlu innanlands, heldur en að vera að burðast við að gera tilraunir — hæpnar tilraunir — með að selja íslenzka framleiðsluvöru, sem þjóðin hefur ekki nóg af til eigin neyzlu, og stofna þar með milljónaverðmætum í hættu algerlega að óþörfu.

Hæstv. ráðh. sagði, að allar líkur bentu nú til þess, að búið væri að selja allt kjötið, aðeins væri þetta að athuga, að andvirðið væri ekki komið hingað heim. En kemur þetta andvirði nokkurn tíma hingað heim? Er það satt, að viðkomandi sölumaður sé orðinn gjaldþrota og það sé nú vitað af íslenzkum stjórnarvöldum, að andvirðið komi aldrei heim? Og ef það er rétt, að ráðh. hafi nokkuð fyrir sér um það, að búið sé að selja kjötið, en andvirðið komi aldrei heim, hví er þá þingheimur dulinn þess, úr því að málið var einu sinni tekið hér til umræðu?