20.10.1952
Neðri deild: 11. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í C-deild Alþingistíðinda. (3716)

34. mál, atvinnubótasjóður

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég vildi í fáeinum orðum láta í ljós mjög eindreginn stuðning minn við þá hugsun, sem fram kemur í þessu frv. Ég tel, að ekki leiki á tveim tungum, að brýna nauðsyn beri til þess að tryggja lánsfé til framkvæmda á þeim stöðum í landinu, þar sem sérstaklega vantar nú framleiðslutæki til þess að tryggja það, að allar verkfúsar hendur þar hafi nóg verk að vinna. Sú hugsun, sem í frv. felst, er tvímælalaust heilbrigð, og ég óska þess einlæglega, að hún nái fram að ganga í einhverju formi. Hins vildi ég hins vegar láta getið, að mér virðist það ekki vera í fullu samræmi við viss atriði í fjárlagaræðu hæstv. fjmrh. Þar kom fram, að ríkisstj. hefði í hyggju að koma á fót Framkvæmdabanka, sem í skyldi renna m. a. mótvirðissjóðurinn og þá væntanlega þannig, að tillit yrði tekið jafnframt til þeirrar till. til þál., sem samþ. var á síðasta Alþ., sem m. a. kvað svo á um, að helmingi af fé mótvirðissjóðs skyldi varið til þess að efla ýmsar framkvæmdir í sveitum, en hinum helmingnum til þess að efla framkvæmdir við sjávarsíðuna.

Nú verður hvort tveggja náttúrlega ekki gert á sama þingi, annars vegar að koma upp Framkvæmdabanka, sem allur mótvirðissjóðurinn skuli renna í, með þessu fororði þó, og koma upp atvinnubótasjóði, sem fjórðungur af fé mótvirðissjóðs skuli renna í. Mig langar þess vegna til þess að vita, hvort hæstv. ríkisstj. muni verða reiðubúin til þess að stuðla að framgangi þessa máls. Margir mjög áhrifaríkir stuðningsmenn ríkisstj. í öðrum stjórnarflokknum eru flm. að þessu frv. Því var útbýtt eftir að hæstv. fjmrh. gerði það kunnugt í fjárlagaræðu sinni, að stjórnin, að því er manni skildist, mundi leggja til, að stofnaður yrði Framkvæmdabanki, sem fá skyldi mótvirðissjóðinn allan. Mér finnst ástæða til þess, að hv. þdm. verði frá því skýrt, hvort framkoma þessa frv. þýði það að einhverju leyti, að stjórnin hafi horfið frá þessari tilkynningu hæstv. fjmrh. eða hvort stjórnin hafi kannske aldrei staðið á bak vi$ hana, sem ég þó engan veginn geri ráð fyrir. Þetta er sem sagt svo mikilsvert mál, að mér finnst, að 1. umr. þessa máls eigi ekki að ljúka án þess, að fram komi skýrar upplýsingar um þetta. Er það tilætlun hæstv. ríkisstj. að koma á fót Framkvæmdabanka, sem fá skuli mótvirðissjóðinn allan? Það hlýtur að þýða, að hæstv. ríkisstj. getur ekki stutt að þessu frv. Eða er það tilætlun hæstv. ríkisstj. að hverfa frá yfirlýsingu hæstv. fjmrh. og styðja þetta frv.? Ég skal taka það skýrt fram, að frá mínum bæjardyrum séð er það ekki aðalatriðið, hvor leiðin verður farin, heldur hitt, að því fé mótvirðissjóðs, sem verður til ráðstöfunar til fjárfestingar, verði varið að mjög verulegu leyti til þess að tryggja atvinnuskilyrði fólksins þar, sem þau nú eru rýr. En hitt vil ég að komi skýrt fram í jafnmikilsverðu máli og þessu, hver er hin raunverulega fyrirætlun hæstv. ríkisstj., og þess vegna leyfi ég mér að beina þessari fyrirspurn til hennar: Stendur hún við tilkynningu hæstv. fjmrh. um stofnun Framkvæmdabankans, eða ætlar hún sér að styðja að framgangi þessa frv.?